Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 55
menning 552. mars 2018
S
unnudaginn 4. mars verður
botninn sleginn í kvikmynda-
árið 2017 þegar stærsta verð-
launahátíð kvikmyndaiðnað-
arins, sjálf Óskarsverðlaunahátíðin,
fer fram í 90. sinn. Hátíðin fer fram
í Dolby-leikhúsinu í Hollywood
og spjallþáttstjórnandinn Jimmy
Kimmel verður kynnir.
Verðlaun verða veitt í alls 24
flokkum og það er The Shape of
Water sem er með flestar tilnefn-
ingar, alls 13, næst á eftir kemur
Dunkirk með 8 tilnefningar og
Three Billboards Outside Ebbing,
Missouri með 6 tilnefningar.
DV fékk nokkra álitsgjafa til
að velja sigurvegara í sjö flokk-
um: besta mynd, leikstjórn, hand-
rit, besta leikkona í aðal- og auka-
hlutverki og besti leikari í aðal- og
aukahlutverki. Þessar myndir eru
tilnefndar í þessum flokkum:
Besta myndin Níu myndir eru tilnefndar: Call Me By Your Name, Darkest hour,
Dunkirk, Get Out, Lady Bird, Phantom Thread, The Post, The Shape of Water og Three
Billboards Outside Ebbing, Missouri.
Leikstjórn Tilnefnd eru: Christopher Nolan (Dunkirk), Jordan Peele (Get Out),
Greta Gerwig (Lady Bird), Paul Thomas Anderson (Phantom Thread) og Guillermo Del
Toro (The Shape of Water).
Frumsamið handrit Tilnefndar eru: The Big Sick, Get Out, Lady Bird, The
Shape of Water og Three Billboards Outside Ebbing, Missouri.
Leikkona í aðalhlutverki Tilnefndar eru: Sally Hawkins (The Shape of
Water), Frances McDormand (Three Billboards outside Ebbing, Missouri), Margot Robbie
(I,Tonya), Saoirse Ronan (Lady Bird) og Meryl Streep (The Post).
Leikari í aðalhlutverki Tilnefndir eru: Daniel Day-Lewis (Phantom
Thread), Timothée Chalamet (Call Me By Your Name), Daniel Kaluuya (Get Out), Gary
Oldman (Darkest Hour) og Denzel Washington (Roman J.Israel).
Leikkona í aukahlutverki Tilnefndar eru: Mary J. Blige (Mudbound),
Allison Janney (I,Tonya), Lesley Manville (Phantom Thread), Laurie Metcalf (Lady Bird)
og Octavia Spencer (The Shape of Water).
Leikari í aukahlutverki Tilnefndir eru: Willem Dafoe (The Florida
Project), Richard Jenkins (The Shape of Water), Christopher Plummer (All the Money
in the World), Woody Harrelson (Three Billboards outside Ebbing, Missouri) og Sam
Rockwell (Three Billboards outside Ebbing, Missouri).
Bíógagnrýnandinn
Valdimar Víðisson, skólastjóri Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði, er mikill áhugamaður um kvikmyndir og
heldur úti síðunni Bíógagnrýni Valdimars á Face-
book.
Besta myndin
Níu myndir eru tilnefndar að þessu sinni. Ég hreinlega skil ekki
hvers vegna Akademían tilnefndi ekki Disaster Artist. Að mínu
mati ein allra besta mynd síðasta árs. Ég vona að Three Billboards
Outside Ebbing, Missouri vinni, en The Shape of Water mun veita
henni harða samkeppni.
Leikstjórn
Tilnefningar í þessum flokki komu nokkuð á óvart. Til dæmis sátu
Steven Spielberg fyrir The Post og Joe Wright fyrir Darkest Hour
heima og fengu ekki tilnefningu. Ég held að keppnin verði á milli
Christophers Nolan og Guillermo Del Toro og ég spái því að sá
síðarnefndi fari heim með styttuna.
Frumsamið handrit
Tel víst að Three Billboards Outside Ebbing, Missouri fái þessi
verðlaun. Algjörlega frábærlega skrifuð mynd. Kolsvartur húmor í
bland við áþreifanlega dramatík.
