Morgunblaðið - 31.08.2017, Side 30

Morgunblaðið - 31.08.2017, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Listahátíðin Cycle var fyrst haldin 2015 og var upphaflega hugsuð sem vettvangur samtals milli myndlistar og tónlistar. Með hátíðinni í ár er- um við að víkka hugtakið og fara sterkar inn í þematengingu þar sem fókusinn er á 100 ára fullveld- isafmæli Íslands á næsta ári,“ seg- ir Guðný Þóra Guðmundsdóttir, framkvæmda- stjóri og listrænn stjórnandi Cycle sem hefst í Gerðarsafni á morgun undir yf- irskriftinni Cycle – Fullvalda ný- lenda og stendur út septembermán- uð. Guðný stofnaði Cycle ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara og Fjólu Dögg Sverrisdóttur, fram- kvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Hún lýsir hátíðinni í ár sem þverfaglegu verkefni þar sem lögð er áhersla á skapandi ferli og tilraunastarfsemi frá samfélagslegu sjónarhorni. „Í samstarfi við Söru S. Öldudótt- ur, annan sýningarstjóra hátíðar- innar í ár, hefur nú verið sleginn nýr tónn með aukinni áherslu á samfélagslegt gildi viðburðarins. Verkefnið byggist á alþjóðlegu sam- starfi en miðast sérstaklega við Grænland, Færeyjar og Ísland og tengsl þessara landa við Danmörku í nútíð og fortíð,“ segir Guðný og bendir á að helstu bakhjarlar hátíð- arinnar í ár séu Kópavogsbær og norrænu menningarsjóðirnir auk annarra alþjóðlegra sjóða. Á jafningjagrundvelli Á tímabilinu frá 1. september til 24. september verður boðið upp daglega viðburði, en þar er m.a. um að ræða vinnustofur, fyrirlestra, kvikmyndasýningar, tónleika, kvik- spuna, gjörninga, umræður og opna kvöldverði, en tæmandi dagskrá má nálgast á vefnum cycle.is. „Við notum Gerðarsafn sem um- ræðutorg þar sem listamenn, fræðafólk og almennir borgarar geta skipst á skoðunum og reynslu á jafningjagrundvelli. Markmiðið er að veita listamönnum innblástur fyrir þróun og sköpun nýrra lista- verka sem verða sýnd á ári fullveldisafmælisins,“ segir Guðný og tekur fram að hátíðin sé ekki síst hugsuð fyrir almenning, enda eitt markmiðið að miðla því sem fram fer til nærsamfélagsins. „Við bjóð- um fólki til leiks, bæði sem áhorf- endur og þátttakendur,“ segir Guðný og tekur fram að annað mik- ilvægt markmið hátíðarinnar sé að efla menningarsamstarf vestnor- rænu þjóðanna. Markast af sjálfstæðisþrá Meðal umræðuefna sem verða fyrirferðarmikil á hátíðinni eru spurningar um fullveldi, þjóðar- ímynd, þjóðerniskennd, sjálfstæði og söguna. „Mál tengd fullveldi og sjálfstæði eru miðlæg í okkar nán- asta umhverfi og stjórnmál á vest- norræna svæðinu markast af sjálf- stæðisþrá,“ segir í yfirlýsingu hátíðarinnar. Er í því samhengi bent á að Færeyingar áætla að ganga til þjóðaratkvæða í apríl á næsta ári um það hvort þeir eigi að taka upp eigin stjórnarskrá og á Grænlandi var nýlega stofnað sér- stakt ráðuneyti sjálfstæðismála auk þess sem hafin er þar vinna við að semja stjórnarskrá fyrir Grænland. Tekur ekki pólitíska afstöðu Í yfirlýsingu hátíðarinnar segir einnig að hátíðin byggist ekki á pólitískri afstöðu til sjálfstæðismála heldur á mikilvægi virkra tengsla sjálfstæðisbaráttu við menningu og sjálfsmyndir íbúa á svæðinu. „Áhugavert er að bera þessi tengsl sjálfstæðisbaráttu og þjóðernis- hugmynda saman við þróun stjórn- mála í heiminum þar sem þjóðernis- öflum vex ásmegin og kallað er eftir endurheimt fullveldis Evrópuríkja og endurreisn þjóðarstolts. Aukinn stuðningur við þjóðernispópúlískar stjórnmálahreyfingar er um leið ógn við lýðræðið og afleiðing af lýð- ræðisvanda okkar tíma.