Morgunblaðið - 01.08.2017, Side 22

Morgunblaðið - 01.08.2017, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2017 ✝ SvanhildurÞorkelsdóttir fæddist í Reykjavík 14. mars 1943. Hún andaðist á hjúkr- unarheimilinu Hömrum í Mos- fellsbæ 23. júlí 2017. Foreldrar henn- ar voru Þorkell Einarsson húsa- smíðameistari, f. 26. desember 1910, d. 11. júní 2003, og Alfa Regína Ásgeirs- dóttir húsmóðir, f. 8. júlí 1911, d. 17. október 1965. Systkini Svanhildar eru Friðþjófur Þor- kelsson, f. 29. ágúst 1932, d. 20. febrúar 2008, kona hans var Lo- uise Anna Schilt. Sigurlaug Þorkelsdóttir, f. 19. nóvembe 1933. Þorkell Alfreð Þorkels- son, f. 16. desember 1935, d. 2. febrúar 1963. Einar Þorkelsson, f. 14. september 1937, kvæntur Kristínu Guðrúnu Jóhanns- dóttur. Ásgeir Halldór Þorkels- 1966, börn hennar eru Svanhild- ur, f. 4. september 1992, og Ólafur Jóhann, f. 30. nóvember 1996. 3) Þorbjörn Valur lög- reglumaður, f. 4. janúar 1969. Kona hans er Emilía Björg Jónsdóttir skrifstofumaður, f. 26. ágúst 1970. Börn þeirra eru Jóhann Gylfi, f. 2. október 1999, og Auður Jóney, f. 14. desember 2004. Svanhildur ólst upp í Krossamýri í Reykjavík, þar sem nú er Höfðahverfið við Ár- túnsbrekku. Hún gekk í Laugarnesskóla, Réttarholts- skóla og verslunardeild Haga- skóla. Svanhildur starfaði lengst af á skrifstofum Mosfells- bæjar, eða frá 1975 til 2006, þá sem gjaldkeri, aðalgjaldkeri og skjalavörður. Hún var einnig forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Mosfellsbæ frá 1985 til 2013. Hún var um árabil í sóknarnefnd Lágafellssóknar, lengst af sem gjaldkeri. Svan- hildur var einn af stofnendum kórs aldraðra í Mosfellsbæ, Vor- boðanna. Hún var einn af frum- kvöðlum að stofnun Lions- klúbbsins Úu árið 2007. Útför Svanhildar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 1. ágúst 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. son, f. 14. sept- ember 1937, d. 6. apríl 1957. Bryn- hildur Þorkels- dóttir, f. 9. desem- ber 1946, gift Valdimari Krist- inssyni. Svanhildur giftist 10. júní 1962, Jóhanni Sæ- mundi Björnssyni, f. 20. febrúar 1942, d. 20. ágúst 2006. Foreldrar hans voru Björn Kr. Guðmundsson verkstjóri og síð- ar skrifstofumaður, f. 20. mars 1906, d. 2. september 1983, og Þorbjörg Ólafsdóttir húsmóðir, f. 31. maí 1901, d. 11. janúar 1981. Börn þeirra Svanhildar og Jóhanns eru: 1) Þorkell Ásgeir Jóhannsson flugstjóri, f. 27. apr- íl 1963, börn hans eru Þorbjörg Una, f. 17. apríl 1995, Hall- grímur Anton, f. 12. september 1997, og Snæbjörn Máni, f. 8. nóvember 2000. 2) Alfa Regína framkvæmdastjóri, f. 3. mars Við erum full af gleði og til- hlökkun. Enda erum við á leiðinni í ferðalag með mömmu og pabba, með tjaldið á toppnum á bílnum og nestisboxin full af ilmandi kræsingum sem mamma hafði bakað og útbúið fyrir ferðina. Svona eru margar minningarnar úr æsku, við á faraldsfæti um landið með mömmu og pabba. Ég hugsa oft til þessa tímabils með brosi á vör og þakka fyrir þau forréttindi að hafa alist upp við mikla ást og vináttu. Mamma var mér góð fyrir- mynd, hún studdi mig í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur, hvatti mig áfram á sinn óeigin- gjarna hátt án þess að stíga yfir þessa hárfínu línu sem gerir leið- sögn að stjórnun. Hún var glað- vær og umvefjandi, alltaf til stað- ar