Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Side 54
54 fólk 2. mars 2018
Elínrós líndal
Fædd: 5. mars 1974
Starf: Framkvæmdastjóri
ÞorstEinn J.
VilhJálmsson
Fædd: 2. mars 1964
Starf: Fjölmiðlamaður
sigmundur Ernir
rúnarsson
Fædd: 6. mars 1961
Starf: Fjölmiðlamaður og skáld
ÞorValdur BJarni
ÞorValdsson
Fædd: 3. mars 1966
Starf: Tónlistarmaður
57
ára
Afmælis-
börn
vikunnar
Verða árinu eldri á næstu dögum
52
ára
54
ára
44
ára
F
yrir okkur sem ólumst upp á
tíunda áratug síðustu aldar er
gaman að segja frá þáttunum
Everything Sucks! á Netflix
en fyrir þennan aldurshóp er þetta
nostalgíuveisla af bestu gerð.
Þættirnir fylgja að mörgu
leyti sömu reglum og sögulínu
og fjölskylduþættirnir sem flest
okkar fylgdumst með á tíunda
áratugnum. Sumir elskuðu þessa
línulegu framhaldsþátta dagskrá
meðan öðrum leið eins og föng
um. Sjónvarpsþáttaraðir sem helst
má nefna til samanburðar eru hin
ir snilldarlegu Freaks & Geeks,
My So called Life og fleiri í þeim
dúr. Skemmtilegast fannst mér þó
hvað þættirnir minntu mig mikið
á Fucking Åmål eftir Lukas Moody
son, sem vill svo skemmtilega til
að var uppáhaldskvikmyndin mín
þegar ég var unglingur. Mörg atriði
í þáttunum eru keimlík myndinni
og eru tvær aðalkvenpersónurnar
mjög líkar aðalstelpunum í Fuck
ing Åmál, bæði hvað varðar útlit
og persónuleika. Það kom mér því
skemmtilega á óvart að lesa viðtal
við þá sem skrifuðu þáttaröðina og
sjá að sú mynd var í raun og veru
aðaláhrifavaldurinn á þættina.
Flækjur og árekstrar
framhaldsskólaáranna
Aðalpersónur Everything Sucks! eru
Luke (Jahi Di‘Allo Winston) og vin
ir hans sem eru að byrja á fyrsta ári
í framhaldsskóla í smábænum Bor
ing í Oregon. Luke verður skotinn í
Kate (Peyton Kennedy) sem er dótt
ir skólastjórans og annars árs nemi.
Félagarnir ganga í gegnum allar
flækjur og árekstra framhaldsskóla
áranna með viðkomu allra klassísku
persónanna sem koma að lífi okk
ar, foreldra, kennara, vina og skóla
systkina og við fáum að skyggnast
inn í líf þeirra allra.
Nostalgíuáhrifin af þáttun
um eru mjög góð þrátt fyrir
að margt sé frábrugðið því
sem tíðkaðist hér á landi. Til
dæmis dæmdu börn fjárhags
lega stöðu vina sinna ekki bara
út frá því hvort það var Stöð 2
á heimilinu eða ekki, – eins og
var almennt gert í mínum vina
hópi. En í þáttunum er samt
sem áður hrúga af köflóttum
skyrtum, derhúfur snúa öfugt,
stelpur ganga með smelluarm
bönd, hlustað er á geisladiska og
horft er á tónlistar myndbönd. Víd
eóspólur eru leigðar, lukkutröllum
er safnað og plaggöt eru hengd upp
á veggi.
Ekkert talað um rasismann
Þáttaröðin er nokkuð lengi að kom
ast af stað og lifir svolítið á nostal
gíunni. Endirinn er hins vegar
hjartnæmur og fullnægjandi og
skilur mann eftir með löngun til
að vita meira. Hægt væri að segja
að hjartnæmnin gangi samt stund
um aðeins of langt þar sem aðal
persónan, Luke, og mamma hans
eru bæði svört en það kemur aldrei
upp nein umræða um rasismann
sem hefur alltaf verið til staðar í
Bandaríkjunum, hvað þá á tíunda
áratugnum og hvað þá í Oregon
sem á mjög langa og ofbeldisfulla
sögu af kynþáttahatri.
Og þrátt fyrir að ein aðal
persóna þáttanna sé að koma
út úr skápnum er heldur ekk
ert fjallað um þá fordóma sem
hinsegin fólk verður fyrir og
erfiðleikana við það að koma
út úr skápnum bæði í dag og
á þessum tíma. Ég bind hins
vegar miklar vonir við að tekið
verði á þessum málum í næstu
seríu þar sem margir hafa gagn
rýnt þessa afneitun í handrits
höfundunum.
Vinsamlegast spólið til baka
Þrátt fyrir þessa hnökra
þá mæli ég samt sem áður
með þáttunum sem góðu
afþreyingar efni og kannski al
veg sérstaklega fyrir fólk sem
ólst upp á tíunda áratugnum.
Það er tilvalið að horfa á þættina
með börnunum, sýna þeim
hvernig hlutirnir virkuðu þegar
við þurftum að hringja inn
internetið með hávaðasömum
„router“ og spóla myndbands
spólum til baka. Aðalleikari þátt
anna, sem er fimmtán ára, þurfti
að fá kennslu við að setja spólu í
tækið, af því hann hafði aldrei séð
þessar græjur áður.
Vá, hvað við erum orðin
gömul! n
Everything Sucks!
Tinna Eik Rakelardóttir fjallar um nýja nostalgíuþætti á Netflix
Internetið 1996 Það er tilvalið að
horfa á þættina með börnunum, sýna
þeim hvernig hlutirnir virkuðu þegar
við þurftum að hringja inn internetið
með hávaðasömum „router“ og spóla
myndbandsspólum til baka.
Undir áhrifum frá Fucking Åmål
„Það kom mér því skemmtilega á óvart
að lesa viðtal við þá sem skrifuðu þátta-
röðina og sjá að sú mynd var í raun og
veru aðaláhrifavaldurinn á þættina.“
„Aðalleikari
þáttanna, sem er
fimmtán ára, þurfti að fá
kennslu við að setja spólu
í tækið