Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 56
56 2. mars 2018 Menning „Ég á hana, ég á hana!“ Lóuunginn Lói er stjarna íslensku tölvuteiknimyndarinnar „Lói – Þú flýgur aldrei einn“. Myndin hefur notið nokkurra vinsælda en verið gagnrýnd fyrir að innihalda stöðluð kynjahlutverk og skaðlegar karlmennsku ímyndir. Meðal annars hefur verið gagnrýnt að Lói segist eiga vinkonu sína, Lóu, þegar annar fugl stígur í vænginn við hana. 1 Konur gera það gott Annað árið röð hlaut kvikmynd eftir konu Gullbjörninn, aðalverðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín. Það var rúm- enski leikstjórinn Adina Pintilie sem hlaut verðlaunin í ár fyrir kvikmyndina Touch Me Not, en hún er aðeins sjötta konan í 68 ára sögu hátíðarinnar sem hlýtur verðlaun fyrir bestu myndina. Umræða um stöðu kvenna var einnig áberandi á hátíðinni þar sem pallborðsumræður fóru fram. 2 Djörf verðlaunamynd Það þótti nokkuð djörf ákvörðun hjá dóm- nefndinni að veita Touch Me Not aðalverð- launin, en hún er fyrsta kvikmynd Adinu Pintilie í fullri lengd, en bakgrunnur henn- ar er í tilraunakenndri kvikmyndagerð. Myndin er sögð vera á mörkum heimilda- og leikinnar myndar – nánast vídeóritgerð – og fjallar hún um líkamlega nánd. Þar sjást margs konar líkamar og óhefðbundn- ar kynlífsathafnir en það hefur gengið fram af sumum áhorfendum. Myndin hefur fengið mjög misjafna dóma, til dæmis var kvikmyndagagnrýnandi breska dagblaðsins The Guardian alls ekki hrifinn og sagði hana grunnhyggna og kjánalega. 3 … með Tómasi Lemarquis í aðalhlutverki Það sem er enn fréttnæmara fyrir Frónbúa er að Tómas Lemarquis leikur eitt aðalhlut- verk myndarinnar og er það í fyrsta skipti sem íslenskur leikari fer með eitt aðalhlut- verkanna í mynd sem hlýtur Gullbjörninn. 4 Wes Anderson fór í hundana Það kom ekki mörgum á óvart að hinn virti bandaríski leikstjóri Wes Anderson skyldi hljóta Silfurbjörninn, verðlaun fyrir bestu leikstjórn á hátíðinni. Hann var verðlaun- aður fyrir brúðuhreyfimynd sína Isle of Dogs, sem er dystópísk framtíðarmynd sem fjallar um hunda í sóttkví á eyju fyrir utan Japan. Anderson hlaut sömu verðlaun fyrir síðustu mynd sína, Grand Budapest Hotel. Það var leikarinn Bill Murray sem tók við verðlaununum fyrir hönd Anderson en hann talar fyrir einn hundanna sem er í að- alhlutverki í myndinni: „Ég bjóst aldrei við því að einn daginn færi ég í vinnuna sem hundur og kæmi heim með björn.“ 5 Mynd um Úteyjarmorðin frumsýnd Á hátíðinni var frumsýnd ný leikin kvik- mynd eftir norska leikstjórann Erik Poppe um fjöldamorðin í Útey árið 2001. Myndin, sem nefnist U-July 22, fjallar um daginn þegar hægriöfgamaðurinn Anders Behring Breivik myrti 69 manns, í Ósló og Útey, þar sem hópur ungra jafnaðarmanna hafði komið saman. Öll myndin er frá sjónar- horni skáldaðra fórnarlamba en byggir þó á hinum raunverulegu atburðum, og sést fjöldamorðinginn Breivik varla í mynd. Gagnrýnendur voru almennt nokkuð hrifn- ir af myndinni en aðstandendur fóru þó tómhentir heim af verðlaunaathöfninni. 6 Willem dAfoe fær heiðursverðlaun Bandaríski stórleikarinn Willem Dafoe hlaut heiðursverðlaun kvikmynda- hátíðarinnar, en hann hefur leikið í yfir 100 myndum, mörgum þeirra með mestu kvikmyndaverkum samtímans. Hann hefur leikið allt frá illmennum úr teiknimynda- sögum til sjálfs Jesú Krists. 7 Rifrildi M.I.A. og leikstjóra heimildamyndar um hana Á hátíðinni var frumsýnd heimildamyndin MATANGI / MAYA / M.I.A. um hina hápóli- tísku og ögrandi tónlistarkonu M.I.A. Myndin byggir fyrst og fremst á myndefni sem hún hefur sjálf tekið upp á síðustu 22 árum og gefur einstaka sýn inn í líf hennar – meðal annars er tekist á við fjar- veru föður hennar, en hann var einn stofn- enda Tamíltígranna, aðskilnaðarhreyfingar Tamíla á Srí Lanka. Það var vinur hennar úr listaháskóla, Steve Loveridge, sem leik- stýrði myndinni. Þó að myndin hafi fengið ágætis viðtökur var tónlistarkonan allt annað en sátt við útkomuna og lét hún þá skoðun sína skýrt í ljós á blaðamannafund- um sem enduðu oftar en ekki með rifrildi milli leikstjórans og hennar. 8 Spenna fyrir Verbúðinni Þáttaröðin Verbúðin, sem listahópurinn Vesturport er með í undirbúningi í sam- vinnu við RÚV, vann til svokallaðra Series Mania-verðlauna á CoPro Series-kynn- ingarviðburðinum sem fór fram á hátíð- inni. Verðlaunin fela í sér að Verbúðin mun verða með í söluráðstefnu með kaupend- um sjónvarpsefnis, sem haldin verður í Lille í Frakklandi í maí næstkomandi. 9 Adam frumsýndur Þýska kvikmyndin Adam, önnur kvikmynd Maríu Sólrúnar Sigurðardóttur, var frum- sýnd í Generation hluta kvikmyndahátíðar- innar, en sonur hennar, Magnús Maríuson, fer með aðalhlutverkið. Kvikmyndavefur- inn Variety hældi sérstaklega leikrænum tilþrifum Magnúsar í myndinni. 10 Sólófrumraun Herdísar Tónlistarkonan og kvikmyndatónskáldið Herdís Stefánsdóttir, sem íslenskir popp- unnendur kannast við úr rafdúettinum East of My Youth, kom í fyrsta skipti fram undir eigin nafni á tónleikum á hátíðinni. Herdís gerði einnig tónlist við nígerísku stuttmyndina Besida sem sýnd var á stutt- myndahluta hátíðarinnar. kristjan@dv.is Stærstu fréttirnar frá Berlinale Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín fór fram í síðustu viku Ekki snerta Tómas Lemarquis er í einu aðalhlutverka í hinni djörfu verðlaunamynd Touch Me Not. Sársaukafulll minning Leikna kvikmyndin U-July 22, sem fjallar um fjöldamorðin í Útey árið 2011, var frumsýnd á hátíðinni. Willem Dafoe Var verðlaunaður fyrir ævistarf sitt. Kom sá og sigraði Rúmenska kvikmyndagerðarkonan Adina Pintilie hlaut Gullbjörninn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.