Morgunblaðið - 01.08.2017, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2017
Bandaríska leikkonan og leikstjór-
inn Angelina Jolie, sem jafnframt er
velgjörðarsendiherra Sameinuðu
þjóðanna, vísar því á bug að hún
hafi blekkt kambódísk börn þegar
hún var að leita að leikurum fyrir
kvikmyndina First They Killed My
Father: A Daughter of Cambodia
Remembers. Þetta kemur fram í
frétt BBC þar sem vitnað er í yf-
irlýsingu frá Jolie.
Í nýlegu viðtali við Vanity Fair
lýsti Jolie því hvernig þeir sem
skipuðu í hlutverkin hafi ferðast um
fátækrahverfi og munaðarleys-
ingjahæli í landinu í leit að leik-
urum. Börnin tóku þátt í leik sem
gekk út að þau áttu að stela pen-
ingum, og ef þau náðust skyldu þau
búa til lygasögu um hvers vegna
þau stálu þeim.
„Srey Moch [sem leikur aðal-
hlutverki] var eina barnið sem
starði lengi á peningna. Þegar hún
var neydd til að skila þeim komst
hún í mikla geðshræringu […] Síðar
þegar hún var spurð til hvers hún
hefði viljað nota peningana sagði
hún að afi hennar hefði dáið og að
fjölskyldan ætti ekki nægt fé fyrir
fallegri útför,“ segir Jolie í samtali
við Vanity Fair.
„Það veldur mér miklu hugar-
angri að fjallað er um tilbúna
spunaæfing fyrir senu í myndinni
eins og það hafi verið raunveru-
leiki,“ skrifar Jolie í yfirlýsingunni.
Þar bendir hún að tilgangur mynd-
arinnar sé að vekja athygli á þeim
hryllingi sem börn á átakasvæðum
búa við með það að markmiði að
vernda þau. „Það að halda því fram
að raunverulegir peningar hafi ver-
ið teknir af börnum í áheyrnar-
prufum er bæði rangt og truflandi.
Ef þetta hefði gerst í alvörunni
hefði mér verið misboðið.“
Jolie hafnar harkaleg-
um áheyrnarprufum
AFP
Misboðið Angelinu Jolie gremst út-
úrsnúningur orða hennar í viðtali.
Stríðs- og hetjumyndin Dunkirk í
leikstjórn Christophers Nolan er sú
mynd sem mestum miðasölutekjum
skilaði um nýliðna helgi, aðra vik-
una í röð. Alls hafa ríflega 14.000
áhorfendur séð myndina sem skilað
hafa um 18,5 milljónum ísl. kr. í
kassann. Næst á listanum er Aulinn
ég 3, en þá mynd hafa tæplega 33
þúsund áhorfendur séð síðasta
mánuðinn. Valerian and the City of
a Thousand Planets í leikstjórn
Lucs Besson hafa ríflega 4.300
manns séð og Spider-man: Home-
coming hafa tæplega 23 þúsund
kvikmyndahúsagestir séð.
Dunkirk nýtur mestra
vinsælda meðal bíógesta
Bíóaðsókn helgarinnar
Dunkirk 1 2
Despicable Me 3 (Aulinn ég 3) 2 4
Valerian and the City of a Thousand Planets 3 2
Spider-man: Homecoming (2017) 4 4
War for the Planet of the Apes 5 3
Wish Upon Ný Ný
Richard the Stork Ný Ný
Baby Driver 6 5
Ég man þig 9 13
Cars 3 8 7
Bíólistinn 28.–30. júlí 2017
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
(Storkurinn Rikki)
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem
fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 17.30
Sing Street
Metacritic 79/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 18.00, 20.00
Slack Bay
Gamanmyndin fjallar um
morðgátu á norðurströnd
Frakklands um 1910.
