Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 57
menning 572. mars 2018 Metsölulisti Eymundsson Vikuna 14. til 20. febrúar Vinsælast í bíó Helgina 16. til 18. febrúar. 1 Þorsti - Jo Nesbø 2 Þitt annað líf - Raphaëlle Giordano 3 Uppruni - Dan Brown 4 Óþægileg ást - Elena Ferrante 5 Mojfríður einkaspæjari - Marta Eiríksdóttir 6 Elín, ýmislegt kilja - Kristín Eiríksdóttir 7 Núvitund hagnýt leiðsögn - Mark Williams 8 Stóra bókin um Hvolpasveitina - Mary Tillworth 9 Óvelkomni maðurinn - Jónína Leósdóttir 10 Myrkrið bíður - Angela Marsons 1 Black Panther 2 Fullir vasar 3 Lói – Þú flýgur aldrei einn 4 Game Night 5 Paddington 2 6 Fifty Shades Freed 7 The Shape of Water 8 Bling 9 The Post 10 Jumanji 1 Floni - Floni 2 Kendrick Lamar - Black Panther - The Album 3 Ýmsir - Söngvakeppnin 2018 4 JóiPé & Króli - GerviGlingur 5 Herra Hnetusmjör - KÓPBOI 6 Migos - Culture II 7 Ed Sheeran - ÷ 8 Aron Can - Ínótt 9 Kaleo - A/B 10 Sam Smith- The Thrill Of It All Vinsælustu plöturnar Vikuna 14. til 20. febrúar T ónlistarmaðurinn Emmanuel Paschal, sem er líklega betur þekktur undir listamannsnafninu Nonykingz, er fæddur og alinn upp í Nígeríu en elti ástina til Ís- lands fyrir rúmlega tveimur árum og er núna búsettur á Akureyri. Fyrir þá sem vilja kynna sér nígeríska tónlist mælir hann sér- staklega með laginu Osondi Owendi sem tónlistarmaðurinn Osadede gerði vinsælt á níunda áratugnum. „Chief Stephen Osita Osadebe, sem er yfirleitt bara kall- aður Osadebe, var nígerískur „hig- hlife“-tónlistarmaður frá Atani. Hann var einn þekktasti tónlistar- maðurinn af Igbo-þjóðflokknum og átti fjörtíu ára farsælan feril. Þegar Osondi Owendi kom út árið 1984 gerði það hann að algjörum leiðtoga innan „high life“- tónlistarstefnunnar og enn í dag er þetta ein vin- sælasta plata allra tíma í Nígeríu,“ segir Emmanuel. „Nafn lagsins „Osondi Owendi“ er dregið af máls- hætti Igbo-fólksins sem væri hægt að þýða sem: „Eins manns kjöt er annars manns eitur.“ Lagið fjallar um afbrýðisemi og öfund, hvernig sumir eru alltaf hamingjusamir en aðrir aldrei. Það fjallar um hvernig fólk notar orð til að rífa hvert annað niður, hvernig það sem þú álítur vera blessun geti aðrir séð sem bölvun. Orð manns eru eins og spegill að hjarta hans.“n „Eins manns kjöt er annars manns eitur“ Nonykingz mælir með nígeríska laginu Osondi Owendi með Osadede Tónlist að heiman Nonykingz Mælir með nígerískri „highlife“-tónlist frá níunda áratugnum. Osadebe Einn af frumkvöðlum „highlife“- tónlistar stefnunnar í Nígeríu. Þ að er einmitt á svona kvöld- um í leikhúsinu, sem ég hverf í huganum langt aftur í tímann og fyllist söknuði – nostalgíu – eftir einhverju, sem var, endur fyrir löngu, en aldrei kemur til baka. Það var á svona kvöldum, sem maður skynjaði svo sterkt aðdráttarafl leikhússins – hvað það er, sem gerir leikhúsið að töfraveröld – ærir mann og tryllir. Á svona kvöldum fallast allir í faðma í lok sýningar, gráta af gleði, örþreyttir en hamingjusamir. Fagnaðarlátum áhorfenda hand- an tjaldsins ætlar aldrei að linna, það er stappað í gólfið og hrópað – „encore, encore!“ Fögnuðurinn hríslast um sviðið, og allir verða vinir. Allir – líka smiðurinn, send- illinn, skúran, sminkan og tenór- inn – jafnvel súperstjarnan. Því að samstaðan skiptir öllu máli, þegar upp er staðið. Einn hlekkur bregst – og allt hrynur. Þetta er hópvinna, þar sem allir leggjast á eitt. Sagan að baki öllum þessum hávaða og látum, skrauti og skrumi er oftast nauðaómerki- leg og varla þess virði að leggja á minnið: Ást í meinum, ást í bala, svik og prettir, bla, bla, bla … En það er gjörningurinn sjálfur, tón- listin, söngurinn, dansinn, flikk- flakkið, flippflappið og töfrabrögð- in, sem heilla áhorfendur upp úr skónum og verða ógleymanleg. Farandleikhús í félagsheimilinu Slá í gegn er einmitt dæmi um þetta. Góa er falið það hlutverk að spinna þráð úr sögu Stuðmanna, tengja saman verk þeirra, svo að úr verði heildarmynd, með upphaf og endi. – (Þetta hefði eflaust getað orðið ástarsaga með dramatískum tilþrifum, en þá hefði kannski ekki orðið svona gaman í leikhúsinu) – Nei, Gói velur þá leið, sem reynd- ar lá í augum uppi, að búa til far- andleikhús, sem var mjög í tísku á þeim árum, þegar Stuðmenn voru að fóta sig í tónlistarflórunni. Þá var ferðast um landið að sumarlagi, boðið upp í dans í félagsheimilum, og duflað og daðrað fram undir morgun. Stuðmenn urðu fljótlega