Víkurfréttir - 27.05.2004, Qupperneq 21
5
S É R B L A Ð U M H E I L B R I G Ð I S S T O F N U N S U Ð U R N E S J A
Þ essi spítali hefur sál,“segir Vikas Pethkar læknirá bráðamóttöku HSS en
hann fluttist frá Indlandi til Kefla-
víkur rétt fyrir áramótin. Vikas er
mjög ánægður með starfið og
hann segir aðstöðuna vera góða á
stofnuninni.
Vikas er 32 ára gamall og þegar
hann var í Indlandi starfaði hann
sem heimilislæknir og við almennar
lækningar í borginni Bombay. Vikas
hefur einnig starfað sem bæklunar-
læknir á sjúkrahúsi í Úkraínu, en
eiginkona hans Malvina er frá Úkra-
ínu. En hvernig finnst Vikas að starfa
og búa á Íslandi? „Mér finnst það
alveg frábært. Ég og fjölskylda mín
erum mjög ánægð hér. Íslendingar
hafa tekið mér vel og fólk verið
mjög hjálplegt,“ segir Vikas en hann
talar átta tungumál og þrátt fyrir að
hafa verið einungis nokkra mánuði
á Íslandi talar hann ágæta íslensku.
„Ég tala indversku, marathi, san-
skrit, kanada, rússnesku, úkraínsku,
ensku, arabísku og ég er að læra ís-
lensku,“ segir Vikas og brosir.
Vikas segir helsta muninn á læknis-
starfsemi á Íslandi og Indlandi vera
þann hvað allt gangi hratt fyrir sig
hér á landi. „Það eru til margar teg-
undir af sjúkrahúsum á Indlandi og
þar gengur allt mikið hægar fyrir sig.
En hér á Íslandi getur sjúklingur
fengið röntgenmynd og farið í sýna-
töku með 15 mínútna millibili. Það
gerist ekki á Indlandi.“
Dóttir Vikas heitir Ashwina og er 18
mánaða og segir hann að henni
finnist gott að vera hér. „Já okkur
líður öllum vel hérna.“
Það eru engar venjulegar ljósmyndirsem teknar eru á röntgendeild HSS.Þar ræður Jórunn Garðarsdóttir
geislafræðingur ríkjum en hún er deildar-
stjóri á röntgendeildinni. Á deildinni eru
gerðar um 5000 rannsóknir á ári, m.a.
beinarannsóknir, meltingarfærarannsóknir
svo og venjulegar og sérhæfðar ómrann-
sóknir og segir Jórunn álagið vera mikið.
„Okkar hlutverk er víðfemt. Hér er alltaf
nóg að gera og til okkar koma sjúklingar
af öllum deildum.“
Eins og áður segir eru engar venjulegar ljós-
myndir teknar á röntgendeildinni og myndirnar
sem þar eru teknar sýna mun meira heldur en
þær venjulegu. „Í náminu sem tengist geisla-
fræðinni lærum við ljósmyndun og ég er
áhugamanneskja um hefðbundna ljósmynd-
un,“ segir Jórunn brosandi.
Talar átta tungumál
Vikas Pethkar læknir á bráðamóttöku HSS
Í stórum fyrirtækjum er alltaf einneinstaklingur sem allir þekkja -húsvörðurinn. Hermann F. Ólafsson
er titlaður deildar-
stjóri viðhalds- og
tæknideildar HSS.
„Maður verður víst
að nota titilinn sem
manni er ætlaður,“
segir Hermann
brosandi en starfs-
svið hans er viða-
mikið. „Starfið felst
í að halda fasteignunum í eins góðu
ástandi og fjármagn leyfir. Hér áður fyrr
var ég einn í þessu starfi en nú erum við
tveir.“
Flest starfsfólkið kannast við Hermann þar
sem hann hefur starfað á stofnuninni frá
árinu 1981. Í gegnum tíðina hefur hann
séð um að öll önnur tæki en sérhæfð lækn-
ingatæki virki sem skyldi. „Ég sést minna á
deildunum eftir að við urðum tveir í deild-
inni. En ég hef alltaf gaman að kíkja á
deildirnar og spjalla við hjúkkurnar,“ segir
Hermann brosandi.
Allir þekkja
húsvörðinn
Taka engar venjulegar ljósmyndir
heilsugæslan nær fullmönnuð. Þar er alltaf nóg
að gera og til að gera sér ein-
hverja hugmynd um það er
vert að nefna að um 40 þús-
und manns komu á heilsu-
gæsluna árið 2002. Það eru
rúmlega 109 manns á dag sé
miðað við að opið sé alla daga
vikunnar, allan ársins hring.
Þegar gengið er til vinstri frá
móttökunni er komið inn í
sjúkrahúsálmuna með öllum
sínum ranghölum og göng-
um. Þar tekur elskulegt
starfsfólk á móti öllum þeim fjölmörgu sem
þar eiga leið um. Sigríður fram-
kvæmdastjóri situr á skrifstofu á gang-
inum áður en gengið er inn í sjúkra-
húsálmuna og þykir vinsælt að líta við
hjá henni og fá sér kaffi, enda hellir hún
upp á kaffitár.
Í D-álmunni iðar allt af lífi. Á neðri hæðinni
Röntgendeildin heimsótt:
Vikas og Malvina ásamt dóttur sinni Ashwinu.
Þeim líður öllum vel í Keflavík og ætla sér að vera hér áfram.
Farið í gegnum röntgenmyndir.
HSS posturinn PDF 25.5.2004 23:02 Page 5