Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 30
Betri borgarar 2. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Það voru gleðitíðindi þegar Hard Rock Cafe var opnað aftur á Íslandi eftir langt hlé en nýr staður keðjunnar við
Lækjargötu var opnaður árið 2016 og hefur
fengið frábærar viðtökur. Hard Rock Cafe
er alþjóðleg keðja með yfir 180 veitingastaði
en auk veitingastaðanna rekur keðjan hótel
og spilavíti.
Maturinn á Hard Rock er rómaður og þar
leika hamborgarar stórt hlutverk: „Á hverju
ári höldum við World Burger Tour þar sem við
veljum „Local Legendary“ hamborgara frá
öðrum veitingastöðum Hard Rock í heimin-
um. Allir staðir Hard Rock í heiminum hafa
alltaf sinn „Local“ hamborgara. Í fyrra völdum
við nokkra frábæra og einn þeirra varð svo
vinsæll að hann er núna kominn á matseðil-
inn okkar og er þar einn af okkar vinsælustu
hamborgurum. Hann heitir Memphis og er frá
Tennesee í Bandaríkjunum. Þetta er þeirra
„Local Legendary“ og hann er geggjaður,“
segir Styrmir Bjartur, sölu- og markaðsstjóri
hjá Hard Rock Cafe á Íslandi.
Þetta er grillaður hamborgari með Tenn-
essee reyktu grísakjöti, cheddar-osti, stökk-
um laukstráum í ristuðu brioche-brauði með
hvítlauks-aioli, Memphis-hrásalati og sýrð-
um dill-gúrkum. Herlegheitin kosta 2.690 kr.
Sjá nánar um Hard Rock Cafe
Lækjargötu á www.hardrock.com/cafes/
reykjavik/ og Facebook-síðunni
á www.hardrock.is
Hard Rock Cafe:
Memphis-borgarinn slær í gegn
Mynd Sigtryggur Ari
Kopar er í einni af verbúðunum við gömlu höfnina í Reykjavík, en þar hefur staðurinn verið í
hringiðu mannlífsins í fimm ár, með
frábært útsýni.
„Það sem leiddi okkur og fjárfesta
okkar saman var að þeir voru búnir
að fylgjast með þessu húsnæði og
þeim fannst það ekki nógu vel nýtt
fyrir þann straum af fólki sem gengur
hér framhjá,“ segir Ylfa Helgadóttir
landsliðskokkur sem á og rekur
staðinn ásamt Ástu Guðrúnu Óskars-
dóttur. Þær hafa báðar góða reynslu
úr veitingabransanum, Ylfa sem kokk-
ur og Ásta sem þjónn.
„Á sama tíma vorum við Ásta að
leita okkur að stað á öðrum stað
í borginni, en vorum með okkar
ákveðnu hugmyndir.“ Það má því
segja að þau hafi smollið saman á
réttum stað og réttum tíma með
Kopar, sem hefur verið vinsæll meðal
þeirra fjölmörgu gesta sem sækja
höfnina heim og annarra.
Á staðnum eru fisk- og sjávarréttir
í fyrirrúmi vegna nálægðar við höfn-
ina, enda úrval af sjávarréttum mikið.
„Við vinnum með að elda góðan og
djúsí mat og reynum að hafa eitt-
hvað fyrir alla. Við gerum nýjan rétt á
hverjum degi, fisk dagsins, og hann er
það vinsæll að hann klárast á hverj-
um degi. Við erum líka með lamba-
fillet, sem við steikjum með fitunni
sem er mjög vinsælt.“
Djúsí nautaborgari það nýjasta í
hádeginu
„Við erum með nýjan hamborgara á
matseðli í hádeginu, sem hefur enn
ekki fengið nafn. Þetta er grillaður
nautaborgari með piparosti, beikoni
og barbíkjúsósu. Það sem gerir hann
sérstakan fyrir utan að vera djúsí og
grillaður, er að við notum eingöngu
hreint nautahakk, brauðið er brioche-
smjörbrauð sem við steikjum með
smjöri og svo toppum við hann með
djúpsteikri smágúrku (pikklaðri gherk-
in). Við höfum notað brioche-brauðið
frá opnun, smjörbragðið gefur meiri
fyllingu.“
Svo er það smágúrkan, sem fólk er
ýmist hrifið af eða alls ekki, þannig að
við brugðum á það ráð að djúpsteikja
hana þannig að hún verður „krispí“
að utan í svona deigi, síðan setjum
við hana ofan á brauðið þannig að
pinninn sem heldur borgaranum
saman heldur í hana og því auðvelt
að fjarlægja hana ef fólk vill.“
Með borgaranum fylgja krydd-
kartöflubátar, sem eru svakalega
góðir og er boðið upp á val á milli
chili-, gráðosta- eða béarnaisema-
jónes. Barbíkjúsósan er ráðandi a
borgaranum sjálfum.
„Um helgina er Food and Fun í
gangi og það eru örfá sæti laus hjá
okkur á jaðartímum, ef fólk vill koma
snemma eða seint. Það verður mikið
fjör í miðbænum um helgina.
Kopar tekur 90 manns í sæti og er í
anda New York, það er þröngt og kósí
hjá okkur.“
Kopar er að Geirsgötu 3b, 101
Reykjavík. Síminn er 567-2700 og
netfangið info@koparrestaurant.is.
Heimasíða er koparrestaurant.is. og á
Facebook.
Kopar er opið virka daga í hádeg-
inu frá kl. 11.30–14.00 og öll kvöld
frá kl. 17.00–22.30 (föstudaga og
laugardaga til kl. 23.30).
Borgari í brioche-brauði
bræðir bragðlaukana
KopAR: