Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 44
44 sport 2. mars 2018
Gylfi í
n Verðmætustu
knattspyrnumenn
Íslands
Gylfi Þór Sigurðsson
Það er bara einn leikmaður Íslands sem fer úr því
að vera milljóna virði og í það að verða milljarða
virði. Virði Gylfa í dag er 3,7 milljarðar samkvæmt
þessum útreikningum. Virði Gylfa er tæpum
þremur milljörðum meira en næsta leikmanns.
3,7 milljarða
r
V
irði íslenskra knattspyrn-
umanna er misjafnt en
þegar virði þeirra er skoð-
að kemur í ljós að Gylfi Þór
Sigurðsson leikmaður Everton er í
algjörum sérflokki. Transfermarkt
heldur úti gagnagrunni þar sem
virði allra knattspyrnumanna er
metið. Þannig kemur í ljós að virði
Gylfa er 3,7 milljarðar en Alfreð
Finnbogason, sem er næstur í röð-
inni, er 744 milljóna króna virði.
Virðið er reiknað út frá aldri, lengd
samnings, launum og hvað leik-
menn eru að gera innan vallar. n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Ragnar Sigurðsson
Ragnar er nú í herbúðum Rostov í Rússlandi. Fyrri hluta tímbilsins lék hann með
Krasnodar. Hann er í láni frá Fulham en ekki er líklegt að hann snúi þangað aftur.
744 milljónir
Jóhann Berg Guðmundsson
Virði Jóhanns hefur farið úr tveimur milljónum evra í fjórar milljónir
evra eftir að hann festi sig í sessi hjá Burnley. Kantmaðurinn hefur
átt gott tímabil og ekki ólíklegt að virði hans aukist á næstunni.Viðar
Örn Kjart-
ansson
Framherjinn öflugi er 310
milljóna króna virði en ljóst
er að Maccabi Tel Aviv myndi
fara fram á talsvert hærri
upphæð fyrir hann enda
markaskorarar alltaf dýrir.
496 milljónir
310 milljónir
Sverrir
Ingi
Ingason
Virði Sverris hefur
verið að aukast
og með sama
áframhaldi mun það
aukast hressilega
næstu árin. Hann er
að stíga stór skref
fram á við og bætir
leik sinn ár frá ári.310 milljónir
Aron Einar Gunnarsson
Virði Arons hefur minnkað aðeins síðustu mánuði vegna þess að
samningur hans er á enda í sumar og því ætti virði hans að aukast á
nýjan leik í sumar.
Birkir Bjarnason
Virði Birkis hefur farið niður um eina milljón
evra á síðustu mánuðum eða allt frá því að
hann gekk í raðir Aston Villa. Það gæti þó
aukist verulega í sumar ef Aston Villa fer
upp í ensku úrvalsdeildina.
Alfreð Finnbogason
Virði Alfreðs er metið á sex milljónir evra en framherjinn knái er einn af
markahæstu leikmönnum þýsku úrvalsdeildarinnar. Alfreð hefur átt
frábæran feril en þessa stundina glímir hann við meiðsli.
496 milljónir
744 milljónir
310 milljónir
Jón Daði Böðvarsson
Framherjinn frá Selfossi hefur verið í stuði síðustu
mánuði en Reading festi kaup á honum síðasta
sumar eftir eitt ár Jóns í herbúðum Wolves.
310 milljónir
248 milljónir
Albert Guðmundsson
Hann er sá leikmaður sem ætti að auka mest virði sitt á næstu árum. Hann
býr að miklum hæfileikum og spilar fyrir stórt félag, PSV í Hollandi. Albert
er maðurinn sem íslenskt knattspyrnuáhugafólk bindur mestar vonir við.
186 milljónir
Hörður Björgvin
Magnússon
Virði Harðars hefur örlítið minnkað frá
síðasta ári en hann er að ná að festa sig í sessi
aftur í byrjunarliði Bristol og ætti verðmiðinn
að taka mið af því.
186 milljónir
Rúnar Már Sigurjónsson
Virði Rúnars hefur minnkað um 500 þúsund evrur síðasta hálfa árið en
hann er í láni hjá St. Gallen og hefur verið að spila vel síðustu vikurnar.
186 milljónir
alGjörum
sérflokki