Morgunblaðið - 31.08.2017, Side 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017
85
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hitabeltisstormurinn Harvey kom
að landi í Louisiana í gær eftir að
hafa valdið metrigningum og ham-
faraflóðum í grannríkinu Texas.
Fimm dögum áður hafði óveðrið,
þá skilgreint sem fellibylur, komið
að strönd suðausturhluta Texas.
Harvey hélt síðan aftur í Mexíkóflóa
og tók þar í sig meiri loftraka áður
en hann kom aftur að landi, í þetta
sinn í suðvesturhluta Louisiana.
Storminum fylgdi aftakarigning og
var meðal annars sögð hætta á flóð-
um í borginni New Orleans sem er
berskjölduð vegna þess að stór hluti
borgarinnar er undir sjávarmáli og
komið hafa upp vandamál í dælu-
kerfi sem sett var upp til að verjast
flóðum.
Ekkert lát var á úrhelli og flóðum
í Houston, fjórðu stærstu borg
Bandaríkjanna. Að minnsta kosti
fjórðungur Harris-sýslu, sem borgin
tilheyrir, er undir vatni og tugir þús-
unda húsa eru á flóðasvæðunum, að
sögn bandarískra embættismanna.
The New York Times hafði eftir
embættismönnum í Texas að minnst
30 dauðsföll væru rakin til óveðurs-
ins og flóðanna í ríkinu. Á meðal
hinna látnu er sextugur lögreglu-
maður sem drukknaði þegar hann
reyndi að mæta til vinnu á sunnu-
daginn var. Búist er við að tala lát-
inna hækki verulega þegar björg-
unarmenn komast á svæði sem hafa
einangrast í flóðunum.
Útgöngubann vegna gripdeilda
Embættismennirnir sögðu að enn
væri of snemmt að segja til um
hversu margir létu lífið, hversu
mörgum var bjargað, hversu margir
væru enn í lífshættu og hversu mörg
hús hefðu eyðilagst. Ekki er vitað
um afdrif hundraða manna en emb-
ættismennirnir leggja áherslu á að
hugsanlega hafi einhverjir þeirra
ekki aðgang að síma og geti því ekki
látið vita af því að þeir séu á lífi.
Meira en 30.000 manns hafa gist í
neyðarskýlum í Texas, meðal annars
í stórri ráðstefnumiðstöð í Houston
og í kirkjum, að sögn Brocks Long,
yfirmanns almannavarnastofnunar
Bandaríkjanna, FEMA.
Sylvester Turner, borgarstjóri
Houston, setti útgöngubann sem á
að gilda í borginni á næturnar í
óákveðinn tíma. Aðeins lögreglu-
menn, bráðaliðar, slökkviliðsmenn,
björgunarmenn og fólk sem þarf að
vinna á næturnar mega vera á ferli á
götunum frá miðnætti til klukkan
fimm um morguninn að staðartíma.
Lögreglan í Houston óskaði eftir
útgöngubanninu, meðal annars til að
koma í veg fyrir gripdeildir og aðra
glæpi eftir að skýrt var frá því að
dæmi væru um að fólk notfærði sér
flóðin til að láta greipar sópa um
mannlaus hús. Lögreglustjóri borg-
arinnar sagði að útgöngubannið
auðveldaði einnig björgunarmönn-
um að komast um göturnar án
hindrana.
Vatn hefur flætt úr tveimur stíflu-
görðum (Addicks og Barker) sem
reistir voru við vesturjaðar Houston
til að verjast flóðum. Vatn streymdi
þaðan inn á íbúðasvæði sem hafa
aldrei áður orðið fyrir flóðum.
Að minnsta kosti ein brú hefur
hrunið og stíflugarður sunnan við
Houston brast í fyrradag.
Setti úrkomumet
Bandaríska veðurstofan sagði að
Harvey hefði valdið meiri úrkomu
en nokkur dæmi væru um á meg-
inlandi Bandaríkjanna frá því að
mælingar hófust. Úrkoman mældist
um 1,3 metrar í Cedar Bayou, aust-
an við Houston. Fyrra úrkomumet á
meginlandinu var um 1,22 metrar,
en það var í Medina í Texas vegna
hitabeltisstormsins Amelíu árið
1978. Bandaríska veðurstofan segir
að úrkoma hafi aðeins mælst meiri í
Havaí, en það var vegna fellibylsins
Hiki árið 1950 þegar úrkoman
mældist 1,32 metrar. Þar sem úr-
hellinu, sem fylgdi Harvey, er ekki
lokið er hugsanlegt að hann slái það
met einnig.
Lögreglustjóri Harris-sýslu sagði
að lögreglu- og slökkviliðsmenn í
Houston hefðu bjargað um 7.000
manns frá því að óveðrið hófst í vik-
unni sem leið, mörgum þeirra af
þökum húsa og bíla. Auk þeirra hafa
sjálfboðaliðar og þjóðvarðliðar
bjargað mörgum íbúanna.
Ríkisstjóri Texas hefur kallað út
alla þjóðvarðliða ríkisins, alls um
12.000 manns, vegna óveðursins. Að
meðtöldum varðliðum frá öðrum
ríkjum er talið að alls um 30.000
þjóðvarðliðar taki þátt í björgunar-
starfinu, að sögn The New York
Times.
Veðurfræðingur sögðu að veðrið
færi batnandi í Texas og spáðu sól-
skini í Houston á næstu dögum. Tal-
ið er þó að nokkrir dagar líði þar til
flóðunum lýkur, að sögn banda-
rískra fjölmiðla.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
og eiginkona hans fóru í fyrrakvöld
til Corpus Christi þar sem Harvey
kom að landi á föstudaginn var. For-
setinn kvaðst vilja að staðið yrði bet-
ur að björgunarstarfinu vegna óveð-
ursins en nokkru sinni fyrr í sögu
Bandaríkjanna. „Við viljum gera
þetta betur en nokkru sinni fyrr,“
sagði hann. „Þegar litið verður til
baka, eftir fimm eða tíu ár, viljum
við að sagt verði að svona eigi að
gera þetta.“
Stór svæði enn undir vatni
Minnst 30 manns létu lífið í Texas en
yfirvöld óttast að tala látinna hækki
verulega Harvey herjar á Louisiana Íbúafjöldi: 2,3millj.Helstu götur og þjóðvegir þar semmikil flóð hafa veriðMannvirki sem hafa skemmst eða verið rýmd
Byggist á
upplýsingum
semMatt
Dempsey,
blaðamaður
Houston
Chronicle,
safnaði
Hamfaraflóð í Houston
Heimildir: Openstreetmap.org/fjölmiðlar í Bandaríkjunum/Houston Chronical/Fellibyljastofnun Bandaríkjanna
10 km
Galveston
Baytown
Pasadena
Houston
Mexíkó-
flói
Addicks
stíflugarður
Barker
stíflugarður
Brazos-
fljót
Buffalo Bayou Trinity-
flói
Galverston-flói
BANDA-
R ÍK IN
George Bush
alþjóða-
flugvöllur
Vatnshreinsi-
stöð
Ben Taub-
sjúkrahúsið
Texas Medical Center
lokaður
Hætt við
rýmingu
í fyrradag
Flóðvarnabúnaður
settur í gang
Bayshore
lækningamiðstöð
rýmd
La Vita Bella
Hjúkrunar-
heimili rýmt
KHOU 11
sjónvarpsmyndver
Hobby-
alþjóða-
flugvöllurinn
lokaður
rýmt
umflotin vatni
Vatnshreinsi-
stöð
skemmdist
ExxonMobil hreinsunarstöð
lokuð
AFP
Björgun Houston-búar fara úr báti sem sjálfboðaliðar nota til að flytja fólk
af flóðasvæðunum. Þúsundir sjálfboðaliða taka þátt í björgunarstarfinu.
AFP
Heimsókn Donald Trump forseti í
Corpus Christi í Texas.
Raskar olíuframleiðslu
» Um 20% af hráolíufram-
leiðslu Bandaríkjanna er við
strönd Mexíkóflóa og nokkrar
olíuhreinsunarstöðvar í Texas
hafa lokast vegna óveðursins,
að sögn AFP.
» Óveðrið getur haft áhrif á
olíuverð úti um allan heim og
raskað olíuflutningum til landa
á borð við Mexíkó sem flytja
inn mikið af olíu frá Bandaríkj-
unum, að sögn The Wall Street
Journal.