Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 54
54 fólk 2. mars 2018 Elínrós líndal Fædd: 5. mars 1974 Starf: Framkvæmdastjóri ÞorstEinn J. VilhJálmsson Fædd: 2. mars 1964 Starf: Fjölmiðlamaður sigmundur Ernir rúnarsson Fædd: 6. mars 1961 Starf: Fjölmiðlamaður og skáld ÞorValdur BJarni ÞorValdsson Fædd: 3. mars 1966 Starf: Tónlistarmaður 57 ára Afmælis- börn vikunnar Verða árinu eldri á næstu dögum 52 ára 54 ára 44 ára F yrir okkur sem ólumst upp á tíunda áratug síðustu aldar er gaman að segja frá þáttunum Everything Sucks! á Netflix en fyrir þennan aldurshóp er þetta nostalgíuveisla af bestu gerð. Þættirnir fylgja að mörgu leyti sömu reglum og sögulínu og fjölskylduþættirnir sem flest okkar fylgdumst með á tíunda áratugnum. Sumir elskuðu þessa línulegu framhaldsþátta dagskrá meðan öðrum leið eins og föng­ um. Sjónvarpsþáttaraðir sem helst má nefna til samanburðar eru hin­ ir snilldarlegu Freaks & Geeks, My So called Life og fleiri í þeim dúr. Skemmtilegast fannst mér þó hvað þættirnir minntu mig mikið á Fucking Åmål eftir Lukas Moody­ son, sem vill svo skemmtilega til að var uppáhaldskvikmyndin mín þegar ég var unglingur. Mörg atriði í þáttunum eru keimlík myndinni og eru tvær aðalkvenpersónurnar mjög líkar aðalstelpunum í Fuck­ ing Åmál, bæði hvað varðar útlit og persónuleika. Það kom mér því skemmtilega á óvart að lesa viðtal við þá sem skrifuðu þáttaröðina og sjá að sú mynd var í raun og veru aðaláhrifavaldurinn á þættina. Flækjur og árekstrar framhaldsskólaáranna Aðalpersónur Everything Sucks! eru Luke (Jahi Di‘Allo Winston) og vin­ ir hans sem eru að byrja á fyrsta ári í framhaldsskóla í smábænum Bor­ ing í Oregon. Luke verður skotinn í Kate (Peyton Kennedy) sem er dótt­ ir skólastjórans og annars árs nemi. Félagarnir ganga í gegnum allar flækjur og árekstra framhaldsskóla­ áranna með viðkomu allra klassísku persónanna sem koma að lífi okk­ ar, foreldra, kennara, vina og skóla­ systkina og við fáum að skyggnast inn í líf þeirra allra. Nostalgíuáhrifin af þáttun­ um eru mjög góð þrátt fyrir að margt sé frábrugðið því sem tíðkaðist hér á landi. Til dæmis dæmdu börn fjárhags­ lega stöðu vina sinna ekki bara út frá því hvort það var Stöð 2 á heimilinu eða ekki, – eins og var almennt gert í mínum vina­ hópi. En í þáttunum er samt sem áður hrúga af köflóttum skyrtum, derhúfur snúa öfugt, stelpur ganga með smelluarm­ bönd, hlustað er á geisladiska og horft er á tónlistar myndbönd. Víd­ eóspólur eru leigðar, lukkutröllum er safnað og plaggöt eru hengd upp á veggi. Ekkert talað um rasismann Þáttaröðin er nokkuð lengi að kom­ ast af stað og lifir svolítið á nostal­ gíunni. Endirinn er hins vegar hjartnæmur og fullnægjandi og skilur mann eftir með löngun til að vita meira. Hægt væri að segja að hjartnæmnin gangi samt stund­ um aðeins of langt þar sem aðal­ persónan, Luke, og mamma hans eru bæði svört en það kemur aldrei upp nein umræða um rasismann sem hefur alltaf verið til staðar í Bandaríkjunum, hvað þá á tíunda áratugnum og hvað þá í Oregon sem á mjög langa og ofbeldisfulla sögu af kynþáttahatri. Og þrátt fyrir að ein aðal­ persóna þáttanna sé að koma út úr skápnum er heldur ekk­ ert fjallað um þá fordóma sem hinsegin fólk verður fyrir og erfiðleikana við það að koma út úr skápnum bæði í dag og á þessum tíma. Ég bind hins vegar miklar vonir við að tekið verði á þessum málum í næstu seríu þar sem margir hafa gagn­ rýnt þessa afneitun í handrits­ höfundunum. Vinsamlegast spólið til baka Þrátt fyrir þessa hnökra þá mæli ég samt sem áður með þáttunum sem góðu afþreyingar efni og kannski al­ veg sérstaklega fyrir fólk sem ólst upp á tíunda áratugnum. Það er tilvalið að horfa á þættina með börnunum, sýna þeim hvernig hlutirnir virkuðu þegar við þurftum að hringja inn internetið með hávaðasömum „router“ og spóla myndbands­ spólum til baka. Aðalleikari þátt­ anna, sem er fimmtán ára, þurfti að fá kennslu við að setja spólu í tækið, af því hann hafði aldrei séð þessar græjur áður. Vá, hvað við erum orðin gömul! n Everything Sucks! Tinna Eik Rakelardóttir fjallar um nýja nostalgíuþætti á Netflix Internetið 1996 Það er tilvalið að horfa á þættina með börnunum, sýna þeim hvernig hlutirnir virkuðu þegar við þurftum að hringja inn internetið með hávaðasömum „router“ og spóla myndbandsspólum til baka. Undir áhrifum frá Fucking Åmål „Það kom mér því skemmtilega á óvart að lesa viðtal við þá sem skrifuðu þátta- röðina og sjá að sú mynd var í raun og veru aðaláhrifavaldurinn á þættina.“ „Aðalleikari þáttanna, sem er fimmtán ára, þurfti að fá kennslu við að setja spólu í tækið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.