og svo var hún líka svo skemmtileg með sinn einstaka húmor. Fyrir skömmu var ég að ræða við dóttur mína, Svanhildi, um hvað fælist í því að elska og fékk þá þetta svar frá henni: Mamma, að elska eins og amma gerir er hreinasta og fallegasta ástin því hún elskar mann skilyrðislaust, alltaf. Þessi orð hittu beint í mark því þau eru svo sönn. Nú er mamma komin í faðm pabba og ég er ekki í nokkrum einasta vafa um að það eru ljúfir endurfundir. Alfa R. Jóhannsdóttir. Elsku Svanhildur tengda- mamma mín hefur kvatt okkur í bili. Ekki veit ég hvar ég á að byrja skrifin um hana, svo sam- ofin lífi okkar Tobba hefur Svan- hildur verið sl. 25 ár. Það er meira en helmingur af minni ævi. Það var ekki liðið lengra en svo af tilhugalífi okkar Tobba að ég var kynnt fyrir Svanhildi og Jóa í fyrstu bíóferðinni okkar. Ég kom ofan af Kjalarnesi til að sækja Tobba, já ég ákvað að vera á mín- um bíl því mér leist ekkert á að fara í bíó á Lödu Sport, en þannig bíl átti hann um þær mundir . Ég bankaði upp á og Tobbi kom til dyra. Tíminn var nægur og hann bauð mér inn, að ég átti von á í herbergið hans. En nei, ég var boðin inn í eldhús og kynnt fyrir Svanhildi og Jóa og boðið upp á kaffi. En það var engin ástæða fyrir mig að fara úr jafnvægi, því ég skynjaði strax velvildina, þægilegheitin og hlýjuna, sem einkenndi tengdaforeldra mína alla tíð. Samband Tobba við for- eldra sína var einstakt vinasam- band og var ég svo lánsöm að falla vel þar inn. Ótal samveru- stundir, hvort sem var spjall eða ferðalög, alltaf var svo gaman og indælt að vera í kringum þau. Ég man tilfinninguna sem ég fékk mjög fljótt í kynnum okkar Svan- hildar, mér fannst ég vera að tala við vinkonu mína, hún var svo hlý og einlæg. Við bjuggum líka sam- an í nokkur skipti. Fyrst vorum við í íbúðinni í bílskúrnum í Markholti, áður en við fluttum á okkar eigið heimili. Svo snerist það við seinna, þónokkrum árum eftir að Jói var fallinn frá og Svanhildur orðin veik að við flutt- um til hennar í Markholtið. Þá flutti hún yfir í íbúðina og við í húsið. Svanhildur missti mikið þegar Jói féll frá, sem og við öll. En þrautseigjan í henni var ótrú- leg og hún náði sér vel á strik, þó það hafi verið henni erfitt. Það var alltaf svo gott að eiga Svan- hildi að, hún var svo traust og trygg og með sína ljúfu lund náði hún að gera hverja stund góða. Hún var mér mikill styrkur þeg- ar ég missti pabba og mömmu og það að eiga öruggan samastað hjá henni í kringum það erfiða tímabil var mér ákaflega dýr- mætt. Hún var mikill spíritisti, eins og ég og Tobbi erum bæði og það var svo gott að tala við hana um lífið og tilveruna, hennar sýn var svo lík okkar. Svanhildur var barnabörnum sínum yndisleg og góð amma. Það sem henni þótti vænt um þau öll og naut samvistanna við þau. Þvílík hjálp og stuðningur sem við ungu foreldrarnir áttum endalaust í henni. Alltaf boðin og búin að passa börnin, hvort sem var rétt á meðan skroppið var í búðina, kíkt út á lífið eða lagt í lengri ferðir. Ekki þurftum við að hafa áhyggjur af atlæti barnanna, hún elskaði að hafa þau hjá sér og vinskapur hennar við barnabörnin var einstakur. Veit ég að þau eiga eftir að sakna ömmu sinnar sárt. Svanhildur hafði létta lund og ríkti iðulega glaðværð hvar sem hún var. Hún vildi líka hafa það þannig því það var stór