Víkurfréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 27
11
S É R B L A Ð U M H E I L B R I G Ð I S S T O F N U N S U Ð U R N E S J A
Þ að var svolítið erfið ákvörðunað ákveða að flytjast til Kefla-víkur,“ segir María Fjóla
Harðardóttir 28 ára hjúkrunarfræð-
ingur í D-álmu HSS. María útskrifað-
ist úr hjúkrunarfræði sl. vor og áður
en hún tók ákvörðun um að flytja á
Suðurnesin var hún búin að skoða
sig um á Norðurlandi, Austurlandi og
Suðurlandi. „Mér leist langbest á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,“ seg-
ir María brosandi. María segir að á
stofnuninni sé þægilegur andi og
„alveg einstaklega góður mórall,“
eins og hún orðar það. „Við höfum
fundið fyrir neikvæðu umtali utan úr
bæ vegna umræðunnar um lang-
legudeild fyrir aldraða og það umtal
smitar út frá sér inn á deildina.“
Sökum þess hve þjónustusvið D-álm-
unnar er viðamikið segir María að það
sé líkt því að hún sé að taka fimmta
árið í hjúkrunarfræði með því að starfa
á deildinni. „Á öðrum spítölum er starfið
mun sérhæfðara, og því vonlaust að
öðlast jafn mikla reynslu og D-álman
bíður upp á eins og hún er uppbyggð í
dag,“ segir María. Nám í hjúkrunarfræði
tekur alls 4 ár í Háskóla Íslands. „Námið
er mjög skemmtilegt, en jafnframt mjög
krefjandi.“
Ekki erfið ákvörðun að flytja til Keflavíkur
Oft er talað um að stelpurnar í móttöku HeilbrigðisstofnunarSuðurnesja séu andlit stofnunarinnar út á við og þetta eru alltsætar stelpur. Agnes Garðarsdóttir ræður þar ríkjum en hún
hefur starfað í móttökunni sl. 18 ár. „Reyndar er starfsaldur stelpn-
anna í móttökunni mjög langur þannig að við þekkjumst allar mjög
vel,“ segir Agnes og það er hreinlega hressandi að kíkja bakvið glerið
hjá þeim því þar eru allir í góðu skapi.
Í móttökunni starfa allir á vöktum og standa næturvaktirnar yfir frá átta á
kvöldin til átta á morgnana.Agnes segir að það venjist að vinna á nóttunni.
„Það getur stundum verið lítið að gera, en við notum þá tímann í alls kyns
skjalavinnu. En því er ekki að neyta að stundum getur það verið ein-
mannalegt að vera hér ein.“
Að sögn stelpnanna í móttökunni getur starfið verið mjög fjörugt og fjöl-
þætt en þær lenda stundum í skrýtnum uppákomum. „Stundum verður allt
geggjað hér, sérstaklega um helgar,“ segja þær og allar eru þær sammála
um að í móttökunni sé gott að starfa. „Það sést á því að við komum hing-
að til starfa og förum ekki aftur.“
Hressar stelpur í móttökunni hjá HSS
Ragnheiður Gunnarsdóttir ereinnig nýútskrifuð úr hjúkr-unarfræði við Háskóla Ís-
lands og hún er nýflutt til Keflavíkur,
en hún er líkt og María hjúkrunar-
fræðingur á D-deildinni. Ragnheiði
fannst það ekki erfið ákvörðun að
flytja á Suðurnesin. „Það var bara
skemmtileg ákvörðun og ég verð að
segja að það er bara mjög fínt að búa
hér.“
Ragnheiður segir andann á Heilbrigðis-
stofnuninni vera mjög góðan og þegar
hún er spurð að því hvað sé erfiðast við
starfið segir hún að það sé stundum
töluvert mikið álag. En hvað er
skemmtilegast við starfið? „Hér er
rosalega gott fólk og mikil fjölbreytni í
starfinu,“ segir Ragnheiður. Hún segist
ekki sérstaklega hafa stefnt að því að
verða hjúkrunarfræðingur - það hafi
bara æxlast þannig. „Ég sé sko ekki
eftir því.“
Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar við störf á D-álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
því þar er ekki hlaupið í kaffi í miðri aðgerð sem staðið
getur yfir í marga klukkutíma. Á síðustu tveimur
árum hafa um 1.400 skurðaðgerð-
ir verið framkvæmdar á skurðstofu
HSS.
Aðeins innar á ganginum er dag- og
endurhæfingardeildin og fæðingar-
deildin með sameiginlega skrifstofuað-
stöðu. Þar ræða starfsmennirnir
um endurhæfingu, fæðingar og
allt milli himins og jarðar. Gleð-
in skín úr augum starfsfólks-
ins og segir það starfið mjög
skemmtilegt og gefandi.
Beggja vegna skrifstofuað-
stöðunnar eru deildirnar. Öðru
megin er mikil umferð fólks af
öllum aldri sem sækja endurhæf-
ingu eða þurfa að njóta lyfjagjafar.
Hinum megin heyrist reglulega
grátur ungbarna sem þar fæðast en
á síðasta ári komu 223 börn í heim-
inn á fæðingardeildinni.
VISSIR ÞÚ ?
Um 5% fastráðinna starfsmanna HSS búa utan Suðurnesja.
Á Landspítala Háskólasjúkrahúsi búa um
7,6% starfsmanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Agnes ásamt tveimur úr
móttökuteyminu. Alls
starfa 9 konur í móttöku
Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja.
HSS posturinn PDF 25.5.2004 23:08 Page 11