Fréttablaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 6
Lagerhúsnæði í GARÐABÆ Um er að ræða tvær sjálfstæðar einingar 920 ferm og 350 (400) ferm. Lofthæð er um 4.5 metrar. Húsnæðið getur verið laust á næstu 2 – 3 vikum. Upplýsingar í síma 772 1312 og 899 2841 H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Innviðasjóður Umsóknarfrestur 15. mars Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði. Hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknainnviði á Íslandi. Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum. Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar: l Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda l Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir l Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði l Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti l Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað. Umsækjendur skulu kynna sér vel reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð. Nánari upplýsingar og aðgangur að rafrænu umsóknarkerfi á www.rannis.is. Heilbrigðismál „Það eru einhverjar hugmyndir hjá fólki um að þetta bæti námsárangur,“ segir Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri lyfja- mála hjá Embætti landlæknis, um misnotkun námsmanna á lyfseðils- skyldum metýlfenídat-lyfjum sem jafnan eru notuð til að meðhöndla ADHD og tengdar raskanir. Vara- samt sé fyrir fólk að taka lyfin án samráðs við lækni. Ný BS-rannsókn við Háskóla Íslands sýnir að tæp sjö prósent framhaldsnema við skólann hafa misnotað örvandi lyfseðilsskyld lyf í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum. Leiðbeinandi í umræddu verk- efni var Bergljót Gyða Guðmunds- dóttir en í doktorsverkefni hennar við University of Rhode Island árið 2016 kom fram að um 13 prósent íslenskra háskólanema í grunnnámi hafi misnotað örvandi lyf sem þessi. Ólafur er einn höfunda greinar í nýjasta tölublaði Læknablaðsins þar sem birt er ný tölfræði yfir ávísun metýlfenídat-lyfja í fyrra. Heildar- fjöldi þeirra sem fengu lyfinu ávísað jókst um 13 prósent milli ára, nýir notendur voru nærri 3.200 og hefur fjöldi nýrra notenda aukist um 78 prósent frá 2012 til 2017. Íslendingar eru sér á parti meðal Evrópuþjóða varðandi fjölda not- enda og það magn sem ávísað er. Misnotkun lyfja sé hins vegar síst minna heilbrigðisvandamál en mis- notkun ólöglegra efna. Í greininni segir að landlæknis- embættið fái reglulega vísbendingar um að lyfin gangi kaupum og sölum, meðal annars hjá námsmönnum. „Ótvírætt er að lyfin geta hjálpað fólki að vaka og halda einbeitingu og að þau hjálpi fólki með ADHD en varasamt getur verið að fólk sé að taka lyfin án samráðs við lækni.“ Talsverður fjöldi þeirra sem fá ávísað þessum lyfjum eru á þeim í afmarkaðan tíma en embættið hefur áhyggjur af langtímanotkun fólks á þeim í mjög stórum skömmtum. Þannig hafi 74 einstaklingar fengið ávísað að meðaltali 120 mg af metýlfenídati á dag í fyrra og 20 einstaklingar 40 mg af amfetamíni. Fram kemur í greininni þessar ávís- anir séu bundnar við fámennan hóp lækna og að embættið hafi leitað skýringa. Ólafur segir að í sumum tilfellum hafi engar fengist. „Skýringarnar voru mismunandi. Það er misjafnt hvað einstaklingar þurfa mikið af lyfjum almennt. Það eru alltaf einhver frávik. En í sumum tilfellum eru engar skýringar á þessum skömmtum. Það er eins og sumum læknum sé frjálsara að ávísa stærri skömmtum.“ Aðspurður um amfetamínið segir Ólafur að ávísanir á það séu ekki algengar. Það sé meðal annars notað við ADHD og drómasýki (e. narco- lepsy) og í tilfellum þar sem metýl- fenídat hefur ekki virkað. „En það er eins með amfetamín og metýlfenídat að það vantar oft skýringar á hvers vegna fólk er á himinháum skömmtum af þessum lyfjum. Það er líka umhugsunarvert að talsverður hluti þessara lyfja ratar á svartan markað.“ mikael@frettabladid.is Námsmenn taka séns með ofvirknilyfjum Ný rannsókn sýnir að tæp 7 prósent framhaldsnema við Háskóla Íslands hafa misnotað örvandi lyfseðilsskyld lyf. Ávísun metýlfenídats jókst um 13 prósent í fyrra. Stundum engar skýringar að fá frá læknum sem eru stórtækir í ávísunum. listmunir „Verðið var kannski í lægri kantinum en sanngjarnt,“ segir Sean Curtis-Ward, eigandi útskorins fálka eftir Ríkarð Jónsson sem seldur var á uppboði í London í gær. Ekki er gefið upp hver kaupandi fálkans er en Sean, sem sjálfur fylgd- ist með uppboðinu á netinu, segist telja að það hafi verið einhver á staðnum sem átti hæsta boðið. Nokkur tilboð hafi einnig borist um netið. Söluverð fálkans var 1.100 pund – sem með þóknun Chiswick-upp- boðshússins er 1.430 pund, jafnvirði rétt rúmlega 200 þúsund króna. Verðmat Chis- wick var hins vegar 400 til 600 pund. Eftir að Fréttablaðið sagði í síð- ustu viku frá fyrirhuguðu uppboði höfðu tveir íslenskir aðilar sam- band við blaðið og lýstu áhuga á að komast í samband við eiganda fálkans með kaup í huga. Fyrir- tæki í Reykjavík bauð 1.000 pund og fékk því ekki gripinn. Heldur ekki Iðnaðarmannafélag Reykja- víkur. „Við höfðum fullan hug á að reyna að komast yfir þennan grip en svigrúmið var naumt,“ segir Jón Svavarsson, ritari Iðnaðarmanna- félags Reykjavíkur sem á fyrir nokkra gripi eftir Ríkarð. Jón kveðst hafa reynt að bjóða í fálkann í gegn um netið en sé ekki viss hvort upp- hafsboð hans upp á 600 pund hafi skilað sér. „Við sáum fyrir okkur að það væri k æ r k o m i ð að eignast þennan grip þar sem Ríkarður var hluti af okkar félagi á sínum tíma og gerði meðal annars þá glæsi- legu baðstofu sem við eigum í Vonarstræti,“ segir Jón. „En mest höfðum við áhuga á því að fálkinn kæmist í íslenska eigu.“ – gar Fálki Ríkarðs seldur í London fyrir 200 þúsund Fálkinn seldist á jafnvirði 200 þúsund króna. Það er eins með amfetamín og metýlfenídat að það vantar oft skýringar á hvers vegna fólk er á himinháum skömmtum af þessum lyfjum. Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri lyfjamála hjá Embætti landlæknis Sluppu með skrekkinn Það þykir kraftaverki næst að enginn hafi týnt lífi þegar vegbrú í byggingu hrundi í Brasilíu miðri í gær. Fjögur ökutæki lentu undir brakinu þegar brúin gaf sig en ökumenn og farþegar komust lífs af. Umferðartafir urðu talsverðar vegna atviksins. Rannsókn á því hví brúin gaf sig hófst strax í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 7 . f e b r ú a r 2 0 1 8 m i ð V i K u D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 7 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 9 -0 C 3 8 1 E E 9 -0 A F C 1 E E 9 -0 9 C 0 1 E E 9 -0 8 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.