Leikkona í aðalhlutverki
Fyrirfram er veðjað á Frances McDormand sem fer algjörlega á
kostum í sínu hlutverki, en ég ætla að vona að Margot Robbie fari
heim með styttuna.
Leikari í aðalhlutverki
Þetta er sá flokkur sem gæti komið hvað mest á óvart. Fyrirfram
reikna margir með að Daniel Day-Lewis fái Óskarinn fyrir Phantom
Thread, en þeir Timothée Chalamet, fyrir Call Me By Your Name,
Daniel Kaluuya, fyrir Get Out, og Gary Oldman, fyrir Darkest Hour,
eru algjörlega frábærir í sínum hlutverkum. Denzel Washington er
einnig tilnefndur, fyrir Roman J. Israel. Skil ekki hvers vegna hann
var tilnefndur á meðan James Franco, fyrir Disaster Artist, og Tom
Hanks, fyrir The Post, sátu heima. Ég vona að Gary Oldman fari
heim með styttuna, en ég held að Akademían muni heiðra Daniel
Day-Lewis þar sem hann hefur sagt að hann sé hættur að leika.
Leikkona í aukahlutverki
Þessi flokkur er mun jafnari að mínu mati en flokkur leikara í auka-
hlutverki. Ég vona að Allison Janney fái Óskarinn og ég held að
Akademían sé mér sammála. Fer algjörlega á kostum í hlutverki
móður Tonya Harding.
Leikari í aukahlutverki
Ekkert sem kom á óvart í þessum flokki. Ég vona að Woody Harrel-
son fái styttuna en ég held að Akademían velji Sam Rockwell.
Báðir frábærir í myndinni.
Markaðsstjórinn
Guðmundur Breiðfjörð hætti nú um
mánaðamótin sem markaðsstjóri kvik-
myndadeildar Senu. Hann hefur unnið við
kvikmyndir í um 20 ár og þekkir því vel hvaða
kvikmyndir falla í kramið og hverjar ekki.
Nokkuð fyrirsjánlegt í ár að mínu mati í helstu flokkum.
Besta myndin verður Three Billboards, besti leikari Gary
Oldman í Darkest Hour, besta leikkona Frances McDorm-
and fyrir Three Billboards og svo taka Sam Rockwell og
Allison Janney styttuna fyrir bestu aukahlutverkin. Óskar fyrir leikstjórn fer til Benicio del
Toro fyrir Shape of Water ásamt frumsömdu handriti. Handrit byggt á áður útgefnu efni fer
til Call Me By Your Name og svo verður loksins Roger Deakins að vinna fyrir kvikmyndatöku
fyrir Blade Runner. Það er alla vega mín ósk. Og að lokum væri gaman að sjá John Williams
vinna fyrir tónlist fyrir Star Wars þó að það sé ólíklegt.
Klipparinn
Elísabet Ronaldsdóttir hefur starfað í kvik-
myndabransanum í yfir 20 ár og meðal annars
klippt Deadpool 2, Atomic Blonde og Reykjavík-
Rotterdam, sem hún fékk Eddu fyrir árið 2008.
Kvikmynd ársins
Tæknilegar flækjur kosninganna gera þennan flokk erfiðan
að spá um. Ég ætla að þrjár myndir bítist um sigurinn; Get
Out, The Shape of Water og Three Billboards Outside Ebbing,
Missouri, jafnvel þótt sú síðasta hafi ekki fengið tilnefningu
fyrir besta leikstjórann, það hefur gerst áður að mynd hafi
unnið án þess. Ég ætla að veðja á að Get Out taki þennan
flokk, kvikmyndin hefur haft mikil áhrif á Hollywood sem og
samfélagið allt.
Leikstjóri ársins
Það væri gaman að sjá Gretu Gerwig taka styttuna fyrir
þroskasögu konu sem snýst alls ekkert um karlmenn og ást.
