Morgunblaðið - 01.08.2017, Side 27
var hestamennska, sem fylgt hefur
þeim alla tíð. Hestarnir voru þeim
gæðingar og bestu vinir, en þá rækt-
uðu hjónin sjálf með stóði tengdafor-
eldra Vinsýjar á Uxahrygg. Hestum
sínum sinntu þau árið um kring og
stunduðu útreiðar bæði sumar og
vetur. Þau ferðuðust á hestum sínum
og létu sig ekki vanta í réttir. Eftir
fráfall Erlings hefur flestum hest-
anna verið fundinn staður hjá nýjum
eigendum, en Vinsý á enn fimm hesta
í Gulllandinu, fjóra höfðingja og einn
fulltrúa ungu kynslóðarinnar.
Fjölskylda
Vinsý giftist Erlingi Guðmunds-
syni, f. 17.9. 1939, d. 15.4. 2016, vöru-
bílstjóra á Hellu. Foreldrar hans voru
Guðmundur Gíslason, f. 1903, d. 1987,
og k.h., Hólmfríður Magnúsdóttir f.
1910 d. 1983, bændur á Uxahrygg I á
Rangárvöllum.
Dóttir Vinsýjar og Kjartans Jak-
obssonar er Anna Kristín, f. 2.11.
1956, bús, á Selfossi, skrifstofu- og
innkaupastjóri í Kjörís, eiginmaður
hennar er Hafsteinn Hjaltason og
eiga þau fjögur börn og þrjú barna-
börn. Börn Vinsýjar og Erlings eru
Samúel Örn, f. 12.11. 1959, kennari,
bús. á Hellu, kvæntur Ástu B. Gunn-
laugsdóttur og eiga þau tvær dætur
og tvö barnabörn; Hólmfríður, f. 3.2.
1961, sjúkraþjálfari við Landspít-
alann, bús. í Kópavogi, eiginmaður
hennar er Ásbjörn G. Guðmundsson,
og eiga þau tvö börn og eitt barna-
barn; Margrét Katrín, f. 4.3. 1962,
bús. í Tjarnarbyggð, framkvæmda-
stjóri Hjá Maddý á Selfossi, eigin-
maður hennar er Jónas Rafn Lillien-
dahl og eiga þau þrjá syni og tvö
barnabörn; Ingibjörg f. 18.1. 1967,
bús. á Hvolsvelli, skólastjóri Tón-
smiðju Suðurlands og tónlistarkenn-
ari, eiginmaður hennar er Helgi Jens
Arnarson og eiga þau fjórar dætur og
þrjú barnabörn.
Alsystur Vinsýjar eru Þorbjörg, f.
6.3. 1934, verkakona í Hafnarfirði;
Ágústa, f. 23.4. 1935, bóndi á Seljanesi
og á Stóru-Reykjum í Fljótum; Bjarn-
veig, f. 4.7. 1940, verkakona í Bolung-
arvík; Selma, f. 20.1. 1942, d. 29.11.
2012, bóndi í Steinstúni í Norðurfirði.
Hálfsystkini, sammæðra, eru Jón, f.
19.12. 1944, vélfræðingur í Reykjavík;
Sveinn, f. 4.9. 1946, formaður Rauða
krossins; Sólveig Stefanía, f. 9.5. 1948,
ljósmóðir í Reykjavík; Arngrímur, f.
30.4. 1950, sjómaður í Bolungarvík;
Elías Svavar, f. 8.7. 1951, sjómaður á
Akranesi; Guðmundur Óli, f. 2.10.
1952, trésmiður í Bolungarvík; Guðjón
Stefán, f. 4.10. 1954, garðyrkjufræð-
ingur í Ölfusi; Benjamín, f. 7.6. 1956,
trésmiður á Þorfinnsstöðum; Óskar, f.
20.03. 1958, verkstjóri og stýrimaður á
Akranesi.
