Fréttablaðið - 07.02.2018, Side 32
Vífilsstaðir eru byggðir á svæði sem kemur fyrir í Landnámu en talið er að Vífill, leysingi landnámsmannsins Ingólfs Arnarsonar, hafi búið þar og dregur staðurinn nafn sitt af honum. MYND/STEFÁN
Það voru tímamót í
íslenskri bygginga-
sögu að Íslendingi var
falin öll umsjón með
byggingu stórhýsis.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Smíði Vífilsstaða tók rúmt ár
Vífilsstaðir eiga sér merkilegan sess í byggingarsögu Ís-
lands. Smíði hússins tók rúmt ár og um tíma var það
stærsta steinsteypta húsið á landinu. Rögnvaldur Ólafs-
son hannaði húsið og var byggingameistari þess. V
ífilsstaðir eru að margra
mati ein fallegasta byggingin
í Garðabæ, enda áberandi
kennileiti norðvestan Vífilsstaða-
vatns. Húsið er byggt á svæði sem
kemur fyrir í Landnámu en talið
er að Vífill, leysingi Ingólfs Arnar-
sonar landnámsmanns, hafi búið
þar og dregur staðurinn nafn sitt af
honum, Vífilsstaðir.
Stærsta steinsteypta húsið
Húsið var upphaflega byggt sem
heilsuhæli fyrir berklasjúklinga
snemma á síðustu öld. Smíði
þess tók rúmt ár og um tíma var
það stærsta steinsteypta húsið á
landinu. Hælið var tekið í notkun
haustið 1910. Fyrsta árið komu nær
200 sjúklingar á hælið en um alda-
mótin 1900 hafði berklatilfellum
fjölgað ört hér á landi. Á þessum
tíma fluttu margir úr sveitum í
þorp, húsakostur var slæmur,
fátækt mikil og fæði lélegt en þetta
skapaði góð skilyrði fyrir berkla.
Allt að 500 manns veiktust árlega
og hundruð ungmenna létust úr
sjúkdómnum.
Þáverandi landlæknir, Guð-
mundur Björnsson, hóf baráttu
gegn berklum og hvatti til að
byggt yrði heilsuhæli fyrir berkla-
sjúklinga. Hann fékk félaga sína í
Oddfellowreglunni í lið með sér,
sem margir voru broddborgarar og
áhrifamenn í Reykjavík og þjóðlíf-
inu öllu. Danskir Oddfellowfélagar
höfðu áður gefið hingað Laugar-
nesspítala fyrir holdsveika sem
þá var stærsta hús sem hafði verið
reist á Íslandi. Oddfellowreglan
stofnaði svonefnt Heilsuhælisfélag
sem safnaði fé um land allt, sem og
meðal Íslendinga í Vesturheimi.
Fyrsti arkitektinn hannaði
húsið
Rögnvaldur Ólafsson, sem kunnur
er sem fyrsti arkitekt Íslands, var
fenginn til að hanna Vífilsstaði
og var það hans stóra lífsverk.
Rögnvaldur var ekki ókunnugur
berklahælum því hann smitaðist
af sjúkdómnum og lá um tíma á
berklaspítala við Hróarskeldufjörð í
Danmörku. Vafalaust var sú bygging
honum innblástur en þar voru
meðal annars leguskálar undir hús-
vegg en slíkir skálar voru byggðir
við Vífilsstaði en mega nú muna
fífil sinn fegurri. Rögnvaldur var
einnig byggingameistari hússins og
sá um að útvega allt efni. Það voru
tímamót í íslenskri byggingasögu
að Íslendingi var falin öll umsjón
með byggingu stórhýsis. Á sínum
tíma voru Vífilsstaðir með því besta
sem gert var í Norður-Evrópu á
þessu sviði eins og kemur fram í bók
Björn G. Björnssonar Fyrsti arki-
tektinn. Rögnvaldur Ágúst Ólafsson
og verk hans.
Ýmis starfsemi verið í húsinu
Vífilsstaðir eru 700 fermetrar að
grunnfleti og á þremur hæðum.
Suður frá húsinu var vélahús,
vagnabyrgi, líkhús, hesthús og
hænsnahús, en kolabyrgi litlu
austar. Fjós var reist við Vífilsstaði
og þar rekinn kúabúskapur því það
þótti gott að gefa sjúklingunum
nýmjólk. Talið er að fjósið hafi verið
síðasta verk Rögnvaldar. Svo fór að
hann varð sjálfur sjúklingur á Vífils-
stöðum og lést þar aðeins 42 ára.
Vífilsstaðir voru berklahæli fram
undir 1970. Eftir það hefur ýmis
starfsemi verið í húsinu, svo sem
lungna-, ofnæmis- og húðlækninga-
deild en núna er þar öldrunardeild
fyrir sjúklinga af Landspítalanum
sem bíða eftir að komast á hjúkr-
unarheimili.Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
Eldhúsinnréttingar
hÁgÆÐa dansKar
OpiÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag
10 KYNNINGARBLAÐ 7 . F E B R úA R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RBYGGINGARIÐNAÐuRINN
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
9
-1
6
1
8
1
E
E
9
-1
4
D
C
1
E
E
9
-1
3
A
0
1
E
E
9
-1
2
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K