Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 47
sakamál 472. mars 2018 E inu sinni var maður að nafni Damian Oldfield. Damian var á meðal áhorfenda sjón- varpsþáttar sem bar heitið God's Gift, Guðs gjöf, árið 1996. Á meðal þeirra sem komu fram í þættinum var Anthony nokkur Morley, en kynnir var Davina McCall. Þremur árum fyrr hafði téð- ur Anthony unnið keppnina Herra Samkynhneigður – Bret- land á næturklúbbinum Flamingo í Blackpool. Sigurinn tryggði Anthony 1.000 sterlingspunda vinningsupphæð, ferð eitthvert út í heim og klæðnað. Það allt saman er þó önnur saga. Upphaf vinskapar Sem sagt, árið 1996 var Damian í hópi áhorfenda God's Gift. Damian vann fyrir tímaritið Bent, sem fjallaði um lífsstíl samkyn- hneigðra og síðar meir kom hann einnig fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti. Með honum og Anthony tókust ágætis kynni. Nú vindur sögunni fram til ársins 2008, 23. apríl nánar tiltekið. Daginn þann heimsótti Damian vin sinn Anthony. Þegar þar var komið sögu bjó Anthony í Harehills í Leeds og starfaði sem aðstoðaryfirkokkur á ónefndum veitingastað. Alblóðugur á inniskóm Klukkan hálf þrjú um nóttina staulaðist dauðadrukkinn karl- maður, íklæddur engu öðru en náttslopp og inniskóm, þakinn blóði frá hvirfli til ilja, inn á kebab- veitingastað í Leeds. Var þar mættur Anthony Morley og bað hann um að sam- band yrði haft við lögregluna; hann hefði banað manni sem reyndi að nauðga honum. Í svefnherbergi á heimili Anthonys fann lögreglan klæða- laust lík Damians. Flest benti til að Damian hefði verið undir sænginni þegar átök brutust út. Hann hafði verið stunginn 20 sinnum, einu sinni af miklu afli í bringuna og nítján sinnum í bakið. Leifar í ruslafötu Lögreglumönnum brá þó heldur meira í brún þegar þeir uppgötvuðu að búið var að skera vænar flísar af fótleggjum Dami- ans. Sex bitar fundust sem búið var að krydda og matreiða og einn biti að auki í ruslafötunni og voru bitför í honum. Nú, Anthony var ákærður fyrir morð og við réttarhöldin sagði hann að hann hefði beðið Dami- an að koma inn í svefnherbergi til að horfa á DVD-myndir og eitt hefði leitt af öðru. Hann full- yrti einnig að atburðarásin væri frekar þokukennd og eftir sumu sem gerðist myndi hann einfald- lega ekki. Kemur af fjöllum „Ég man að ég fann fyrir honum ofan á mér, hann gerði það sem hann gerði. Mér fannst ég vera dofinn og sem ég hefði enga stjórn. Mér leið illa og fannst ég vera svik- inn. Við höfðum rætt þessi mál. Mér hugnaðist ekki að við ættum í kynferðislegu sambandi enda nýlega búnir að virkilega læra að þekkja hvor annan. Ég veit ekki af hverju ég drap hann, í sannleika sagt; ég hef ekki hugmynd,“ sagði Anthony og virt- ist koma af fjöllum. Frásagnir fyrrverandi kærasta Sem fyrr segir fullyrti Anthony að hann myndi ekki eftir því of- beldi sem hann beitti Damian, en kviðdómur lagði ekki trúnað á orð hans í þeim efnum. Í mati kviðdóms vóg þungt framburður fyrrverandi kærasta Anthonys sem sagði að Anthony hefði ógnað honum með kjötöxi í deilu um peninga. Annar fyrrver- andi kærasti Anthonys sagði að Anthony hefði ráðist á hann úti á götu, en útskýrði það ekkert nánar. Í október árið 2008 var Anthony Morley sakfelldur og fékk lífstíðar- dóm. n Grunur vaknar Maud Marsh, 19 ára, tók við stöðu Bessie, hvort tveggja á barnum og í beði Georgs. Fljótlega varð ljóst að ekki var mikil heilsu- bót fólgin í nánum félagsskap við George. Maud sýndi brátt sömu sjúkdómseinkenni og fyrirrennarar hennar og dó árið 1902. Þá bar svo við að læknir hennar neitaði að gefa út dánarvottorð. Hann hafði einnig séð um Bessie síðustu daga hennar og fannst sem maðkur væri í mysunni. Að auki hafði móðir Maud haft á orði við lækninn að hana grunaði að dóttur sinni hefði verið byrluð ólyfjan. Læknir móður- innar var sama sinnis. Sannanir finnast Líkið af Maud var krufið og, mikið rétt, fundust leifar af antímoni, sem hefur álíka virkni og arsenik. Lík Mary og Bessie voru þá grafin upp og þar var sömu sögu að segja. Einnig lá ljóst fyrir að George hafði endrum og sinnum keypt þetta efni. Í Old Bailey í London var kveðinn dauðadómur yfir George og þann 7. apríl, 1903, átti hann stefnumót við gálgann. Það sem síðan hefur vakið upp spurn- ingar er hví George myrti konurnar. Ekki var hann kvæntur þeim og því var fjárhags- legur ávinningur, í formi arfs, enginn og honum hefði verið í lófa lagið að snúa við þeim baki hvenær sem hann vildi. n „Ég átti allt eins von á að hann stykki yfir sakamannabekk- inn og réðist á mig Með Bessie Taylor Bessie tók stöðu Mary Spink að henni genginni. Kræsingar kokksins n Heimsókn að kvöldi til endaði með ósköpum og matseld n Nítján hnífstungur í bakið „Við höfðum rætt þessi mál. Mér hugn- aðist ekki að við ættum í kynferð- islegu sambandi. Kokkurinn Anthony Morley sagðist lítið muna eftir atburðum kvöldsins. Kræsingin Bitar af Damian Oldfield voru kryddaðir og matreiddir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.