Fréttablaðið - 07.02.2018, Qupperneq 52
Keyrðu eins
og landsbyggðarbúi
Skefur ekki af rúðum
Úti á landi er snjór í að minnsta
kosti níu mánuði ársins. Því eru
allir vanir því að koma út á morgn-
ana og þurfa að grafa eftir bílnum
sínum. Þá er fólk ekkert að eyða
tíma í óþarfa eins og að skafa af
rúðunum eða sópa snjóhólinn af
þakinu – vinnan bíður! Það er ekki
óalgengt að sjá hvíta snjóhóla keyra
um götur bæja út á landi með litla
rifu í augnhæð á framrúðunni sem
bílstjórinn notar til að sjá út, ekki
ósvipað og á skriðdreka beint úr
fyrri heimsstyrjöldinni. Sjaldgæfara
er svo að sjá landsbyggðarfólk sem
nennir ekki einu sinni rifunni og
keyrir bara með hurðina opna og
horfir þar út.
Talar digurbarkalega
um aksturinn
Fólk utan af landi sem býr í höfuð-
borginni þekkir maður á því að það
er sífellt að öskur-tala um hversu
lítið mál það sé að keyra í snjó og
hvað Reykvíkingar séu lélegir í hinni
miklu list sem það að keyra bíl er.
Af tali einhvers að norðan að dæma
mætti halda að akstur í snjó krefðist
meistaragráðu en sé ekki eitthvað
sem fólk lærir á nokkrum mánuðum
við 17 ára aldur.
Keyrir 200 metra í vinnuna
Úti á landi eru vegalengdir svo bara
200-300 metrar þannig að allur dig-
urbarki er hálf undarlegur.
lærðu að
keyra eins og
Íslendingur Úti á landi er alltaf nákvæmlega svona veður. FréTTablaðið/STeFán
Svona lítur það út þegar allt er á kafi í snjó í reykjavík. FréTTablaðið/PjeTur
Þórdís Kolbrún
reykfjörð gylfa-
dóttir, ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra vor, tísti
um slæma ökuhæfi-
leika höfuðborgarbúa
í gær. Því kemur hér
sérstök ökukennsla
í boði fulltrúa lands-
byggðar og höfuð-
borgar hér í Lífinu.
Keyrðu eins og
höfuðborgarbúi
er á sumardekkjum
Helsta ástæðan fyrir því að allt
stoppar þegar það snjóar örlítið í
borginni er sú að fólk er spólandi
á jafnsléttu enn með sumardekkin
undir á meðan aðrir keyra bara á
sínum venjulega 40-50 kílómetrum
yfir hámarkshraða og skilja ekkert
þegar bremsan virkar ekki eins og
skyldi og þau dúndra aftan á næsta
mann/ljósastaur/út í sjó.
er gríðarlega hissa yfir snjónum
Höfuðborgarbúar láta alltaf eins og
það sé kraftaverk þegar það snjóar á
Ís-landi, á veturna. Síminn stoppar
ekki því að fólk er stöðugt að senda
snöpp af snjókomunni eða tísta um
hvað það persónulega er óheppið að
hafa þurft að skafa af framrúðunni
um morguninn, eins og það sé aðal-
hetja lífsins.
Skiptir um akreinar í umferðar-
teppum
Höfuðborgarbúar gera fátt annað en
að dúsa í umferðarteppum og því er
alveg ótrúlegt hversu lélegir þeir eru
í faginu. Fæstir hafa hugmynd um
hvaða akrein sé best að vera á þrátt
fyrir að hafa keyrt sömu leiðina á
hverjum degi síðustu 10 árin og eru
því í sífellu að troðast á milli yfir-
fullra akreinanna, eins og það að
lenda á vitlausri akrein leiði þau í
margra ára ferðalag eins og Ódys-
seifur forðum daga.
stefanthor@frettabladid.is
Superb skarar fram úr á mörgum sviðum. Hann er gríðarlega rúmgóður enda með
stærsta innanrýmið og skottið í sínum flokki. Byltingarkennd hönnun, hámarksþægindi
og tæknimöguleikar auka enn á styrkleika hans. Komdu og prófaðu nýjan Superb.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
SUPERB KEMUR STERKUR
INN Í EFSTU DEILD
SUPERB. FLAGGSKIPIÐ Í ŠKODA FJÖLSKYLDUNNI.
www.skoda.is
ŠKODA SUPERB frá:
4.690.000 kr.
7 . f e b r ú a r 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r20 l í f I Ð ∙ f r É T T a b l a Ð I Ð
Lífið
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
9
-0
7
4
8
1
E
E
9
-0
6
0
C
1
E
E
9
-0
4
D
0
1
E
E
9
-0
3
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K