hluti af hennar lífssýn að vera jákvæð og glöð með sitt. Hún hafði einnig mikið jafnaðar- geð og ýki ég ekki þegar ég segi að aldrei bar skugga á okkar góða samband. Þessir skapgerð- areiginleikar hennar reyndust henni líka styrkur þegar hún barðist við veikindi sín síðustu ár- in. Góð og dýrmæt minning um yndislega tengdamóður, móður og ömmu mun ætíð fylgja okkur. Þegar komstu þá var hlýtt, þau voru okkar kynni, allt var göfugt, gott og blítt er gafst í návist þinni, ef að jarðlífs mæddu mein mest var kærleiksdáðin, skorinorð og hjartahrein hollust gafstu ráðin. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Emilía Björg Jónsdóttir. Elsku amma Svanhildur er nú farin frá okkur og finnst okkur sárt að horfa á eftir henni. Hún er búin að kveðja þennan heim og er nú komin á betri stað þar sem henni líður betur. Við hugsum til hennar með hlýjum hug og vitum að hún er hérna hjá okkur í anda. Síðustu árin voru henni erfið vegna veikinda. Amma var sterk og sjálfstæð manneskja og bar mikið á þeim drifkrafti sem í henni bjó þegar veikindin fóru að gera daglega hluti erfiðari með tímanum. Hún vildi helst ekki fá neina hjálp en vildi alltaf hjálpa öðrum. Þetta eru eiginleikar sem við munum koma til með að tileinka okkur því við sáum hverju það skilaði sér og hversu vel liðin hún var í alla staði. Upp vakna ekkert nema góðar minningar þegar við hugsum til baka í Markholtið til ömmu. Það var alltaf þægilegt að koma til hennar og vera í kringum hana, þar biðu hlýr faðmur og ljúfar móttökur. Amma og afi áttu fal- legt heimili og voru mjög gestris- in, enda voru gestir tíðir á heim- ilinu og var alltaf tekið vel á móti þeim með veitingum og fleiru. Það er svo margt sem við lærð- um af því að fá að vera í kringum hana ömmu á þessum tæplega 18 og 13 árum sem við áttum með henni. Eftir lifir minningin um elsku ömmu og gleymum við henni aldrei. Þetta var mjög dýr- mætur tími í okkar lífi. Takk fyrir allt, elsku amma. Amma hafði það fyrir venju að signa okkur alltaf þegar við fór- um að sofa eða kvöddum hana. Í nafni Guðs, föður og sonar og heilags anda, amen. Jóhann Gylfi og Auður Jóney Þorbjörnsbörn. Englar. Ég hef aldrei séð engil með vængi og geislabaug, en ég hef séð engil í mannsmynd. Þú, Svanhildur amma, varst tvímæla- laust engill. Að öllum líkindum varstu send af guði til okkar. Ég trúi því allavega. Ég er nú reynd- ar ekkert kristin eða trúuð ef út í þá sálma er farið. En englar, ég fékk þau forréttindi að þekkja einn. Eflaust varstu hér til að minna okkur hin á að sýna náunganum kærleik, sama hvað. Þú tókst alltaf við manni með bros á vör. Þú varst algjörlega með þeim allra hjartahlýjustu manneskjum sem til voru, þó að víða hefði verið leitað. Allir fyllt- ust af ást og hamingju í kringum þig, amma. Þess vegna trúi ég því að þú hafir verið engill, send til jarðar í þeim tilgangi að gefa fólki í kringum þig frið í hjarta og sál. Ég man hvað vakti mestu til- hlökkunina hjá mér þegar ég fór suður sem barn. Það var ekki spenningurinn fyrir því að vera í „stórborg“ með nóg af dóta- og fatabúðum. Það var ekki það að geta horft á Tomma og Jenna á Stöð 2 hjá ykkur afa eða fá syk- urríkt morgunkorn eða helling af kökum hjá þér. Ég hlakkaði mest til að fá ylinn í bringuna þegar ég fann dúnmjúku lyktina sem fyllti