Fréttatíminn - 04.02.2017, Page 12

Fréttatíminn - 04.02.2017, Page 12
Smith & Norland er framúrskarandi fyrirtæki Smith & Norland hlaut fyrir stuttu viðurkenningu Creditinfo fyrir að hafa verið Framúrskarandi fyrirtæki árið 2016. Creditinfo framkvæmir árlega fjárhagslegt styrk- og stöðugleikamat á fyrirtækjum landsins. Með tilliti til ársins 2016 uppfylla 1,7% allra íslenskra fyrirtækja þau skilyrði sem Creditinfo setur þeim til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki. Við erum stolt af árangri fyrirtækisins og þakklát fyrir þessa viðurkenningu. 12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 4. febrúar 2017 fengið til sín um 5 prósent af því sem kemur inn í Bílastæðasjóð, á fjórða tug milljóna, og heldur úti embætti miðborgarstjóra, Jakobs Frímanns Magnússonar. Til sam- anburðar hafi Íbúasamtökin feng- ið 200 þúsund á ári í styrk frá borginni. Þetta fyrirkomulag heyrir þó sögunni til, enda þótti það ekki góð stjórnsýsla og nýtt fyrirkomulag á að tryggja að fleiri geti sótt fé til góðra verka í miðborginni. Lengi hefur verið í undirbúningi sérstakt samráð um miðborgina og málefni hennar. Sigurður Björn Blöndal borgarfulltrúi hefur farið fyrir því en lagt er til að sett verði sérstök verkefnastjórn yfir mið- borgina frá áramótum og ráðinn verkefnastjóri til að sinna því starfi frá skrifstofu borgarstjóra. Höfuð- áhersla er á samráð við alla sem eiga hagsmuna að gæta. Búið er að auglýsa eftir verkefnastjóra, en það sótti talsverður fjöldi um starf- ið. Bæði Íbúasamtökin og fulltrúar rekstraraðila, eða Miðborgin okk- ar, eiga að hafa áheyrnarrétt í ver- kefnastjórninni sem verður undir stjórn borgarritara. Hávaðinn er verstur – Benóný Ægisson, formaður Íbúasamtakanna „Það eru eiginlega allir flúnir í nánasta umhverfi við mig,“ segir Benóný Æg- isson, formaður Íbúasamtaka miðborgarinnar. „Fólk er að flýja næturlífið eða þá að það er hreinlega keypt í burtu.“ Benóný segir að það hafi verið búið á átta stöðum, allt í kringum hann, neðst á Skólavörðustíg, í Bankastræti og neðst í Ingólfsstræti. Nú sé hann einn eftir með fasta búsetu. Hitt sé allt leigt til ferðamanna. „Hávaðinn er verstur frá stöðum sem eru með allt í botni. Þá hangir fólk utandyra til að reykja eða hérna úti á bílastæðinu til að fá sér í pípu eða í nös. Ég get nánast teygt mig í fimm skemmtistaði hérna út um gluggann og maður skilur því að fólk gefist upp á þessu. Það hefur þó skánað að undanförnu, kannski vegna þess að það hefur orðið árekstur milli ferðaþjónustunnar og eigenda nætur- klúbba. Það er öllum sama um íbúanna.“ Benóný segir að borgaryfirvöld hafi valdið miklum vonbrigðum í þessu máli og borgarstjóri og formaður umhverfis- og skipulagsnefndar, sem sjálfir búi í miðbænum, séu síst betri en aðrir. Á hátíðastundum séu íbúarnir í for- gangi, en ekki þegar kemur að því að taka ákvarðanir. „Skipulagsyfirvöld gera ekkert til að sporna við þessu. Ekki nokkurn skap- aðan hlut. Þetta lendir á okkur eins og holskefla og fólk hrekst í burtu. Hann segir að verktakar hafi verið afar frekir til fjörsins í miðborginni og reynt að koma fyrir hóteli á annarri hvorri þúfu. „Menn hafa lokað götum, þrengt að umferð, byggt alltof stórt, byggt fyrir sólarljós, brotið klöpp fleiri metra niður í jörðina og notað í það nokkra mánuði með þeim afleiðingum að fólk gekk af göflunum. Þetta bætist við óþægindin af fjölguninni í miðbæn- um, aukið næturlíf, umferð langferðabíla, tíu þúsund bílaleigubílar sem er lagt hér allar nætur og veldur því að íbúar sem koma heim eftir átta á kvöldin þurfa nánast að leggja bílunum sínum í úthverfunum.“ Benóný bendir á að fjölgunin hafi einnig jákvæðar hliðar. Kaffihúsum og veitingahúsum hafi fjölgað og það hafi í för með sér meiri fjölbreytni. Það sé hinsvegar orðið svo dýrt að fara út að borða að venjulegt fólk hafi varla efni á því. Íbúðir hafi rokið upp í verði sem verði til þess að ungt fólk með börn eigi þess ekki kost að setjast að í miðborginni. „Það verður til þess að það fækkar í skólunum og á leikskólunum og andinn í hverfinu verður allt annar. Á ein- hverjum tímapunkti hættir fólk að nenna þessu. Ég veit til dæmis að börnin mín hefðu ekki efni á að búa hérna.