Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2004, Page 22

Víkurfréttir - 27.05.2004, Page 22
6 Í hverju felst starf hjúkrunarfor- stjóra? Hjúkrunarforstjóri starfar samkvæmt skipuriti HSS og er fulltrúi í fram- kvæmdastjórn. Hann er fulltrúi hjúkrunar HSS og kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar sem slíkur. Hann vinnur að heildarskipulagi og samhæfingu stofnunarinnar í sam- ráði við fulltrúa framkvæmdastjórn- ar. Hann hefur umsjón með fram- kvæmd hjúkrunarþjónustu á stofn- uninni og sér til þess að hún sé ávallt í samræmi við lög, stefnu og markmið stofnunarinnar, gæðavið- mið í hjúkrunar- og ljósmóðurfræð- um og viðurkennda þekkingu. Hjúkrunarforstjóri vinnur að því að tiltækur mannafli sé í samræmi við þarfir sjúklinga og fjárveitingar. Hann gerir áætlanir um starfsemi hjúkrunarsviðs í samráði við hjúkr- unarstjórnendur og aðra starfsmenn á hjúkrunarsviði. Hann skal hafa frumkvæði að hagræðingu og skipu- lagningu þjónustunnar. Hann tekur þátt í uppbyggingu kennslu og fræðslu á stofnuninni og hvetur til fræðilegrar starfsemi. Hann sinnir öðrum verkefnum sem fram- kvæmdastjóri felur honum. Er hlutverk hjúkrunarfræðinga ekki fjölbreytt? Jú, svo sannarlega er það fjölbreytt. Hjúkrunarfræðingar á Íslandi eru með fjögurra ára háskólanám að baki þegar þeir útskrifast með B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði. Þá hafa þeir lagt stund á fræðilegt og klínískt nám í hinum ýmsu námsgreinum og sérgreinum hjúkrunar, s.s. hand- og lyflækningahjúkrun, öldrunarhjúkr- un, heilsugæsluhjúkrun, bráðahjúkr- un, barnahjúkrun o.fl. Að námi loknu fær hjúkrunarfræðingurinn hjúkrun- arleyfi frá heilbrigðisráðuneytinu og getur þá ráðið sig til starfa á sjúkra- hús, heilsugæslu eða aðra staði þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt. Möguleikar á sérhæfingu er miklir. Í boði er framhaldsnám á ýmsum sviðum, s.s. meistaranám eða diplomanám t.d. í svæfingahjúkrun eða gjörgæsluhjúkrun. Þá er hjúkr- unarnám skilyrði fyrir inntöku til náms í ljósmóðurfræðum sem tekur tvö ár og lýkur með embættisprófi. Atvinnumöguleikar eru margvíslegir bæði innanlands og utan. Það er mín skoðun að hjúkrunarnám sé að- göngumiði að eins fjölbreyttum starfsferli og hver og einn getur hugsað sér. Sjálf hef ég starfað við hjúkrun í tæp 19 ár og á þeim tíma hef ég m.a. unnið við hjartahjúkrun, krabbameinshjúkrun, alnæmishjúkr- un, á hjúkrunarheimili, slysa- og bráðamóttöku, með breska hernum í Bosníu; við kennslu við Háskóla Ís- lands og Háskólann á Akureyri; við stjórnun, sem deildarstjóri á stórum bráðasjúkradeildum, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á geðdeild og fræðsludeild og nú síðast sem hjúkrunarforstjóri HSS. Stöðug eftir- spurn er eftir hjúkrunarfræðingum og ég á bágt með sjá fyrir mér að sú stétt eigi einhvern tíma eftir að búa við atvinnuóöryggi. Hjúkrunarfræð- ingar gegna stóru og veigamiklu hlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Hvað starfa margir hjúkrunar- fræðingar við HSS? Um þessar mundir starfa tæplega 40 hjúkrunarfræðingar og 10 ljós- mæður við HSS. Sumar ljósmæðr- Starfaði við hjúkrun á vegum NATO og breska hersins í Bosníu Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í viðtali ÁHeilbrigðisstofnun Suður-nesja starfa um 40 hjúkr-unarfræðingar og 10 ljós- mæður sem sumar hverjar eru menntaðar hjúkrunarfræðingar. Þessu starfsfólki veitir Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri for- stöðu og það er nóg að gera hjá henni. Hildur hefur starfað við hjúkrun í tæp 19 ár og hún hefur m.a. starfað á vegum NATO við hjúkrun í Bosníu. „Ég hef upplifað ákaflega margt í mínu starfi, bæði sorg og gleði, litla sigra, stóra sigra, vonbrigði og áföll,“ segir Hildur meðal annars í við- talinu. eru læknaritararnir, en eins og nafnið gefur til kynna sjá þeir um að rita allar læknaskýrslur. Þar er alltaf nóg að gera og stelpurnar sem þar starfa tóku vel á móti blaðamanni og stilltu sér upp til myndatöku. Þær eru allar útskrifaðar af lækna- ritarabraut Fjölbrautaskólans við Ár- múla og kunna vel við sig í starfinu. Stelpurnar eru með sérstaka bók þar sem geymd eru ýmis snjallyrði sem læknar á HSS hafa skrifað í gegnum árin. Á hæðinni eru sjúkra- og iðjuþjálfarar að störfum. Mjög góðri aðstöðu hefur ver- ið komið upp á hæðinni til bæði sjúkra- og iðjuþjálfunar og er straumur fólks í gegnum þessa þjálfun allan daginn. „Vertu vel- kominn væni,“ segir eldri maður sem er í iðjuþjálfun. Hann, ásamt fleiri eldri borgurum Suðurnesja sitja þar áhugasöm og mála myndir Hildur í hópi Íslendinga sem störfuðu með henni í Bosníu. HSS posturinn PDF 25.5.2004 23:05 Page 6

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.