heimilið ykkar. Tilfinningin var á sinn hátt fullnægjandi, ég þurfti ekki meira en þessa hlýju ykkar. Lyktin var búin til úr ást, heið- arleika, trú og fegurð. Að faðma ykkur afa fyllti mig alltaf af kær- leik og hlýju. Lykt heimilisins kom frá hjörtum ykkar auk góða rakspírans hans afa og ilmvatns- ins þíns. Þið tvö áttuð samleið og eigið örugglega enn og ég sé vel fyrir mér innilegt faðmlag ykkar þegar þið hittust aftur núna fyrir stuttu í öðrum heimi. Guð fylgdist með þér þreytast engin lækning fannst. Hann tók þig í faðm sinn, „Taktu mig“ þú baðst. Gullið hjarta stoppaði það ástartaktinn missti. Gullið hjarta í hjörtu okkar allra risti. Tár í augum, fylgdumst með þér hverfa úr þessum heimi. Sama hve mikið við báðum, þú varðst að fara með þeim. Þorbjörg Una Þorkelsdóttir. Amma mín var sú manneskja sem ég hugsaði alltaf til þegar ég fór að velta því fyrir mér hvað skilyrðislaus ást væri í raun og veru. Þá birtust mér alltaf fleiri og fleiri minningar sem amma lýsti upp með verunni sinni. Hún var ekkert endilega alltaf hrifin af þeim ákvörðunum sem ég tók, sér í lagi ekki ef þær höfðu með furðulegar breytingar á útliti mínu að gera, í takt við tísku- straumana hverju sinni. En und- antekningarlaust sagði hún þó „þú ert svo falleg, ömmubarn“ og strauk mér um vangann. „Amma elskar þig.“ Sem barn var ég almennt miklu spenntari fyrir því að fá að gista hjá ömmu og afa heldur en hjá nokkurri vinkonu. Það var alltaf ævintýri að vera hjá þeim í Markholti 18 og nóg um knús og kúr. Amma kenndi mér að spila á píanó og fékk ég einn mola af suðusúkkulaði fyrir hvert nýtt lag sem ég lærði. Svo kúrðum við afi og kisan Greyið, bangsinn sem þau gáfu mér stuttu eftir að ég kom í heiminn, alltaf saman í afa- stól a.m.k. einu sinni í hverri heimsókn. Amma leyfði mér að taka virkan þátt í að hjálpa henni í fallega garðinum þeirra og við afi lékum okkur saman með hattasafnið hans og göngustaf- ina. Berjamó, útreiðar og steina- skoðun. Uppátækin voru enda- laus. Ég er svo þakklát fyrir hvað ég á margar fallegar minningar með þeim hjónum. Ég var „ömmu- barn og afastelpa“. Ég var ljósið í lífi þeirra og ég fann það af öllu mínu hjarta, svoleiðis ljómuðu þau alltaf þegar þau sáu mig – og ég, þegar ég sá þau. Eftir að afi dó upplifði ég mjög myrkan tíma en við amma urðum ennþá nánari fyrir vikið og töluðum mikið sam- an um afa. Ég gat alltaf leitað til hennar og hún hélt minningunni hans lifandi alveg þar til þau sam- einuðust á ný í sumarlandinu. Elsku amma Svanhildur, nafna mín, þú átt svo mikið í mér – ég finn fyrir þér í verunni minni. Ég sé þig í blómunum og heyri í þér þegar ég hlæ. Þú glitr- ar í fallegustu steinunum og gæð- ir þér með mér á rabarbara og rifsberjum. Svo ertu auðvitað alltaf með mér þegar ég sötra kaffi. Ég elska þig meira en orð fá lýst og sakna þín sárt. Sem betur fer get ég yljað mér við hlýjar minningar um þig og veit að þú ert á fallegasta stað í heimi, hjá Jóa afa. Ég mun bera nafn þitt með stolti og halda minningu þinni lifandi um ókomna tíð. