Fréttablaðið - 07.02.2018, Qupperneq 31
Ekki þarf að fella eitt einasta tré við framleiðslu pvc glugga.
Skynsamleg
ákvörðun
hússtjórnar og
íbúa við fjöl-
mennustu götu
landsins.
Þessi sumar-
bústaður er
tilbúinn fyrir
öskugos í Heklu.
Bæði hurðir og gluggar koma í
nokkrum litum.
Fyrirtækið var stofnað árið 2010 en að baki því standa fag-menn með áralanga reynslu.
„Við framleiðum PCV-u glugga og
hurðir úr smíðaefni frá belgíska
framleiðandanum Deceuninck.
Um er að ræða 70 mm uPVC marg-
hólfa prófíl með galvaníseruðum
stálkjarna en allir eru þeir gler-
jaðir að innan með 28 millimetra
háeinangrandi gleri frá Íspan í
Kópavogi,“ segir Gísli Jóhann
Sigurðsson, framkvæmdastjóri og
húsasmíðameistari.
Gísli segir ekkert gluggaefni
standast uPVC í endingu. „Það er
auk þess gífurlega einangrandi og
leiðir ekki kulda. Um leið er það
orkusparandi og er hægt að lækka
orkukostnaðinn umtalsvert með
því að velja glugga frá okkur. Til
dæmis velja yfir 80 prósent Þjóð-
verja og Englendinga PVC glugga
og er vakningin hafin hér á landi
enda er þetta frábært gluggaefni
fyrir íslenskar aðstæður þar sem
allra veðra er von.“
Að sögn Gísla hefur prófíllinn
verið í þróun og framleiðslu hjá
Deceuninck frá árinu 1960 og því
fyllilega sannað gildi sitt. „Það er
hundrað prósent endurvinnanlegt.
Það þarf ekki að fella eitt einasta
tré til að framleiða PVC-u og engin
þörf er á eiturefnum, lakki eða
málningu til að viðhalda PVC-
gluggum áratugum saman.“
Íslensk framleiðsla
Framleiðslan fer fram í verksmiðju
fyrirtækisins að Seljabót 7 í Grinda-
vík auk þess sem söluskrifstofa er
staðsett í Skipholti 35 í Reykjavík.
„Við sérsmíðum alla glugga og
hurðir eftir óskum viðskiptavina
og þar sem framleiðslan fer fram
á Íslandi er afhendingartíminn
skemmri en almennt þekkist. Við
leggjum mikið upp úr gæðunum og
viljum vera vissir um að fólk þurfi
ekki að standa í kostnaðarsömu
viðhaldi eins og gerist stundum
þegar óvandaðar og ódýrar eftir-
líkingar verða fyrir valinu,“ segir
Gísli.
Gluggarnir frá PGV Framtíðar-
formi stóðust slagveðurspróf
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands án
athugasemda að sögn Gísla. „Við
erum stoltir af árangrinum enda
með hæstu einkunn. Það er mikil
fjárfesting í gluggum og mikilvægt
að vita hvað maður er með í hönd-
unum. Við bendum fólki á að ekki
er alltaf fullnægjandi trygging fyrir
gæðum þó að gluggar hafi staðist
próf erlendis þar sem veðurskilyrði
eru allt önnur hér heima. Það er
mikil ánægja að geta boðið upp á
glugga og hurðir sem standast erfið
veðurskilyrði okkar .“
Öryggið í fyrirrúmi
Allir glerlistar frá PGV Framtíðar-
formi eru að innanverðu sem er
mikið öryggisatriði segir Gísli. „Þá
er ekki hægt að fjarlæga gler úr
glugga utan frá til að brjótast inn
en nefna má að í t.d. Bretlandi,
Þýskalandi og Belgíu er ekki hægt
að fá innbrotstryggingu ef gler-
listar eru á utanverðu.Tel ég að það
sé einungis tímaspursmál hvenær
tryggingafélög hér á landi taki það
einnig upp. Hurðirnar okkar eru í
svipuðum gæðaflokki þegar kemur
að öryggi en þær koma með 5-7
punkta læsingu frá Yale og gluggar
eru með 4-8 punkta læsingu.“
Litaúrval
PGV Framtíðarform býður upp á
viðarútlit í sjö litum og fimm tví-
litum en þá er hægt að hafa lit að
utanverðu og hvítt að innan.
Minna viðhald, meiri frítími
PGV Framtíðarform ehf. framleiðir einangrandi, viðhaldslitla og orkusparandi glugga og hurðir úr
mjög vönduðum efnum. Fjárfesting í góðum gluggum og hurðum margborgar sig til lengri tíma.
Svalalokanir og sólstofur
PGV Framtíðarform sérsmíðar
einnig svalalokanir og sólstofur og
eru útlitsmöguleikar óteljandi að
sögn Gísla. „Þetta eru lokanir sem
eru 100% vind- og vatnsþéttar. Vin-
sælasta þakefnið er polycarbonite
sem er 35 mm marghólfa plastefni
en einnig er hægt að fá öryggisgler.“
Byggingarefni
Að auki bjóðum við upp á PVC þak-
rennur og niðurföll, sólpallaefni
sem aldrei þarf að bera á, þakkants-
efni í mörgum stærðum og gerðum
ásamt miklu úrvali lita.
Samskeyti brædd saman
Það sem sker framleiðslu PGV
Framtíðarforms sérstaklega frá
öðrum er að öll samskeyti eru
brædd saman, líka millipóstar segir
Gísli. „Með þessu móti er engin
hætta á leka eða taumum milli
samskeyta. Slagveðursprófið sýnir
ótvírætt kosti bræddra samskeyta
en algengt er að millipóstar PVC
glugga séu skrúfaðir í. Þegar húsið
er komið með glugga sem krefjast
minna viðhalds eykst frítíminn
sem hægt væri að nota í eitthvert
áhugamálið eins og til dæmis golf.
Og með meiri tími fyrir golfið
verður þú betri í golfinu og þú
getur þakkað það skynsamlegri
ákvörðun þinni í gluggakaupum.“
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu okkar www.pgv.is. Einn-
ig má kíkja í kaffi í Skipholt 35 og
kynna sér vörurnar.
Jafnvel æðri máttarvöld fá sér PVC-glugga. Þessi kirkja er á Snæfellsnesinu.
KYNNINGARBLAÐ 9 M I ÐV I KU DAG U R 7 . F E b r úa r 2 0 1 8 BYGGINGARIÐNAÐURINN
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
9
-1
1
2
8
1
E
E
9
-0
F
E
C
1
E
E
9
-0
E
B
0
1
E
E
9
-0
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K