Foreldrar Vinsýjar voru Samúel
Samúelsson, f. 4.12. 1907, d. 20.2.
1942, bóndi í Bæ, og k.h., Anna Jak-
obína Guðjónsdóttir, f. 6.10. 1913, d.
4.10. 2006, bóndi í Bæ, á Dröngum og
á Seljanesi. Stjúpfaðir Sigurvinu var
Kristinn Jónsson, f. 1912, d. 2000,
bóndi á Seljanesi og Dröngum.
Sigurvina
Samúelsdóttir
Hallgrímur Halldórsson
bóndi í Stóru-Ávík
Sigríður Jónsdóttir
bóndi í Stóru-Ávík í
Árneshreppi
Samúel Hallgrímsson
bóndi í Skjaldarbjarnarvík
Jóhanna S.
Bjarnadóttir
bóndi í Skjaldar-
bjarnarvík í
Árneshreppi
Samúel Jóhann Samúelsson
bóndi í Bæ í Árneshreppi
Bjarni Bjarnason
bóndi í Skjaldar-
bjarnarvík
Sigurborg Jónsdóttir
bóndi í Skjaldarbjarnarvík
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
fyrrv. alþingis-
maður
Kristján
Guð-
jónsson,
tré- og
skipa-
smiður
á Ísafirði
Þórdís
Kolbrún
Reykfjörð
Gylfa-
dóttir
ráðherra
Friðrik Sturluson
tónlistarm. og
hljóðupptökustjóri
Sveinn
Kristins-
son
form.
Rauða
krossins
Rósa
Guðrún
Sveins-
dóttir
söngvari
og tónlist-
armaður
Þórarinn Ólafsson
kennari á Akranesi
Guðjón Arnar
Kristjánsson fyrrv.
alþingismaður
Gylfi
Reynir
Guð-
munds-
son þjón-
ustustj. á
Akranesi
ÓlafurMatthías Samúelsson b. á Bökk-
um í Furufirði, síðar verkam.á Ísaf.
Kristjón
Kormákur
Guð-
jónsson
ritstjóri
Ingibjörg
Ólafsdóttir
verslunarmað-
ur í Reykjavík
Kristín Bjarn-
ey Ólafsdóttir
ljósmóðir á
Akranesi
Þrúður Kristjáns-
dóttir fv. skólastjóri
Guðjón
Stefán
Kristins-
son garð-
yrkjufr. í
Ölfusi
Sigrún
Guðmunds-
dóttir mynd-
höggvari
Eyvind-
ur P.
Eiríks-
son
rith.
Erpur
Ey-
vindar-
son
tónlist-
arm.
Hanna Dóra
Sturludóttir
óperusöngkona
Sigríður Guðrún
Samúelsdóttir
húsfr. í Hraundal á
Langadalsströnd
Ólína Sigurðardóttir
húskona á Hafnarhólma og
Bassastöðum á Selströnd
Kristján Loftsson
húsmaður í Litlu-
Ávík, Árneshr. og
Reykjarfirði nyrðri
Guðjón Kristjánsson
bóndi í Skjaldar-
bjarnarvík
og Þaralátursfirði
Anna Jónasdóttir
bóndi í Skjaldarbjarnarvík
og Þaralátursfirði
Anna Jakobína
Guðjónsdóttir
bóndi í Bæ, á Seljanesi
og Dröngum
Jónas Eiríksson
bóndi á Þórodds-
stöðum
Kristín Guðmundsdóttir
bóndi á Þóroddsstöðum í Hrútaf., V-Hún.
Úr frændgarði Sigurvinu Samúelsdóttur
Eiríkur Guðjóns-
son b. á Búðum
og farkennari,
síðar bús. á Ísaf.
Gunnvör Rósa
Samúelsdóttir húsfr.