“ Hrærir upp í listheiminum Þátttakendur hátíðarinnar koma víða að, ekki aðeins frá vestnor- rænu löndunum heldur einnig Þýskalandi og Kína, svo dæmi séu nefnd. „Hong Kong New Music En- semble kemur fram á tónleikum með Tinnu Þorsteinsdóttur í Gerðarsafni 23. september kl. 20 þar sem flutt verða verk eftir m.a. Lam Lai og Sigurð Guðjónsson. Bandaríski myndlistarmaðurinn Andrew Ranville sýnir stórt verk sem samanstendur af fánum ör- landa sem hafa á einhverjum tíma- punkti í sögunni sóst eftir fullveldi, en mistekist. Libia Castro og Ólafur Ólafsson sýna nýtt verk þar sem fimm íslenskar stjórnarskrár eru sýndar almenningi í fyrsta sinn,“ segir Guðný og bendir á að í því samhengi verði föstudaginn 22. september kl. 19.30 efnt til fjölda- fundar í Gerðarsafni um stjórn- arskrármál sem Guðni Th. Jóhann- esson, forseti Íslands og sagnfræðingur, setur. „Til sýnis í safninu verður vídeó- listaverk efir Jeannette Ehlers, danska listakonu ættaða úr Karíba- hafinu, þar sem hún beinir sjónum að nýlendusögu Dana. Grænlenski rapparinn Josef Tarrak Petrussen kemur ásamt raftónlistarmanninum Aqqalu Berthelsen, sem gengur undir listamannsnafninu, Uyarakq fram á rapptónleikum á Kex hosteli 6. september kl. 20. Josef er aðeins 18 ára gamall, en hefur þegar vakið mikla athygli fyrir beitta texta sína þar sem hann fjallar um þjóðfélags- mál á Grænlandi og vandasöm sam- skipti Grænlands og Danmerkur. Hann er mjög flottur strákur sem hefur verið að hræra upp í listheim- inum. Seinasta uppákoman verður 24. september þar sem hollensk/ breska listakonan Rosie Heinrich sýnir verk sem fjallar um sjálfmynd Íslendinga eftir efnahagshrunið,“ segir Guðný. Af öðrum listahópum sem þátt taka má nefna Gjörningaklúbbinn og S.L.Á.T.U.R. Allar nánari upplýsingum um þátttakendur og tæmandi dagskrá má nálgast á fyrrnefndum vef hátíð- arinnar, cycle.is. Nota Gerðarsafn sem umræðutorg  Listahátíðin Cycle hefst á morgun undir yfirskriftinni Fullvalda nýlenda  Markmiðið að skapa umræðuvettvang fyrir listamenn, fræðafólk og almenning  Rýnt í sjálfstæði, þjóðarímynd og sögu Stjórnarskráin Libia Castro og Ólafur Ólafsson sýna nýtt verk þar sem fimm íslenskar stjórnarskrár eru sýndar almenningi í fyrsta sinn. Rappari Josef Tarrak Petrussen er aðeins 18 ára gamall, en hefur vakið mikla athygli fyrir skarpa texta sína þar sem hann fjallar um þjóðfélagsmál. Guðný Þóra Guðmundsdóttir Fyrsta sýning á gamanleikritinu Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones í þýðingu Guðna Kolbeins- sonar verður í kvöld kl. 19.30 á stóra sviði Þjóðleikhússins. Verkið var frumsýnt í leikhúsinu árið 2000, í leikstjórn Ians McElhinneys, og naut mikilla vinsælda, sýningar urðu alls 180 og áhorfendur 40.000. Verkið var sett upp aftur árið 2012 og sáu það þá um 10.000 manns. Líkt og í fyrri uppfærslum fara Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson með öll hlutverk verksins, 14 talsins og McElhin- neys snýr einnig aftur sem leik- stjóri. Verkið segir af tveimur mönnum sem ráða sig sem aukaleikara í Hollywood-kvikmynd sem verið er að taka upp nærri litlu þorpi á Ír- landi. Fljótlega setur starfsemi kvik- myndafyrirtækisins allt á annan endann og von bráðar eiga sér stað árekstrar á milli lífs Hollywood- stjarnanna og hversdagsleika sveita- fólksins, eins og segir á vef Þjóðleik- hússins. Árekstrarnir séu margir hverjir afar spaugilegir en geti einn- ig haft alvarlegar afleiðingar. Morgunblaðið/Árni Sæberg 17 ár Hilmir Snær og Stefán Karl á sviði árið 2000 í Með fulla vasa af grjóti. Hilmir og Stefán Karl snúa aftur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.