Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Side 56
56 2. mars 2018
Menning „Ég á hana, ég á hana!“ Lóuunginn Lói er stjarna íslensku tölvuteiknimyndarinnar „Lói – Þú flýgur aldrei einn“. Myndin hefur notið nokkurra vinsælda en verið gagnrýnd fyrir að innihalda stöðluð kynjahlutverk og skaðlegar karlmennsku ímyndir. Meðal annars hefur verið gagnrýnt að Lói segist eiga vinkonu sína, Lóu, þegar annar fugl stígur í vænginn við hana.
1 Konur gera það gott
Annað árið röð hlaut kvikmynd eftir konu
Gullbjörninn, aðalverðlaunin á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Berlín. Það var rúm-
enski leikstjórinn Adina Pintilie sem hlaut
verðlaunin í ár fyrir kvikmyndina Touch Me
Not, en hún er aðeins sjötta konan í 68 ára
sögu hátíðarinnar sem hlýtur verðlaun fyrir
bestu myndina. Umræða um stöðu kvenna
var einnig áberandi á hátíðinni þar sem
pallborðsumræður fóru fram.
2 Djörf verðlaunamynd
Það þótti nokkuð djörf ákvörðun hjá dóm-
nefndinni að veita Touch Me Not aðalverð-
launin, en hún er fyrsta kvikmynd Adinu
Pintilie í fullri lengd, en bakgrunnur henn-
ar er í tilraunakenndri kvikmyndagerð.
Myndin er sögð vera á mörkum heimilda-
og leikinnar myndar – nánast vídeóritgerð
– og fjallar hún um líkamlega nánd. Þar
sjást margs konar líkamar og óhefðbundn-
ar kynlífsathafnir en það hefur gengið fram
af sumum áhorfendum. Myndin hefur
fengið mjög misjafna dóma, til dæmis var
kvikmyndagagnrýnandi breska dagblaðsins
The Guardian alls ekki hrifinn og sagði
hana grunnhyggna og kjánalega.
3 … með Tómasi Lemarquis
í aðalhlutverki
Það sem er enn fréttnæmara fyrir Frónbúa
er að Tómas Lemarquis leikur eitt aðalhlut-
verk myndarinnar og er það í fyrsta skipti
sem íslenskur leikari fer með eitt aðalhlut-
verkanna í mynd sem hlýtur Gullbjörninn.
4 Wes Anderson fór í hundana
Það kom ekki mörgum á óvart að hinn virti
bandaríski leikstjóri Wes Anderson skyldi
hljóta Silfurbjörninn, verðlaun fyrir bestu
leikstjórn á hátíðinni. Hann var verðlaun-
aður fyrir brúðuhreyfimynd sína Isle of
Dogs, sem er dystópísk framtíðarmynd sem
fjallar um hunda í sóttkví á eyju fyrir utan
Japan. Anderson hlaut sömu verðlaun fyrir
síðustu mynd sína, Grand Budapest Hotel.
Það var leikarinn Bill Murray sem tók við
verðlaununum fyrir hönd Anderson en
hann talar fyrir einn hundanna sem er í að-
alhlutverki í myndinni: „Ég bjóst aldrei við
því að einn daginn færi ég í vinnuna sem
hundur og kæmi heim með björn.“
5 Mynd um
Úteyjarmorðin frumsýnd
Á hátíðinni var frumsýnd ný leikin kvik-
mynd eftir norska leikstjórann Erik Poppe
um fjöldamorðin í Útey árið 2001. Myndin,
sem nefnist U-July 22, fjallar um daginn
þegar hægriöfgamaðurinn Anders Behring
Breivik myrti 69 manns, í Ósló og Útey, þar
sem hópur ungra jafnaðarmanna hafði
komið saman. Öll myndin er frá sjónar-
horni skáldaðra fórnarlamba en byggir þó
á hinum raunverulegu atburðum, og sést
fjöldamorðinginn Breivik varla í mynd.
Gagnrýnendur voru almennt nokkuð hrifn-
ir af myndinni en aðstandendur fóru þó
tómhentir heim af verðlaunaathöfninni.
6 Willem dAfoe fær
heiðursverðlaun
Bandaríski stórleikarinn Willem Dafoe
hlaut heiðursverðlaun kvikmynda-
hátíðarinnar, en hann hefur leikið í yfir
100 myndum, mörgum þeirra með mestu
kvikmyndaverkum samtímans. Hann hefur
leikið allt frá illmennum úr teiknimynda-
sögum til sjálfs Jesú Krists.
7 Rifrildi M.I.A. og leikstjóra
heimildamyndar um hana
Á hátíðinni var frumsýnd heimildamyndin
MATANGI / MAYA / M.I.A. um hina hápóli-
tísku og ögrandi tónlistarkonu M.I.A.
Myndin byggir fyrst og fremst á myndefni
sem hún hefur sjálf tekið upp á síðustu
22 árum og gefur einstaka sýn inn í líf
hennar – meðal annars er tekist á við fjar-
veru föður hennar, en hann var einn stofn-
enda Tamíltígranna, aðskilnaðarhreyfingar
Tamíla á Srí Lanka. Það var vinur hennar
úr listaháskóla, Steve Loveridge, sem leik-
stýrði myndinni. Þó að myndin hafi fengið
ágætis viðtökur var tónlistarkonan allt
annað en sátt við útkomuna og lét hún þá
skoðun sína skýrt í ljós á blaðamannafund-
um sem enduðu oftar en ekki með rifrildi
milli leikstjórans og hennar.
8 Spenna fyrir Verbúðinni
Þáttaröðin Verbúðin, sem listahópurinn
Vesturport er með í undirbúningi í sam-
vinnu við RÚV, vann til svokallaðra Series
Mania-verðlauna á CoPro Series-kynn-
ingarviðburðinum sem fór fram á hátíð-
inni. Verðlaunin fela í sér að Verbúðin mun
verða með í söluráðstefnu með kaupend-
um sjónvarpsefnis, sem haldin verður í
Lille í Frakklandi í maí næstkomandi.
9 Adam frumsýndur
Þýska kvikmyndin Adam, önnur kvikmynd
Maríu Sólrúnar Sigurðardóttur, var frum-
sýnd í Generation hluta kvikmyndahátíðar-
innar, en sonur hennar, Magnús Maríuson,
fer með aðalhlutverkið. Kvikmyndavefur-
inn Variety hældi sérstaklega leikrænum
tilþrifum Magnúsar í myndinni.
10 Sólófrumraun Herdísar
Tónlistarkonan og kvikmyndatónskáldið
Herdís Stefánsdóttir, sem íslenskir popp-
unnendur kannast við úr rafdúettinum
East of My Youth, kom í fyrsta skipti fram
undir eigin nafni á tónleikum á hátíðinni.
Herdís gerði einnig tónlist við nígerísku
stuttmyndina Besida sem sýnd var á stutt-
myndahluta hátíðarinnar.
kristjan@dv.is
Stærstu fréttirnar
frá Berlinale
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín fór fram í síðustu viku
Ekki snerta Tómas Lemarquis er í einu aðalhlutverka í hinni djörfu verðlaunamynd Touch Me Not.
Sársaukafulll minning Leikna kvikmyndin U-July
22, sem fjallar um fjöldamorðin í Útey árið 2011, var
frumsýnd á hátíðinni.
Willem Dafoe Var verðlaunaður fyrir ævistarf sitt.
Kom sá og sigraði Rúmenska kvikmyndagerðarkonan Adina Pintilie hlaut Gullbjörninn