Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 30
Betri borgarar 2. mars 2018KYNNINGARBLAÐ Það voru gleðitíðindi þegar Hard Rock Cafe var opnað aftur á Íslandi eftir langt hlé en nýr staður keðjunnar við Lækjargötu var opnaður árið 2016 og hefur fengið frábærar viðtökur. Hard Rock Cafe er alþjóðleg keðja með yfir 180 veitingastaði en auk veitingastaðanna rekur keðjan hótel og spilavíti. Maturinn á Hard Rock er rómaður og þar leika hamborgarar stórt hlutverk: „Á hverju ári höldum við World Burger Tour þar sem við veljum „Local Legendary“ hamborgara frá öðrum veitingastöðum Hard Rock í heimin- um. Allir staðir Hard Rock í heiminum hafa alltaf sinn „Local“ hamborgara. Í fyrra völdum við nokkra frábæra og einn þeirra varð svo vinsæll að hann er núna kominn á matseðil- inn okkar og er þar einn af okkar vinsælustu hamborgurum. Hann heitir Memphis og er frá Tennesee í Bandaríkjunum. Þetta er þeirra „Local Legendary“ og hann er geggjaður,“ segir Styrmir Bjartur, sölu- og markaðsstjóri hjá Hard Rock Cafe á Íslandi. Þetta er grillaður hamborgari með Tenn- essee reyktu grísakjöti, cheddar-osti, stökk- um laukstráum í ristuðu brioche-brauði með hvítlauks-aioli, Memphis-hrásalati og sýrð- um dill-gúrkum. Herlegheitin kosta 2.690 kr. Sjá nánar um Hard Rock Cafe Lækjargötu á www.hardrock.com/cafes/ reykjavik/ og Facebook-síðunni á www.hardrock.is Hard Rock Cafe: Memphis-borgarinn slær í gegn Mynd Sigtryggur Ari Kopar er í einni af verbúðunum við gömlu höfnina í Reykjavík, en þar hefur staðurinn verið í hringiðu mannlífsins í fimm ár, með frábært útsýni. „Það sem leiddi okkur og fjárfesta okkar saman var að þeir voru búnir að fylgjast með þessu húsnæði og þeim fannst það ekki nógu vel nýtt fyrir þann straum af fólki sem gengur hér framhjá,“ segir Ylfa Helgadóttir landsliðskokkur sem á og rekur staðinn ásamt Ástu Guðrúnu Óskars- dóttur. Þær hafa báðar góða reynslu úr veitingabransanum, Ylfa sem kokk- ur og Ásta sem þjónn. „Á sama tíma vorum við Ásta að leita okkur að stað á öðrum stað í borginni, en vorum með okkar ákveðnu hugmyndir.“ Það má því segja að þau hafi smollið saman á réttum stað og réttum tíma með Kopar, sem hefur verið vinsæll meðal þeirra fjölmörgu gesta sem sækja höfnina heim og annarra. Á staðnum eru fisk- og sjávarréttir í fyrirrúmi vegna nálægðar við höfn- ina, enda úrval af sjávarréttum mikið. „Við vinnum með að elda góðan og djúsí mat og reynum að hafa eitt- hvað fyrir alla. Við gerum nýjan rétt á hverjum degi, fisk dagsins, og hann er það vinsæll að hann klárast á hverj- um degi. Við erum líka með lamba- fillet, sem við steikjum með fitunni sem er mjög vinsælt.“ Djúsí nautaborgari það nýjasta í hádeginu „Við erum með nýjan hamborgara á matseðli í hádeginu, sem hefur enn ekki fengið nafn. Þetta er grillaður nautaborgari með piparosti, beikoni og barbíkjúsósu. Það sem gerir hann sérstakan fyrir utan að vera djúsí og grillaður, er að við notum eingöngu hreint nautahakk, brauðið er brioche- smjörbrauð sem við steikjum með smjöri og svo toppum við hann með djúpsteikri smágúrku (pikklaðri gherk- in). Við höfum notað brioche-brauðið frá opnun, smjörbragðið gefur meiri fyllingu.“ Svo er það smágúrkan, sem fólk er ýmist hrifið af eða alls ekki, þannig að við brugðum á það ráð að djúpsteikja hana þannig að hún verður „krispí“ að utan í svona deigi, síðan setjum við hana ofan á brauðið þannig að pinninn sem heldur borgaranum saman heldur í hana og því auðvelt að fjarlægja hana ef fólk vill.“ Með borgaranum fylgja krydd- kartöflubátar, sem eru svakalega góðir og er boðið upp á val á milli chili-, gráðosta- eða béarnaisema- jónes. Barbíkjúsósan er ráðandi a borgaranum sjálfum. „Um helgina er Food and Fun í gangi og það eru örfá sæti laus hjá okkur á jaðartímum, ef fólk vill koma snemma eða seint. Það verður mikið fjör í miðbænum um helgina. Kopar tekur 90 manns í sæti og er í anda New York, það er þröngt og kósí hjá okkur.“ Kopar er að Geirsgötu 3b, 101 Reykjavík. Síminn er 567-2700 og netfangið info@koparrestaurant.is. Heimasíða er koparrestaurant.is. og á Facebook. Kopar er opið virka daga í hádeg- inu frá kl. 11.30–14.00 og öll kvöld frá kl. 17.00–22.30 (föstudaga og laugardaga til kl. 23.30). Borgari í brioche-brauði bræðir bragðlaukana KopAR:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.