Fréttablaðið - 07.02.2018, Page 2
Veður
Suðaustanhvassviðri og rigning eða
snjókoma og fremur milt veður,
en snýst síðan í suðvestanátt með
éljum. Hægari vindur og úrkomu
minna norðaustanlands. sjá síðu 16
Landsréttarmálið rætt í Landsrétti
Meint vanhæfi Arnfríðar Einarsdóttur, dómara við Landsrétt, var til umfjöllunar í Landsrétti í gær. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður krafðist
þess að hún viki sæti við meðferð máls skjólstæðsings hans á þeim grunni að hún hefði verið skipuð með ólögmætum hætti. Jón H.B. Snorrason sak-
sóknari varðist kröfunni og sagði Arnfríði uppfylla öll skilyrði til að vera dómari. Beðið er úrskurðar Landsréttar um málið. Fréttablaðið/Eyþór
skipulagsmál Kvikmyndaleikstjór-
inn Hrafn Gunnlaugsson fær ekki að
innlima í lóð sína skika undir svo-
kölluðum hörgi nærri íbúðarhúsi
hans í Laugarnesi.
Hrafn sendi umsókn um miðjan
janúar til Reykjavíkurborgar um
að fá að stækka lóð sína á Laugar-
nestanga 65. Sagði hann það vera
vegna hörgs „sem merktur var
ásum og vönum þann 1. júní 2015
af Hilmari Erni Hilmarssyni alls-
herjargoða“. Hörgur er blótstaður
heiðinna manna.
Ekki náðist í Hrafn en í umsókn
hans kemur fram að hörgurinn
skarti líkneski af ásnum Frey. „Alls-
herjargoðinn hefur síðan fram-
kvæmt þar ýmsar helgar athafnir
ásatrúar,“ upplýsir leikstjórinn.
Hrafn segir að í Verndaráætlun
fyrir Laugarnestanga undirskrifaðri
af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra sé
tilvera hörgsins staðfest. Þar segir að
öllum sé frjáls umferð um hörginn.
„Hörgurinn nær niður fyrir fjöru-
borð að hluta til en sjór ber möl og
þara inn í hann á háflæði og gerir
kynngi hans enn magnaðri,“ lýsir
Hrafn og útskýrir hvers vegna sam-
eina eigi skikann lóð hans sjálfs.
„Óskandi væri að hörgurinn stæði
ótvírætt allur inn á lóðinni, með til-
liti til allra er að málinu koma.“
Í umsögn embættis skipulags-
fulltrúa um erindi Hrafns segir að
samkvæmt lóðarskilmálum sé ekki
leyfilegt að afmarka lóðir í Laugar-
nesi með girðingum, mönum, lim-
gerði eða öðru né að loka göngu-
leiðum með strandlengju. „Opna
svæðið við Laugarnestanga er skil-
greint sem borgargarður og á svæð-
inu er mikið um búsetuminjar og
ströndin að mestu ósnortin. Allur
tanginn er skilgreindur sem hverfis-
verndarsvæði.
Þannig leggur skipulagsfulltrúi til
að stækkun lóðar Hrafns verði ekki
samþykkt. „Samræmist ekki gild-
andi skipulagi og ekki talin ástæða
til að lóðin innihaldi umræddan
hörg þar sem gengur töluvert á
opna svæðið að aðgengi almenn-
ings meðfram strandsvæðinu.“
gar@frettabladid.is
Hrafn má ekki innlima
lóð undir blótstaðnum
Svonefndur hörgur sem allsherjargoði ásatrúarmanna helgaði við hús Hrafns
Gunnlaugssonar er sagður ganga á aðgengi almennings að Laugarnestanga.
Hrafn vildi innlima skikann í sína lóð „með tilliti til allra“ en borgin hafnar því.
blótstaðurinn sem hér sést til hægri í fjöruborðinu við hús Hrafns Gunnlaugs-
sonar í laugarnesi er talvert mannvirki og sérstakt. Fréttablaðið/Eyþór
Hörgur er blótstaður
Talið er hörgar hafi upphaflega
verið blótstaðir undir berum
himni, líklega steinaltari. Á þetta
bendir uppruni orðsins hörgur.
Í Eddukvæðunum er getið um
hörg, sem hlaðinn var úr steinum.
Stundum virðast hörgarnir hafa
verið hús. Getið er um hörga
sem brunnu, og um hátimbraða
hörga.
Á Íslandi hafa fundist tóftir
sem talið er að séu af fornum
hörgum og hefur ein þeirra
verið rannsökuð. Kom þá í ljós
að hörgurinn hefur verið hús í
líkingu við hof en miklu minni.
Heimild: Wikipedia.
Sjór ber möl og þara
inn í hann á háflæði
og gerir kynngi
hans enn
magnaðri.
Hrafn Gunnlaugs
son leikstjóri
lögreglumál Komið var í veg fyrir
að Sunna Elvira Þorkelsdóttir, sem
liggur alvarlega slösuð á spítala
á Spáni, yrði flutt á betra sjúkra-
hús bæði í gær og fyrradag eins og
til hefur staðið.
„Hvort það er einhver skrif-
finnska eða lögreglan þarna ytra
veit ég ekki,“ segir Páll Kristjáns-
son, lögmaður Sunnu hér heima.
Hann segir íslensku lögregluna
ekki hafa komið í veg fyrir flutn-
inginn og Sjúkratryggingar Íslands
hafi talið allt klappað og klárt
þeirra megin.
„Þetta eru væntanlega spænsk
lögregluyfirvöld að reyna að
pressa á að fá einhverjar upplýs-
ingar og henni er í rauninni haldið
nauðugri,“ segir Páll og bendir á að
maður Sunnu sé í gæsluvarðhaldi
hér á landi vegna máls sem virðist
teygja anga sína til Spánar. „Ég veit
ekki hvort þeir eru að reyna að
koma einhverri óeðlilegri pressu
á hann og beiti henni með þessum
hætti.“
Páll segist verulega ósáttur við
hvernig tekið hefur verið á málinu
hjá alþjóðadeild ríkislögreglu-
stjóra. „Þegar ég spurði þá hvort
verið væri að nota hana sem ein-
hvers konar pressu eða þrýsting á
að ná fram einhverjum upplýsing-
um beið ég í fjóra daga eftir svari
og var svo bara vísað á borgara-
þjónustu utanríkisráðuneytisins,
sem hefur eðli málsins samkvæmt
ekkert með lögreglumál að gera,“
segir Páll.
Hann bíður nú svars frá lögregl-
unni en hann hefur óskað sérstak-
lega eftir því að hún beiti sér fyrir
því að Sunnu verði sleppt enda
sé henni ekki haldið nauðugri að
kröfu íslensku lögreglunnar. – aá
Föst nauðug
á sama stað
Sunna Elvira
þorkelsdóttir
skipulagsmál Hafnafjarðarbær
hefur kært fyrirhugaða lokun
Garðabæjar á gamla Álftanesveg-
inum til úrskurðarnefndar um
umhverfis- og auðlindamál.
„Þessi leið er mikið öryggisatriði.
Verði veginum lokað þurfa sjúkra-
og slökkviliðsbifreiðar að fara aðrar
tafsamari leið í Norðurbæinn,“ segir
Haraldur Líndal Haraldsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði.
Íbúar bæði Hafnarfjarðarmegin
og Garðabæjarmegin hafa mótmælt
lokuninni á meðan íbúar í Prýða-
hverfi í Garðabæ hvetja til hennar
til að minnka umferð við hverfið.
„Margir íbúar Hafnarfjarðar nota
þessa leið til að komast til Reykja-
víkur. Lokunin beinir þeim bílum í
gegnum íbúðahverfi sem eykur þar
umferð og kílómetrafjölda. Þá er
fyrirséð að íbúar Garðabæjar muni
nú þurfa að aka inn í Hafnarfjörð
til að komast leiðar sinnar innan
Garðabæjar,“ segir Haraldur. – jóe
Hafnarfjörður
kærir Garðabæ
7 . f e b r ú a r 2 0 1 8 m i ð V i k u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
8
-E
4
B
8
1
E
E
8
-E
3
7
C
1
E
E
8
-E
2
4
0
1
E
E
8
-E
1
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K