á Búðum í Hlöðuvík
og í Arnardal
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2017
85 ára
Íris Svala Jóhannsdóttir
Kjartan Kjartansson
Kristbjörg Jónsdóttir
Margrét Hrefna
Ögmundsdóttir
80 ára
Anna Þorbergsdóttir
Elísabet Jóna Ingólfsdóttir
Sigurvina Samúelsdóttir
75 ára
Elín Björg Magnúsdóttir
Emil Rafn Kristófersson
70 ára
Agnar G. Árnason
Guðrún Siglaugsdóttir
Halldór Sigurður
Sigdórsson
Ingibjörg Briem
Ingi Heiðmar Jónsson
Kjartan Gunnþórsson
Margrét J. Gunnarsdóttir
Ólafur Eyjólfsson
Ólafur Ófeigsson
Sigurður Trausti Þórðarson
Sigursteinn Haraldur
Hákonarson
Steinunn K. Þorsteinsdóttir
60 ára
Ágúst Ingvarsson
Einar Snorri Sigurjónsson
Guðbjörg H.
Sveinbjörnsdóttir
Sjöfn Sigurðardóttir
Ægir Magnússon
50 ára
Friðjón Ásgeir Daníelsson
Helga Dröfn Melsted
Ingimar Friðrik Jóhannsson
Jaroslaw Kaczmarek
Jón Þór Sigurðsson
Kha Thi Ngo
Maris Laugalis
Sigrún Kaja E.
Benediktsdóttir
Sveinn Stefánsson
Valdimar Jónsson
40 ára
Andrés Viðar Friðjónsson
Axel Óskarsson
Dagný Steinunn Laxdal
Dick Johannes Erinkveld
Gestur Guðrúnarson
Gróa Axelsdóttir
Grzegorz Pruszynski
Höskuldur Sæmundsson
Robert Jacukowicz
Svana Sigríður
Þorvaldsdóttir
30 ára
Anna Björk Guðbergsdóttir
Auður Díana Ósk
Eymundsdóttir
Bára Ragnhildardóttir
Berglind Óskarsdóttir
Cherry May Buenviaje
Caamic
Dagbjört Beck
Diego Björn Valencia
Fjóla Dögg Blomsterberg
Guðrún Agnes Bjarkadóttir
Herdís Eik Gunnarsdóttir
Karolina Weronika
Lazarczyk
Oskars Grinbergs
Perla Benediktsdóttir
Radka Ptácníková
Snæbjörn Marinó
Reynisson
Sólveig Edda Bjarnadóttir
Valgeir Sigmarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Andrés er Hafn-
firðingur og er húsasmið-
ur og eigandi byggingar-
félagsins Sakki.
Maki: Eva Lind Jóns-
dóttir, f. 1979, líefnafræð-
ingur hjá Actavis.
Börn: Telma Lind, f.
2003, Viktor Ernir, f.
2006, og Krista Rakel, f.
2010.
Foreldrar: Friðjón Skúla-
son, f. 1950, húsasmíða-
meistari, og Petrún Jörg-
ensen, f. 1953,
hjúkrunarfr.
Andrés Viðar
Friðjónsson
30 ára Bára er Hafnfirð-
ingur en er búsett í
Reykjavík. Hún er BS í
verkfræði og MPM í verk-
efnastjórnun og er verk-
efnastjóri hjá Greiðslu-
miðlun.
Maki: Richard Ottó
O’Brien, f. 1986, meðeig-
andi hjá hugbúnaðar-
fyrirtækinu Rue de Net.
Börn: Ragnhildur Sara, f.
2015.
Foreldrar: Ragnhildur
Sigmundsdóttir, f. 1955,
leikskólakennari.
Bára
Ragnhildardóttir
40 ára Gróa er Sandgerð-
ingur en er búsett í Njarð-
vík. Hún er aðstoðarskóla-
stjóri Akurskóla í
Innri-Njarðvík.
Maki: Auðunn Pálsson, f.
1973, verkefnastjóri hjá
Hlaðbæ Colas.
Börn: Alexandra Ýr, f.
1996, Axel Ingi, f. 2000, og
Gestur Páll, f. 2012.
