Víkurfréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 29
13
S É R B L A Ð U M H E I L B R I G Ð I S S T O F N U N S U Ð U R N E S J A
S igurður Þór Sigurðarson læknir tek-ur í sumar við yfirlæknisstöðu á lyf-lækningasviði Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja. Sigurður lærði lyflækningar í
Iowa fylki í Bandaríkjunum á árunum 1997
til 2000 og starfaði þar við lyflækningar.
Sigurður hefur einnig sérmenntun í
lungna- og gjörgæslulækningum, auk þess
sem hann sérmenntaði sig í atvinnusjúk-
dómalækningum.
Að sögn Sigurðar kemur hann til með að sinna
lyflækningadeildum innan HSS. Starfssvið lyf-
lækninga er fjölbreytt. „Þetta getur verið allt
frá því að gefa lyf við þvagfærasýkingum og
upp í það að gefa lyf við lungnabólgu,“ segir
Sigurður. Honum líst vel á alla aðstöðu á stofn-
uninni en segir að eitt og annað megi bæta.
„Það er nú þegar á stefnuskránni að bæta
suma hluti, en annars líst mér mjög vel á að-
stöðuna hér.“
Eiginkona Sigðurðar er Guðrún Auður Harðar-
dóttir hjúkrunarfræðingur en hún stundar nú
doktorsnám í heilbrigðisupplýsingafræði. Guð-
rún mun einnig taka til starfa á stofnuninni og
sinna endurmenntun starfsfólks og upplýs-
ingafræði. Þau hjónin hafa fest kaup á húsi í
Keflavík, en þau eru með tvö ung börn. „Okkur
líst vel á okkur hér og við erum bara spennt,“
sagði Sigurður í samtali við HSS póstinn þar
sem hann var staddur á Íslandi í stuttri heim-
sókn frá náminu á Bandaríkjunum.
Í ár eru liðin 10 ára frá því að ég útskrifað-
ist úr HÍ sem hjúkrunarfræðingur og réði
mig til starfa á legudeild HSS. Það hafa
orðið miklar breytingar á þeim tíma. Tals-
verð umskipti hafa orðið á starfsfólki,
breytingar hafa verið gerðar á innra starfi
sem og húsnæði. Líklegast hef ég mótast
af þessu öllu í gegnum árin eins og verða
vill en það verður að segjast að enn er
ekki laust við að ég mæti til vinnu með
smá fiðring og eftirvæntingu. Í dag starfa
ég sem deildarstjóri á A-gangi HSS en þar
skiptist starfsemin í Dag- og göngudeild
og Endurhæfingardeild (5 daga deild).
Starfsemin hefur verið í mikilli mótun en
við opnuðum sl september. Ég er svo ein-
staklega heppin að með mér í þessu verk-
efni er starfsfólk sem hefur mikinn metn-
að fyrir hönd sinnar deildar enda skiptir
það gríðarlega miklu máli fyrir hverja deild
að hafa góðan kjarna til að byggja á. Mér
hefur stundum verið hugsað til þess í
vinnunni að andi Latabæjar svífi hér um
þ.e.a.s. að „lífið er svo létt er allir hjálpast
að“ enda er það nú svo að á vinnustað
sem þessum eru öll störf mikilvæg og
hluti af einni stórri heild sem þarf að
smella saman.
Kveðja,
Þórunn A. Einarsdóttir
„Lífið er svo
létt ef allir
hjálpast að“
Nýr yfirlæknir á lyflækningasviði
Rut Þorsteinsdóttir vinnur við svæfingar:
Steinunn Erlingsdóttir
í móttökunni
Ég var síðast veik í fyrrasumar, en
ég hef verið heilsuhraust.
Vilborg Norðdahl deildarritari
Látum okkur nú sjá. Það er allavega
langt síðan. Ég hef nánast ekki verið
frá vinnu síðan ég byrjaði - hef verið
svo heppin að vera hraust.
María Gunnarsdóttir
sjúkraliði
Ég varð veik í kringum páskana og
þurfti að koma á HSS. Þjónustan var
mjög góð!
Jóhanna Óladóttir
starfsmaður í Býtibúri
Það er svo agalega langt síðan að
ég man það ekki - sem betur fer.
Jú, ég hef verið svæfð og mér fannstþað bara mjög gott. Það er eins og aðhorfa á sjónvarpið, detta út af og
vakna síðan endurnærð á eftir,“ segir Rut
Þorsteinsdóttir svæfingarhjúkrunarfræðingur
á skurðdeild Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja.
Rut hefur starfað á HSS frá árinu 1980 með hlé-
um. „Frá 1983 hef ég starfað hér sem svæfing-
arhjúkrunarfræðingur,“segir Rut brosandi.
„Hér er starfrækt fræðsla fyrir fæðingu barns í
keisaraskurði. Fræðslan gengur þannig fyrir sig
að þegar búið er að ákveða keisaradag þá hefur
svæfingarhjúkrunarfræðingur samband við hjón-
in og fræðir þau um aðgerðina,“ segir Rut en
HSS hefur verið í fararbroddi með þessa þjón-
ustu í 10 ár og hefur þetta mælst mjög vel fyrir.
Ragnar Ingvarsson
aðstoðarlæknir á HSS
Ég bara man það ekki.
Mig rámar ekki í það að hafa
lagst í rúmið í mörg ár. 7-9-13.
Eins og að detta út af og
vakna síðan endurnærð á eftir
Þ að eru fjórar hressarstelpur sem vinna viðsmásjárnar á rann-
sóknardeildinni á HSS. Það er
alltaf nóg að gera hjá þeim og
þær segja starfið fjölbreytt.
„Við erum ekki bara að rýna í
smásjána allan
daginn. Við sjáum
um sýnatöku á
stofnuninni og fáum
allskyns sýni til
rannsóknar og fólk
til að taka sýnin úr,“
segir Sigurlaug N.
Þráinsdóttir yfir-
meinatæknir á rann-
sóknardeildinni með bros á
vör. Þær kunna margar
skondnar sögur úr rannsókn
og hér á eftir fara nokkrar
þeirra.
■ Konan sem hringdi og spurði
hvort henni
væri óhætt að kyngja munnvatni
meðan hún fastaði fyrir blóð-
rannsókn.
■ Í gegnum tíðina hefur fólk átt
til að skila þvagsýnum í marg-
víslegum ílátum, allt frá
ýmsum gerðum af krukkum í
vínglös, tupperware dós, gos-
flöskur.
■ Eitt sinn mættu nokkrar
stúlkur snemma morguns og
virtust vera að koma beint úr
gleðskap. Færðu þær okkur
vínglas á fæti með innihaldi
sem reyndist vera þvag sem
þær vildu láta gera þungun-
arpróf af.
■ Svo var það maðurinn sem
talaði um það með eftirsjá og
tregablöndnu þakklæti í
röddinni, meðan á blóðsýnatök-
unni stóð, að þetta væri í fyrsta
skipti sem hann færi
í blóðsýnatöku og nú væri hann
að sjá eftir blóði sem væri búið
að endast honum vel í
80 ár.
■ Sagan um barnið sem grét
mikið á meðan á blóðsýnatök-
unni stóð, en tók svo óvænt upp
á því að kyssa meinatækninn
fyrir, en hann komst svo við við
þetta að hann fór að gráta líka.
Skemmtilegar sögur úr Rannsókn
Sigurður Þór Sigurðarson læknir
HSS posturinn PDF 25.5.2004 23:10 Page 13