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér, kærleikann og samveruna. Við erum alltaf saman í hjarta mínu. Svanhildur Steinarsdóttir. Þá er hún horfin á braut mín kæra systir og besta vinkona gegnum lífið, eftir fimm ára erfið veikindi. Þótt fljótlega hafi verið ljóst að hverju stefndi bregður manni við þá staðreynd að hún sé ekki lengur til staðar. Tómleiki og söknuður fyllir hugann og minningarnar hrannast upp. Þrátt fyrir andstreymi síðustu ára var æðruleysið og húmorinn ávallt til staðar, allt fram á síð- ustu stundu. Svanhildur átti hamingjuríka ævi í faðmi Jóa og var það henni afar erfitt að kveðja hann eftir stutt veikindi fyrir 11 árum. Þau eignuðust fallegt heimili í Mark- holtinu sem fljótlega fékk heitið „Bláa kökuhúsið“ því þar var ávallt kökuhlaðborð flesta daga. Þar var gestrisnin við völd enda bekkurinn oft þéttsetinn af vin- um og vandamönnum fjölskyld- unnar. Við Svanhildur vorum yngstar í sjö systkina hópi og þar af leið- andi lékum við okkur mikið sam- an þar sem hún var veitandi mik- illar þolinmæði og umhyggju alla tíð, allt til síðasta dags. Verð ég henni eilíflega þakklát fyrir alla þá hlýju sem hún veitti mér. Að- eins einu sinni fannst mér bregða skugga á okkar samskipti en það var þegar hún setti mig aðeins til hliðar þegar hún var í tilhugalíf- inu með honum Jóa sínum og þau að leggja grunn að sinni ham- ingjuríku sambúð. Hafi ég orðið stúrin við þessar óvæntu breyt- ingar var Jói fljótur að bræða mig með sínum hlýleika enda reyndist hann mér eins og besti bróðir alla tíð. Gat ég alla tíð leit- að til þeirra ef eitthvað bjátaði á og ég þyrfti aðstoð. Góðar stundir áttum við sam- an þegar Svanhildur fór með eldri borgara til útlanda. Jói fylgdi að sjálfsögðu með og var þá eins og besti fararstjóri, ætíð vel lesinn um þá staði sem farið var á. Áttum við saman yndisleg- ar stundir í þessum ferðum, sér í lagi þegar faðir okkar var með í ferðum. En nú er hún horfin sjónum okkar þessi elska og minningarn- ar verða hér eftir það sem mun ylja okkur. Hið ógleymanlega æskuheimili í Krossamýrinni þar sem oft var fjörugt í meira lagi og mikill atgangur oft og tíðum. Annir við bústörf sem við öll tók- um þátt í. Leikir daginn út og inn í bland við stríðni og hrekki þar sem Svanhildur var alltaf þessi mjúka og milda, tilbúin að hugga og vernda litlu systur þegar leik- urinn varð fullærslamikill. Svanhildur var þessi alltum- lykjandi góða manneskja sem fór í gegnum lífið af mikilli reisn, mildi og trúfestu og ekki má nú gleyma húmornum. Hún átti aldrei í illdeilum við nokkra manneskju, fór alltaf með friði og yfirvegun en gat eigi að síður ver- ið föst fyrir teldi hún þörf á því. Við í Víðiteignum viljum þakka fyrir þær ótal ánægjustundir sem við nutum með Svanhildi og Jóa og fjölskyldunni allri. Það er svo sannarlega mannbætandi að um- gangast slíkt fólk. Við sendum samúðarkveðjur í „Bláa kökuhús- ið“ og til allra þeirra sem tilheyra því. Brynhildur Þorkelsdóttir. Svanhildur mágkona mín er látin, nokkuð um aldur fram. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða nokkur undanfarin ár. Með Svan- hildi er fallin frá merk kona sem gaman var að kynnast og eiga samskipti við, ævinlega brosmild og kát. Það eru nú liðin ein 56 ár síðan hún og Jóhann Sæmundur bróðir minn kynntust. Hjóna- band þeirra stóð í 44 ár, eða þar til að Jóhann andaðist í ágúst 2006. Þau stofnuðu heimili í Reykjavík og bjuggu þar örfá fyrstu árin, en festu svo kaup á húsi að Markholti 18 í Mos- fellsbæ og bjuggu þar upp frá því. Það er óhætt að segja að Markholtið