Foreldrar: Axel A. Vil-
hjálmsson, f. 1959, starfar
við smíðar, og Krisbjörg G.
Ólafsdóttir, f. 1959, leik-
skólakennari.
Gróa
Axelsdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Younes Abghoui hefur varið dokt-
orsritgerð sína við Raunvísindadeild
Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
Nýstárlegir rafefnahvatar fyrir sjálf-
bæra ammóníaksframleiðslu við
herbergisaðstæður (Novel electro-
catalysts for sustainable ammonia
production at ambient conditions).
Leiðbeinandi var dr. Egill Skúlason,
prófessor við Raunvísindadeild
Háskóla Íslands.
Hönnun á sjálfbærri leið til að
framleiða ammóníak gæti leitt til
efnahagslegrar og umhverfislegrar
byltingar. Jafnvel þó að mikil framför í
átt að þessu takmarki hafi átt sér
stað síðustu ár og áratugi er í dag
enginn efnahvati til sem hvatar þetta
efnahvarf rafefnafræðilega í amm-
óníak á nýtanlegan hátt, frá lofti og
vatni við herbergishita og venjulegan
loftþrýsting. Hröð og sértæk afoxun
niturs fyrir sjálfbæra og orkulega
hagkvæma framleiðslu á ammóníaki
er lykillinn að því að hægt sé að nýta
þetta ferli fyrir vetnisgeymslu, sem
milliskref í efnaiðnaði eða til fram-
leiðslu á ólífrænum áburði sem væri
hugsanlega mesta notagildi slíkrar
aðferðar.
Í þessari doktorsritgerð er kynnt til
sögunnar reikni-
efnafræðileg
hönnun á mögu-
legum nýjum og
hagkvæmum raf-
efnahvötum,
málmnítríðum,
sem gætu fram-
kvæmt raf-
efnafræðilega
afoxun á nitursameindinni í amm-
óníak í vatnslausn við herbergis-
aðstæður og við lága rafspennu.
Skammtafræðilegir reikningar með
þéttnifellaaðferðinni (e. density func-
tional theory, DFT) eru notaðir til að
rannsaka þessa nýju tegund efna-
hvata fyrir rafefnafræðilega amm-
óníaksmyndun. Áhugaverðustu raf-
efnahvatarnir reyndust vera RuN, VN,
CrN, ZrN og NbN. Öll fimm nítríðin eru
talin vera virk og sértæk fyrir afoxun
niturs í stað þess að mynda vetnisgas
sem er samkeppnishvarf, en hvatar úr
hreinum málmum mynda frekar vetn-
isgas í stað ammóníaks. Þessi þróun-
arvinna gæti reynst mikilvægt skref í
átt að aðferð sem getur framleitt
ammóníak á ódýran hátt frá nitri and-
rúmsloftsins, vatni og rafmagni við
venjulegar umhverfisaðstæður.
Younes Abghoui
Younes Abghoui er fæddur 1981 og lauk bakkalárgráðu í efnafræði í Mashhad í
Íran. Eftir það vann hann í þrjú ár í tækni- og verkfræðideild stærsta bílaframleið-
anda Mið-Austurlanda, sem er í Íran, Iran Khodro. Að því loknu fluttist hann til
Svíþjóðar þar sem hann lauk meistaragráðu í lífefna- og lífeðlisfræðilegri efna-
fræði við Háskólann í Kalmar. Younes er núna nýdoktor við Háskóla Íslands og
vinnur að frekari rannsóknum á viðfangsefni sínu í doktorsritgerðinni.
Doktor
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
ÖFLUGUR VINNUFÉLAGI
Auðveldaðu þér vinnuna með góðum græjum
Hleðsluborvél
EY 74A2 PN2G32
Patróna: 13 mm
Rafhlaða: 18V, 2 x 3,0 Ah
Li-Ion KOLALAUS
1,8 kg
ToughTool IP
Verð:
39.200 kr.