Fréttablaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 44
Markaðurinn HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Rexton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur. Þau opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn. Þau auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin Fjölmiðlaskýrslan svokallaða leit dagsins ljós á dögunum. Í skýrslunni var ýmislegt skynsamlegt að finna, en mögulega er stærsta einstaka tillaga nefndarinnar sú að RÚV hverfi alfarið af auglýsingamarkaði. Í nýjasta opinbera ársreikningi RÚV námu tekjur félagsins af auglýsingasölu um 2,2 milljörðum. Þær leggjast ofan á þá fjóra milljarða sem RÚV fær árlega í meðgjöf frá ríkissjóði. RÚV hefur því úr svipuðum fjármunum að moða og sambærileg starfsemi miðla Vodafone, áður í eigu 365. Að nánast öllu öðru leyti er örðugt að bera miðlana saman. Vodafone rekur að minnsta kosti fimm sjónvarpsstöðvar, eigin streymiþjónustu í anda Netflix, fjölvarpsþjónustu, átta útvarpsrásir og tónlistarstreymiþjónustu. Auk þess framleiðir félagið bæði sjónvarps- og útvarpsefni og kaupir erlent efni. Því til viðbótar rekur Vodafone fréttastofur fyrir útvarp og sjónvarp. Á meðan rekur RÚV eina og hálfa sjónvarpsstöð og tvær útvarpsrásir. Félagið starfrækir fréttastofur og framleiðir mikið af eigin efni en kaupir erlent efni. Þrátt fyrir að verkefnin og afköstin virðist við fyrstu sýn margföld hjá Vodafone starfa um helmingi fleiri hjá RÚV en við sambærilega starfsemi hjá hinu einkarekna félagi. Þess utan er það ekki svo að í starfsemi á borð við auglýsingasölu falli tekjurnar af himnum ofan. Það þarf að ráða sölufólk og sjá því fyrir launum, aðstöðu og búnaði. Slíkt kostar peninga sem draga mætti frá því tekjutapi sem af hlytist ef RÚV hyrfi af auglýsingamarkaði. Ekki er auðvelt að sjá hver þessi kostnaður er af ársreikningum RÚV en kannski má áætla hann sem um helming af tekjunum. Tekju- tap RÚV yrði samkvæmt því 1,1 milljarður króna árlega ef félaginu yrði meinað að selja auglýsingar. Nú skal ekki gert lítið úr störfum fólks en samanburður við einkamiðlana bendir til þess að allt of miklu sé til kostað fyrir lítil afköst í starfsemi RÚV. Ríkisfjölmiðillinn ætti að geta haldið sínu striki án þess að keppa við einkamiðlana um tekjur á frjálsum markaði. Það er engin ástæða til að bæta RÚV upp meint tap af auglýsingusölu. Einungis þarf að gera eðlilega kröfu um afköst og aðhald í rekstri. afköst og aðhald @stjornarmadur Stjórnar- maðurinn Gísli Heimisson hefur verið ráðinn forstöðumaður hugbúnaðarsviðs Kortaþjónustunnar, samkvæmt upplýsingum Markaðarins, en hann hafði verið framkvæmdastjóri MainManager frá júní 2017. Tekur Gísli við starfinu af Gunnari M. Gunnarssyni, sem jafnframt var áður annar af hluthöfum Kortaþjónustunnar ásamt Jóhannesi Inga Kolbeinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en hann hætti í byrjun ársins og við starfi hans tók Björgvin Skúli Sigurðsson. Gísli, sem er verkfræðingur að mennt, var meðal annars framkvæmdastjóri banka- og rekstrarsviðs MP banka fram til ársins 2015 og þá var hann framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Glitnis banka. Kortaþjónustan rambaði á barmi gjaldþrots eftir greiðslustöðvun flugfélagsins Monarch í október. Í kjölfarið var gengið frá sölu á fyrirtækinu til hóps fjárfesta, sem var leiddur af Kviku, á eina krónu sem lagði Kortaþjónustunni einnig til nærri 1.500 milljónir í nýtt hlutafé. – hae Gísli til kortaþjónustunnar Gísli Heimisson Auðvitað höfum við þungar áhyggjur af því að innlend framleiðsla sé á brún hengiflugs. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins 02.02.2018 0 7 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 8 -F 8 7 8 1 E E 8 -F 7 3 C 1 E E 8 -F 6 0 0 1 E E 8 -F 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.