varð fljótlega eftir það eins konar félagsmiðstöð, enda bæði tvö afskaplega vin- mörg. Ævinlega var gott og gam- an að koma til þeirra og alltaf svignuðu borð af meðlætinu með kaffinu. Glaðværðin og skemmti- legheitin var í fyrirrúmi. Svanhildur réðst til starfa á skrifstofum Mosfellssveitar, síð- ar Mosfellsbæjar. Var aðalgjald- keri bæjarins í fjölda ára svo og gjaldkeri sóknarnefndar Lága- fellssóknar-Mosfellsprestakalls. Svanhildur var tónelsk, átti og spilaði á píanó á góðum stundum. Þau hjón voru samhent í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur, ferðuðust mikið í fríum sínum innanlands og erlendis. Ein af fyrstu ferðum þeirra til útlanda var ferð til Sovétríkjanna þar sem þau tóku sér ferð með Síb- eríu„hraðlestinni“ og héldu í austur. Þessi ferð stóð í um þrjár vikur og bar margt við á leiðinni. Í þessari lest sem fer yfir mörg tímabelti og er afar margt sem fólk sér á leiðinni. Það var gaman að heyra frá þessari ferð þeirra sem var mikið ævintýri. Jói og Svanhildur voru félagar í Lionsklúbbnum í Mosfellsbæ og voru bæði sæmd margvíslegum og æðstu viðurkenningum innan Lions fyrir mikil og góð störf í þágu hreyfingarinnar. Svanhild- ur stóð fyrir stofnun félags eldri borgara í Mosfellsbæ og var for- stöðumaður þess alla tíð, eða þar til hún lét af störfum fyrir fáum árum. Á vegum félagsins voru alltaf farnar ýmiss konar ferðir, heima og heiman. Hér heima voru oft farnar dagsferðir og eins lengri ferðir, hringferðir um landið og líka ferðir á ákveðna staði eða landshluta. Til útlanda voru farnar ferðir víða um Evr- ópu. Ég heyrði oft að þessar ferð- ir hefðu verið skemmtilegar. Þarna var fjölbreyttur hópur eldra fólks með ýmiss konar bak- grunn úr lífinu sem blandaði geði hvað við annað og hafði gagn og gaman af. Þessar ferðir voru skipulagðar af þeim hjónum. Þau sáu um að halda utan um hópinn, sem oft var kannski nokkuð á þriðja tuginn. Þarna var fólk, sem misvel var á sig komið hvað heilsufar varðaði og var því oft nokkurrar aðstoðar þurfandi með ýmislegt. Segja má að þau hafi oft í þessum ferðum verið í því að lifa fyrir aðra. Svanhildur var alla tíð vakin og sofin yfir velferð eldra fólksins í bænum í þessu starfi sínu sem forstöðumaður fé- lagsins. Nú er góð kona kært kvödd og ég veit að mágkona mín á góðrar heimkomu von. Að lokum sendi ég börnum Svanhildar og fjöl- skyldum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ólafur Steinar Björnsson. Í dag kveðjum við Svanhildi Þorkelsdóttur, mína kæru og góðu vinkonu. Ég átti því láni að fagna að kynnast Svanhildi fyrir um það bil 45 árum, þegar þau Svanhildur og Jóhann keyptu húsið við hliðina á okkur. Við tengdumst sérstökum vináttu- böndum sem einkenndust af trausti, trúnaði og virðingu alla tíð og hefur aldrei borið skugga þar á. Svanhildur var stolt, sterk og mikilvirk kona og hafði skemmti- legt skopskyn og hélt reisn sinni í gleði og sorg. Ef hún sá tækifæri skapaði hún sér þá möguleika sem komu fram í lífsgildum hennar: Ég get, ég skal, hún var mjög svo vilja- sterk. Þau hjónin voru mjög gest- risin og yndisleg heim að sækja. Við tókum upp þann sið að bjóða í mat einu sinni á ári, á hvoru heimili, það voru ógleymanlegar stundir. Einnig áttum við góðar Svanhildur Þorkelsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.