“ Hann bendir á að þetta ryðji líka smám saman í burtu sérhæfðri verslun og þjónustu sem hafi gefið miðborginni sjarma. „Þegar ég flutti á Skólavörðu- stíginn var allt fullt af litlum skemmtilegum verslunum sem eigendurnir höfðu ekki efni á að hafa á Laugaveginum, núna eru þær flestar búnar að leggja upp laupana og komnar lundabúðir í staðinn.“ En of seint að bjarga miðborginni, að hans mati? „Ég held að við klúðrum þessu ferðamannaævintýri með græðgi og okri. Við vinnum ekki heimavinnuna sem er nauðsynleg til að hægt sé að taka vel á móti fólki. Þegar ferðamennirnir hætta að koma, þá koma íbúarnir kannski aftur,“ segir Benóný. Benóný Ægisson segist geta teygt sig út um eldhúsgluggann í eina fimm skemmtistaði. Mynd | Hari Meira kvartað yfir rútum Nokkrir viðmælendur Fréttatím- ans úr hópi íbúa segja of mikið gert úr svokallaðri AirBnB væðingu, enda sé sáralítil truflun frá henni. Það sé aðallega verið að bregðast við henni til að bjarga fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Ný lög frá Alþingi þar sem fólki er heimilt að leigja eignir sínar í 90 daga á ári án þess að það teljist atvinnustarfsemi á að bjarga miklu. Þá segir Sigurður Björn Blöndal að það sé verið að setja stranga kvóta á hversu mörg hótel megi rísa í hverfum mið- borgarinnar. „Miðborgin er auðvitað mjög lif- andi svæði, en staðreyndin er sú Benóný Ægisson kærði reykinga- pallana utan á veitingahúsinu Prikinu, en eftir að reykingabannið tók gildi færðist skemmtanahald að miklu leyti út á götu, svalir eða palla húsa, líkt og þessa sem voru byggðir í kjölfarið. Hann kærði til byggingafulltrúa að veitt hefði verið leyfi til slíkrar viðbyggingar án grenndarkynningar og spurði hvernig það samræmdist friðlýs- ingu hússins sem er frá 1864. Þá kom í ljós að aldrei hafði verið veitt leyfi fyrir svölunum. Í kjöl- farið á því gaf byggingafulltrúi út svokallað afturvirkt leyfi. Benóný kærði það til úrskurðarnefndar skipulags og byggingarmála sem felldi það úr gildi árið 2013. Þar stendur síðan málið fast því hvergi er kveðið á um hvernig fram- fylgja eigi úrskurðinum. Á meðan djamma viðskiptavinir Priksins og djúsa á svölunum. Þessi mynd Hjálmtýs Heiðdal birtist í Fréttatímanum í fyrra þegar upp úr sauð við Grettisgötu. Byggingaverktakar hafa verið frekir til fjörsins að mati íbúa og sýnt íbúum yfirgang. að við fáum fleiri kvartanir vegna rútubíla en skemmtistaða.“ Hann segir að það sé í forgangi að verja mannlífið í miðborginni, fólki hafi fjölgað en það sé rétt að samsetning íbúanna sé að breyt- ast. „Það er þó ekki enn orðið þannig að það hafi fækkað að ráði í skólum eða leikskólum á svæð- inu,“ segir Sigurður Björn. Svörin sem íbúarnir fá þegar þeir reyna að kvarta yfir því að það sé verið að fjölga næturklúbb- um í næsta nágrenni, er að eigend- ur húsanna í miðborginni verði að fá að nýta eignir sínar á eðlilegan hátt. „Réttur íbúanna er hinsvegar enginn. Það þykir óhugsandi að fólk fái að nýta heimili sin til að sofa,“ segir kona sem valdi að flytja úr miðborginni eftir áratuga bú- setu þar. Sumstaðar í miðborginni eru friðuð íbúðarhús nánast ofan í skemmtistöðum sem eru rekn- ir í gömlum timburhúsum með einföldu gleri. Staðirnir eru jafn- vel opnir alla nóttina og íbúarnir kvarta fyrir daufum eyrum und- an hávaða, sóðaskap og jafnvel ofbeldi. Bent er á að víðast hvar í stórborgum, þar sem sé blönduð byggð, séu mjög ákveðnar regl- ur um opnunartíma og starfsemi næturklúbba eftir miðnætti sé ekki innan um íbúðarhús. Sigurður Björn Blöndal segir að það séu ávallt mun rýmri heimildir til skemmtanahalds í miðborgum en annars staðar. „Ég get ekki lof- að því að það verði komið í veg fyr- ir alla árekstra eigenda skemmti- staða og íbúa á þessu svæði enda varla hægt. Við vonumst þó til að það verði hægt að draga mjög úr slíkum árekstrum.“

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.