eftirlæti allra – þeir slógu í gegn, mjög ólíkir, en samhentir þó. Hver snillingurinn á fætur öðrum. Ragga varð svo rósin í hnappa- gatinu. Hver smellurinn af öðrum smitaði frá sér út í þjóðfélagið. Lög Stuðmanna voru komin til að vera. Þeir voru þarna, Stuðmennirnir, næstum allir um kvöldið í leik- húsinu – nema Tómas, blessuð sé minning hans. Ég sá ekki Valla. Löngu orðnir goðsagnir í lifanda lífi, en – þrátt fyrir frægðarljómann – hógværir og lítillátir. Þakklátir? Já, kannski. Sjálft Þjóðleikhúsið lagt undir, virðulegasta stofnun þjóðfé- lagsins. Aðdáendur gátu ekki dulið fögnuð sinn, allir brosandi út að eyrum, trallandi „slá í gegn“. Heimurinn í heimsókn Í upphafi leit út fyrir, að sagan hans Góa ætlaði að verða svolítið púkó – naív eða gamaldags. Jón Gnarr, fyrr- verandi borgarstjóri Reykjavíkur, mættur í hlutverki hins heimaríka allsherjarþorpsreddara, sem er að færa upp Gullna hliðið í félagsheim- ilinu, í lopapeysu með kústinn á lofti. Einhvern veginn gat maður ekki al- veg sæst við borgarstjórann fyrrver- andi í þessu hlutverki. Var þetta djók? En svo breytist allt, þegar sirkus- inn kemur í bæinn, heimurinn kemur í heimsókn. Þorpsbúar fá tækifæri til að sýna, hvers þeir eru megnugir. Og það er ekki upp á þá logið: Edda Björgvins, Sigurður Þór, Siggi Sigurjóns, Esther Talía, Hall- grímur, Oddur, Birgitta, og Þórey syngja öll, dansa og hlæja af slíkri hjartans list, að maður sýpur hveljur og tárast. Og ekki versnar það, þegar Helga og Binni (Ólafía og Örn) – og auðvitað dóttir þeirra, hún Harpa Sjöfn (Snæfríður) – skerast í leikinn, og sirkusinn tekur á sig mynd. Þau Helga og Binni, sem eru vön í bransanum, vita sem er, að sjóið er ekki fullkomnað, nema þau geti boðið upp á stórstjörnu í lokin. Og þar kemur hr. Frímann til sögunnar (Hilmir Örn), ásamt aðstoðarmanni sínum, Herra Reykjavík (Bjarni Snæbjörnsson) – og trylla liðið. Áhorfendur geta varla setið kyrrir í sætum sínum fyrir gleðihrolli. Ótrúleg færni og hópvinna Það sem eftir situr, þegar upp er staðið, er þessi ótrúlega færni – og þá er ég ekki að tala um stórstjörn- ur eins og Ólafíu Hrönn, Örn Árna, Eddu Björgvins, Sigga Sigur jóns eða Hilmi Snæ – við vitum allt um þau. Ég er að hugsa um þessa ungu krakka, sem sýndu fágæta agaða leikni, hvort sem var í dansinum eða fimleikunum. Þeir voru eiginlega hið undraverðasta í þessari sýningu. Danshöfundurinn, Chantelle Car- ey, er greinilega fagmanneskja, stel- ur ekki sjóinu, en gefur því fyllingu og fjör. Gleður augað. Við erum stödd í „vaudeville“, leikhúsi gleðinnar. Það er sungið og dansað á sviðinu. Gleðigjafar og grínarar gantast. En þar koma líka við sögu hönnuðir, smiðir, danshöfundar, ljósameistarar, búninga hönnuðir og tónlistar- menn. Án þeirra væri ekkert leik- hús – ekkert „vaudeville“ – enginn sirkus. Þessi sýning er dæmi um frábæra hópvinnu. Ef einn hlekkur bregst, þá hrynur allt. Áhorfendur stöppuðu í gólfið, vildu meira – hrópuðu „encore, encore“, alveg eins og forðum, þegar allt gekk vel. Að tjaldabaki hefur eflaust verið grátið og hleg- ið, faðmað og kysst – allir verið vinir. Og einhvern tíma í framtíð- inni verður þetta kvöld í leikhús- inu bara dýrmæt minning, sem yljar. Njótið á meðan varir. n Þau slógu í gegn … Bryndís Schram ritstjorn@dv.is Leikhús Slá í gegn Handrit og leikstjórn: Guðjón Davíð Karlsson Tónlist: Stuðmenn Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn Árnason, Snæfríður Ingvarsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Jón Gnarr, Sigurður Þór Óskarsson, Séra Baddi, Esther Talía Casey, Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson, Birgitta Birgisdóttir, Þórey Birgisdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Bjarni Snæbjörnsson Danshöfundur: Chantell Carey Dansarar: Julietta Louste, Ernesto Camilo Aldazabal Valdes, Hjörtur Viðar Sigurðsson, Sölvi Viggósson Dýrfjörð Sirkuslistafólk: Nicholas Arthur Candy, Harpa Lind Ingadóttir, Sindri Dego Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson og Kristján Sigmundur Einarsson Tónlistarstjórn: Vignir Snær Vigfússon Hljómsveit: Vignir Snær Vigfússon, Karl Olgeirsson, Helgi Reynir Jónsson, Þorvaldur Þór Þorvaldsson, Róbert Þórhallsson, Aron Steinn Ásbjarnarson Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 24. febrúar (skrifað sunndaginn 25. febrúar) M y N D H ö r ð u r S v ei N SS O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.