Víkurfréttir - 27.05.2004, Qupperneq 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MUNDI
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
➤ Útskrift frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja:
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
421 0000
Það lesa mig allir!
S kólaslit haustannar ogbrautskráning Fjöl-brautaskóla Suðurnesja
fór fram laugardaginn 22. maí.
Að þessu sinni útskrifuðust 77
nemendur; 48 stúdentar, 17
iðnnemar, 4 útskrifuðust af
starfsnámsbrautum og einn af
starfsbraut. Nokkrir nemend-
ur brautskráðust af tveimur
eða fleiri námsbrautum. Karl-
ar voru 35 en konur 42. Alls
komu 57 úr Reykjanesbæ, 7 úr
Garði, 5 komu úr Grindavík og
Sandgerði og einn úr Vogum.
Nemendur úr sveitarfélögum
utan Suðurnesja voru tveir,
einn úr Reykjavík og einn frá
Siglufirði.
Við athöfnina voru veittar viður-
kenningar fyrir góðan námsár-
angur. Rut Skúladóttir fékk gjöf
frá Bókabúð Keflavíkur fyrir
góðan árangur á stúdentsprófi,
frá Eddu Miðlun fyrir góðan ár-
angur í íslensku, frá Iðnú Bóka-
útgáfu fyrir árangur í þýsku og
þá fékk hún viðurkenningu frá
Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir
góðan árangur í stærðfræði. Rut
fékk einnig viðurkenningar frá
skólanum fyrir árangur sinn í
stærðfræði, raungreinum og
sögu. Elmar Eðvaldsson fékk
viðurkenningu fyrir árangur í
stærðfræði og auk þess gjöf frá
danska sendiráðinu fyrir góðan
árangur í dönsku. Lórý Benja-
mínsdóttir fékk viðurkenningar
fyrir árangur sinn í spænsku og
ensku, Elva Björk Elvarsdóttir
fyrir sálfræði, Arna Atladóttir
fyrir myndlist og Jóhanna Árna-
dóttir fyrir árangur í samfélags-
greinum. Kristín Rúnarsdóttir
fékk viðurkenningu fyrir góðan
árangur í ensku og fékk auk þess
sérstaka viðurkenningu fyrir frá-
bær störf við söngleikinn Bláu
augun þín.
Að venju veitti Sparisjóðurinn í
Keflavík nemendum skólans við-
urkenningar fyrir góðan námsár-
angur og afhenti Ásdís Ýr Jak-
obsdóttir þær fyrir hönd Spari-
sjóðsins. Að þessu sinni hlaut
Rut Skúladóttir viðurkenningu
fyrir hæstu einkunn á stúdents-
prófi og hún hlaut einnig viður-
kenningar fyrir árangur sinn í
stærðfræði og raungreinum og ís-
lensku. Kristín Rúnarsdóttir hlaut
viðurkenningu fyrir bestan ár-
angur í tungumálum.
Við lok athafnarinnar veitti Ólaf-
ur Jón Arnbjörnsson skólameist-
ari Þórunni Friðriksdóttur gull-
merki FS en Þórunn hefur kennt
við skólann í 25 ár. Einnig var
Guðbjörg Aðalbergsdóttir fyrr-
verandi áfangastjóri kvödd en
hún lét af störfum um síðustu
áramót.
Rut Skúladóttir með
hæstu einkunn frá FS
stuttar
f r é t t i r
Mikill áhugi á lóðum
í Tjarnarhverfi
Um fimmtíu umsóknirum lóðir í Tjarnarhverfií Innri-Njarðvík voru
teknar til afgreiðslu á fundi
umhverfis- og skipulagsnefnd-
ar í síðustu viku. Á síðasta
fundi nefndarinnar voru af-
greiddar rúmlega 200 umsókn-
ir um lóðir í hverfinu en alls
verða um 500 lóðir í boði.
Steinþór Jónsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsnefndar
Reykjanesbæjar, sagði á fundi
bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að
mikill áhugi væri fyrir lóðum í
hinu nýja hverfi og hefðu þessar
undirtektir komið skemmtilega á
óvart.
Hasspípa fannst á Grænási
Þessi heimagerða hasspípa fannst í
vegakanti uppi á Grænási á dögunum.
Vegfarandi rak augun í gripinn og
hafði samband við lögreglu sem hugð-
ist sækja áhaldið. Nokkuð hefur borið á
því að undanförnu að slík tól finnist á
víðavangi í Reykjanesbæ.
Bíll valt við Grænás
B ifreið valt á laugardags-morgun við Grænásvegí Reykjanesbæ. Bifreið-
in stórskemmdist og var flutt
burtu með kranabifreið. Öku-
maður var einn í bifreiðinni og
var hann fluttur til skoðunar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Ökumaðurinn var ómeiddur.
22. tbl. 2004 leidr 26.5.2004 16:46 Page 4