Metacritic 66/100
IMDb 6,1/10
Bíó Paradís 22.30
Moonlight
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb7,5/10
Bíó Paradís 20.00
Heima
Bíó Paradís 20.00
Velkomin til Noregs
Bíó Paradís 22.00
Wish Upon 16
Unglingsstúlka finnur öskju
sem geymir leynda krafta og
uppgötvar að séu þeir virkj-
aðir hafa þeir dauða í för
með sér.
Metacritic 30/100
IMDb 4,7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.00
Smárabíó 17.40, 20.00,
22.20
Sambíóin Keflavík 22.20
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.40
The Bleeder 12
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 18.00,
20.20, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.20
Sambíóin Keflavík 20.00
Valerian 12
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 52/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 16.00, 19.00,
22.00
Smárabíó 19.20, 19.40,
22.40
Sambíóin Keflavík 22.20
Háskólabíó 18.00, 21.00
Baby Driver 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,3/10
Laugarásbíó 22.20
Smárabíó 22.45
Háskólabíó 21.00
Wonder Woman 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 76/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 22.00
The House 16
Faðir sannfærir vin sinn um
að stofna ólöglegt spilavíti í
kjallaranum eftir að hann og
eiginkona hans eyða há-
skólasjóði dóttur sinnar.
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00
Baywatch 12
Morgunblaðið bbnnn
Metacritic 37/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Kringlunni 22.40
Ég man þig 16
Ungt fólk sem er að gera
upp hús á Hesteyri um miðj-
an vetur fer að gruna að þau
séu ekki einu gestirnir í
þessu eyðiþorpi.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 20.00
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 22.00
Pirates of the
Caribbean: Salazar’s
Revenge 12
Jack Sparrow skipstjóri á á
brattann að sækja enn á ný
þegar illvígir draugar birtast.
Metacritic 39/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Kringlunni 20.00
All Eyez on Me 12
Metacritic 38/100
IMDb 6,1/10
Sambíóin Álfabakka 22.00
Storkurinn Rikki Unglingsspörfuglinn Richard
varð munaðarlaus við fæð-
ingu og var alinn upp af
storkum, og hann trúir því
að hann sé einn af þeim.
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 14.00,
16.00, 18.00, 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.50
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Akureyri 18.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Aulinn ég 3 Gru hittir löngu týndan tví-
burabróður sinn, hinn
heillandi, farsæla og glað-
lynda Dru, sem vill vinna
með honum að nýju illvirki.
Metacritic 55/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00
Smárabíó 15.30, 15.40,
17.45
Sambíóin Álfabakka 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00,
19.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Háskólabíó 18.00
Borgarbíó Akureyri 18.00
Bílar 3 Leiftur McQueen þarf að
víkja fyrir nýrri kynslóð hrað-
skreiðra kappakstursbíla. Til
að fá að aftur að taka þátt í
leiknum þarf hann að fá að-
stoð hjá áhugasömum
tæknimanni.
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40
Sambíóin Akureyri 17.40
Hinn ungi Peter Parker (sem við þekkjum öll sem
Spider-Man) birtist okkur fyrst í Captain America:
Civil War. Nú þarf hann að fóta sig í nýja ofurhetju-
hlutverki sínu í Spider-Man.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 73/100
IMDb 8,0/10
Smárabíó 16.20, 16.50, 19.50, 22.30
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 17.20, 22.00
Spider-Man: Homecoming 12
War for the Planet of the Apes 12
Eftir að apaflokkur Caesars verður fyrir miklum skaða í árás-
um hersveitar undir stjórn
hins illvíga Colonels ákveður
Caesar að eina vörnin sé falin í
sókn og segir Colonel og
mönnum hans stríð á hendur.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 82/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Egilshöll 18.00,
22.00
Háskólabíó 17.50, 20.50
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Dunkirk 12
Myndin fjallar um Operation Dynamo árið
1940, þegar 340 þúsund hermenn
bandamanna voru frelsaðir úr sjálfheldu.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 96/100
IMDb 9,2/10
Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40, 20.00, 21.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 21.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 18.00, 20.20, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið