Morgunblaðið - 31.08.2017, Síða 16

Morgunblaðið - 31.08.2017, Síða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017 85 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hitabeltisstormurinn Harvey kom að landi í Louisiana í gær eftir að hafa valdið metrigningum og ham- faraflóðum í grannríkinu Texas. Fimm dögum áður hafði óveðrið, þá skilgreint sem fellibylur, komið að strönd suðausturhluta Texas. Harvey hélt síðan aftur í Mexíkóflóa og tók þar í sig meiri loftraka áður en hann kom aftur að landi, í þetta sinn í suðvesturhluta Louisiana. Storminum fylgdi aftakarigning og var meðal annars sögð hætta á flóð- um í borginni New Orleans sem er berskjölduð vegna þess að stór hluti borgarinnar er undir sjávarmáli og komið hafa upp vandamál í dælu- kerfi sem sett var upp til að verjast flóðum. Ekkert lát var á úrhelli og flóðum í Houston, fjórðu stærstu borg Bandaríkjanna. Að minnsta kosti fjórðungur Harris-sýslu, sem borgin tilheyrir, er undir vatni og tugir þús- unda húsa eru á flóðasvæðunum, að sögn bandarískra embættismanna. The New York Times hafði eftir embættismönnum í Texas að minnst 30 dauðsföll væru rakin til óveðurs- ins og flóðanna í ríkinu. Á meðal hinna látnu er sextugur lögreglu- maður sem drukknaði þegar hann reyndi að mæta til vinnu á sunnu- daginn var. Búist er við að tala lát- inna hækki verulega þegar björg- unarmenn komast á svæði sem hafa einangrast í flóðunum. Útgöngubann vegna gripdeilda Embættismennirnir sögðu að enn væri of snemmt að segja til um hversu margir létu lífið, hversu mörgum var bjargað, hversu margir væru enn í lífshættu og hversu mörg hús hefðu eyðilagst. Ekki er vitað um afdrif hundraða manna en emb- ættismennirnir leggja áherslu á að hugsanlega hafi einhverjir þeirra ekki aðgang að síma og geti því ekki látið vita af því að þeir séu á lífi. Meira en 30.000 manns hafa gist í neyðarskýlum í Texas, meðal annars í stórri ráðstefnumiðstöð í Houston og í kirkjum, að sögn Brocks Long, yfirmanns almannavarnastofnunar Bandaríkjanna, FEMA. Sylvester Turner, borgarstjóri Houston, setti útgöngubann sem á að gilda í borginni á næturnar í óákveðinn tíma. Aðeins lögreglu- menn, bráðaliðar, slökkviliðsmenn, björgunarmenn og fólk sem þarf að vinna á næturnar mega vera á ferli á götunum frá miðnætti til klukkan fimm um morguninn að staðartíma. Lögreglan í Houston óskaði eftir útgöngubanninu, meðal annars til að koma í veg fyrir gripdeildir og aðra glæpi eftir að skýrt var frá því að dæmi væru um að fólk notfærði sér flóðin til að láta greipar sópa um mannlaus hús. Lögreglustjóri borg- arinnar sagði að útgöngubannið auðveldaði einnig björgunarmönn- um að komast um göturnar án hindrana. Vatn hefur flætt úr tveimur stíflu- görðum (Addicks og Barker) sem reistir voru við vesturjaðar Houston til að verjast flóðum. Vatn streymdi þaðan inn á íbúðasvæði sem hafa aldrei áður orðið fyrir flóðum. Að minnsta kosti ein brú hefur hrunið og stíflugarður sunnan við Houston brast í fyrradag. Setti úrkomumet Bandaríska veðurstofan sagði að Harvey hefði valdið meiri úrkomu en nokkur dæmi væru um á meg- inlandi Bandaríkjanna frá því að mælingar hófust. Úrkoman mældist um 1,3 metrar í Cedar Bayou, aust- an við Houston. Fyrra úrkomumet á meginlandinu var um 1,22 metrar, en það var í Medina í Texas vegna hitabeltisstormsins Amelíu árið 1978. Bandaríska veðurstofan segir að úrkoma hafi aðeins mælst meiri í Havaí, en það var vegna fellibylsins Hiki árið 1950 þegar úrkoman mældist 1,32 metrar. Þar sem úr- hellinu, sem fylgdi Harvey, er ekki lokið er hugsanlegt að hann slái það met einnig. Lögreglustjóri Harris-sýslu sagði að lögreglu- og slökkviliðsmenn í Houston hefðu bjargað um 7.000 manns frá því að óveðrið hófst í vik- unni sem leið, mörgum þeirra af þökum húsa og bíla. Auk þeirra hafa sjálfboðaliðar og þjóðvarðliðar bjargað mörgum íbúanna. Ríkisstjóri Texas hefur kallað út alla þjóðvarðliða ríkisins, alls um 12.000 manns, vegna óveðursins. Að meðtöldum varðliðum frá öðrum ríkjum er talið að alls um 30.000 þjóðvarðliðar taki þátt í björgunar- starfinu, að sögn The New York Times. Veðurfræðingur sögðu að veðrið færi batnandi í Texas og spáðu sól- skini í Houston á næstu dögum. Tal- ið er þó að nokkrir dagar líði þar til flóðunum lýkur, að sögn banda- rískra fjölmiðla. Donald Trump Bandaríkjaforseti og eiginkona hans fóru í fyrrakvöld til Corpus Christi þar sem Harvey kom að landi á föstudaginn var. For- setinn kvaðst vilja að staðið yrði bet- ur að björgunarstarfinu vegna óveð- ursins en nokkru sinni fyrr í sögu Bandaríkjanna. „Við viljum gera þetta betur en nokkru sinni fyrr,“ sagði hann. „Þegar litið verður til baka, eftir fimm eða tíu ár, viljum við að sagt verði að svona eigi að gera þetta.“ Stór svæði enn undir vatni  Minnst 30 manns létu lífið í Texas en yfirvöld óttast að tala látinna hækki verulega  Harvey herjar á Louisiana Íbúafjöldi: 2,3millj.Helstu götur og þjóðvegir þar semmikil flóð hafa veriðMannvirki sem hafa skemmst eða verið rýmd Byggist á upplýsingum semMatt Dempsey, blaðamaður Houston Chronicle, safnaði Hamfaraflóð í Houston Heimildir: Openstreetmap.org/fjölmiðlar í Bandaríkjunum/Houston Chronical/Fellibyljastofnun Bandaríkjanna 10 km Galveston Baytown Pasadena Houston Mexíkó- flói Addicks stíflugarður Barker stíflugarður Brazos- fljót Buffalo Bayou Trinity- flói Galverston-flói BANDA- R ÍK IN George Bush alþjóða- flugvöllur Vatnshreinsi- stöð Ben Taub- sjúkrahúsið Texas Medical Center lokaður Hætt við rýmingu í fyrradag Flóðvarnabúnaður settur í gang Bayshore lækningamiðstöð rýmd La Vita Bella Hjúkrunar- heimili rýmt KHOU 11 sjónvarpsmyndver Hobby- alþjóða- flugvöllurinn lokaður rýmt umflotin vatni Vatnshreinsi- stöð skemmdist ExxonMobil hreinsunarstöð lokuð AFP Björgun Houston-búar fara úr báti sem sjálfboðaliðar nota til að flytja fólk af flóðasvæðunum. Þúsundir sjálfboðaliða taka þátt í björgunarstarfinu. AFP Heimsókn Donald Trump forseti í Corpus Christi í Texas. Raskar olíuframleiðslu » Um 20% af hráolíufram- leiðslu Bandaríkjanna er við strönd Mexíkóflóa og nokkrar olíuhreinsunarstöðvar í Texas hafa lokast vegna óveðursins, að sögn AFP. » Óveðrið getur haft áhrif á olíuverð úti um allan heim og raskað olíuflutningum til landa á borð við Mexíkó sem flytja inn mikið af olíu frá Bandaríkj- unum, að sögn The Wall Street Journal.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.