Það er líka miklvægt að auka hlut kvenna í leikstjórastólum
og sýnileiki á verðlaunapalli skiptir máli. Tíðarandinn vinnur
með henni eins og Jordan Peele, sem gæti staðið uppi sem
verðugur sigurvegari. Við eigum efalaust eftir að sjá mikið af þeim í framtíðinni en ég
held að tími Guillermo del Toro sé kominn.
Leikkona í aðalhlutverki
Styttan fer örugglega til Frances McDormand sem á eftirminnilegan leik í langt í frá
of góðri kvikmynd. Frances er búin að vinna næstum öll verðlaun undir sólinni fyrir
magnaða túlkun sína á reiðri, uppfinningasamri móður myrtrar stúlku. Hún sigldi
beint inn í miðja #MeToo-hreyfinguna og endurómar líka sorg, reiði og aktívisma í
kjölfar fjöldamorðanna í Parkland, Florída.
Heimildamynd ársins
Ef það væri eitthvert réttlæti í kvikmyndaheiminum fengi
Last Men in Aleppo styttu. En Sýrland er líklegast of langt
frá Akademíunni. Það er Icarus hins vegar ekki og ég tel
hana sigurstranglega. Akademían er alls ekki ópólitísk
en fólk gæti líka verið orðið bugað og þá tekur Faces/
Places styttuna. Agnès Varda er dýrkuð og dáð og nú elsti
einstaklingur til að hljóta Óskartilnefningu og við erum öll
tilfinningadýr – hvort sem við erum akademíumeðlimir
eða ekki.
Kvikmyndataka ársins
Sögulegur sigur gæti unnist ef Rachel Morrison tæki á
móti styttunni, fyrsta konan tilnefnd fyrir kvikmynda-
töku. Mikið yrði ég hamingjusöm, en ég held samt að
Roger Deakins, sem er tilnefndur í 14. skipti hljóti að
taka hana í ár. Ekki af því að Blade Runner 2049 sé hans
vinsælasta mynd eða endilega sú besta, en hann er
óneitanlega vel að henni kominn og ekki hægt að hafa af
honum sigurinn eina ferðina enn.
Klipping ársins
Engin spurning í mínum huga. I, Tonya, allt annað er ekki í
lagi. Flottur stöðugur tónn gegnum alla myndina, hárfínt
jafnvægi milli kómedíu og drama. Virðing Tatiönu fyrir
viðfangsefninu er augljós og natnin aðdáunarverð. Ég krossa putta fyrir Tatiönu S.
Riegel, hún á þetta svo margfalt skilið.
Búningar ársins
Valdi þennan flokk af því hann er svo auðveldur í ár. Phantom Thread, ég meina
myndin er um búninga. Og þótt Jacqueline Durran augljóslega eigi þetta ár er ekki
auðvelt að fá styttu fyrir tvær tilnefningar. Það er aðeins of hörð samkeppni við
sjálfa sig.
Hver hreppir styttuna?
Óskarsverðlaunin 2018:
Nokkrir álitsgjafar velja sína Óskarsverðlaunahafa
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Ísland á
Óskarnum
Ísland hefur nokkrum sinnum átt
fulltrúa á Óskarsverðlauna-
hátíðinni. Ísland hefur sent
inn myndir sem framlag til
Óskarsverðlauna sem besta
erlenda mynd síðan árið
1981, aðeins ein þeirra, mynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Börn náttúrunnar (1991), hefur
verið tilnefnd. Árið 2006
var Síðasti bærinn, eftir
Rúnar Rúnarsson, tilnefnd
í flokknum Besta leikna
stuttmyndin.
Lag Bjarkar, I've Seen
It All úr Myrkrahöfðingj-
anum (2001) var tilnefnt
sem besta lag, en textinn
er eftir Sjon Sigurðsson og
Lars von Trier. Lagið fékk ekki
styttuna, en Björk vakti gríðarlega athygli á rauða
dreglinum í svanskjólnum sem
hún klæddist.
Jóhann Jóhannsson
var tilnefndur fyrir bestu
tónlist fyrir The Theory
of Everything (2014) og
Sicario (2015), hann lést 9.
febrúar síðastliðinn.