Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 57
menning 572. mars 2018
Metsölulisti Eymundsson
Vikuna 14. til 20. febrúar
Vinsælast í bíó
Helgina 16. til 18. febrúar.
1 Þorsti - Jo Nesbø
2 Þitt annað líf - Raphaëlle Giordano
3 Uppruni - Dan Brown
4 Óþægileg ást - Elena Ferrante
5 Mojfríður einkaspæjari - Marta
Eiríksdóttir
6 Elín, ýmislegt kilja - Kristín Eiríksdóttir
7 Núvitund hagnýt leiðsögn - Mark
Williams
8 Stóra bókin um Hvolpasveitina - Mary
Tillworth
9 Óvelkomni maðurinn - Jónína
Leósdóttir
10 Myrkrið bíður - Angela Marsons
1 Black Panther
2 Fullir vasar
3 Lói – Þú flýgur aldrei einn
4 Game Night
5 Paddington 2
6 Fifty Shades Freed
7 The Shape of Water
8 Bling
9 The Post
10 Jumanji
1 Floni - Floni
2 Kendrick Lamar - Black Panther -
The Album
3 Ýmsir - Söngvakeppnin 2018
4 JóiPé & Króli - GerviGlingur
5 Herra Hnetusmjör - KÓPBOI
6 Migos - Culture II
7 Ed Sheeran - ÷
8 Aron Can - Ínótt
9 Kaleo - A/B
10 Sam Smith- The Thrill Of It All
Vinsælustu plöturnar
Vikuna 14. til 20. febrúar
T
ónlistarmaðurinn
Emmanuel Paschal, sem
er líklega betur þekktur
undir listamannsnafninu
Nonykingz, er fæddur og alinn
upp í Nígeríu en elti ástina til Ís-
lands fyrir rúmlega tveimur árum
og er núna búsettur á Akureyri.
Fyrir þá sem vilja kynna sér
nígeríska tónlist mælir hann sér-
staklega með laginu Osondi
Owendi sem tónlistarmaðurinn
Osadede gerði vinsælt á níunda
áratugnum. „Chief Stephen Osita
Osadebe, sem er yfirleitt bara kall-
aður Osadebe, var nígerískur „hig-
hlife“-tónlistarmaður frá Atani.
Hann var einn þekktasti tónlistar-
maðurinn af Igbo-þjóðflokknum og
átti fjörtíu ára farsælan feril. Þegar
Osondi Owendi
kom út árið 1984
gerði það hann að
algjörum leiðtoga
innan „high life“-
tónlistarstefnunnar og
enn í dag er þetta ein vin-
sælasta plata allra tíma í Nígeríu,“
segir Emmanuel.
„Nafn lagsins „Osondi
Owendi“ er dregið af máls-
hætti Igbo-fólksins sem væri
hægt að þýða sem: „Eins manns
kjöt er annars manns eitur.“
Lagið fjallar um afbrýðisemi og
öfund, hvernig sumir eru alltaf
hamingjusamir en aðrir aldrei.
Það fjallar um hvernig fólk
notar orð til að rífa hvert annað
niður, hvernig það sem þú álítur
vera blessun geti aðrir séð sem
bölvun. Orð manns eru eins og
spegill að hjarta hans.“n
„Eins manns kjöt er
annars manns eitur“
Nonykingz mælir með nígeríska laginu Osondi Owendi með Osadede
Tónlist að heiman Nonykingz Mælir með nígerískri „highlife“-tónlist frá níunda áratugnum.
Osadebe Einn af
frumkvöðlum „highlife“-
tónlistar stefnunnar í Nígeríu.
Þ
að er einmitt á svona kvöld-
um í leikhúsinu, sem ég
hverf í huganum langt aftur
í tímann og fyllist söknuði
– nostalgíu – eftir einhverju, sem
var, endur fyrir löngu, en aldrei
kemur til baka. Það var á svona
kvöldum, sem maður skynjaði svo
sterkt aðdráttarafl leikhússins –
hvað það er, sem gerir leikhúsið að
töfraveröld – ærir mann og tryllir.
Á svona kvöldum fallast allir í
faðma í lok sýningar, gráta af gleði,
örþreyttir en hamingjusamir.
Fagnaðarlátum áhorfenda hand-
an tjaldsins ætlar aldrei að linna,
það er stappað í gólfið og hrópað
– „encore, encore!“ Fögnuðurinn
hríslast um sviðið, og allir verða
vinir. Allir – líka smiðurinn, send-
illinn, skúran, sminkan og tenór-
inn – jafnvel súperstjarnan. Því að
samstaðan skiptir öllu máli, þegar
upp er staðið. Einn hlekkur bregst
– og allt hrynur. Þetta er hópvinna,
þar sem allir leggjast á eitt.
Sagan að baki öllum þessum
hávaða og látum, skrauti og
skrumi er oftast nauðaómerki-
leg og varla þess virði að leggja á
minnið: Ást í meinum, ást í bala,
svik og prettir, bla, bla, bla … En
það er gjörningurinn sjálfur, tón-
listin, söngurinn, dansinn, flikk-
flakkið, flippflappið og töfrabrögð-
in, sem heilla áhorfendur upp úr
skónum og verða ógleymanleg.
Farandleikhús í félagsheimilinu
Slá í gegn er einmitt dæmi um
þetta. Góa er falið það hlutverk að
spinna þráð úr sögu Stuðmanna,
tengja saman verk þeirra, svo að
úr verði heildarmynd, með upphaf
og endi. – (Þetta hefði eflaust getað
orðið ástarsaga með dramatískum
tilþrifum, en þá hefði kannski ekki
orðið svona gaman í leikhúsinu) –
Nei, Gói velur þá leið, sem reynd-
ar lá í augum uppi, að búa til far-
andleikhús, sem var mjög í tísku á
þeim árum, þegar Stuðmenn voru
að fóta sig í tónlistarflórunni. Þá
var ferðast um landið að sumarlagi,
boðið upp í dans í félagsheimilum,
og duflað og daðrað fram undir
morgun. Stuðmenn urðu fljótlega
eftirlæti allra – þeir slógu í gegn,
mjög ólíkir, en samhentir þó. Hver
snillingurinn á fætur öðrum.
Ragga varð svo rósin í hnappa-
gatinu. Hver smellurinn af öðrum
smitaði frá sér út í þjóðfélagið. Lög
Stuðmanna voru komin til að vera.
Þeir voru þarna, Stuðmennirnir,
næstum allir um kvöldið í leik-
húsinu – nema Tómas, blessuð
sé minning hans. Ég sá ekki Valla.
Löngu orðnir goðsagnir í lifanda
lífi, en – þrátt fyrir frægðarljómann
– hógværir og lítillátir. Þakklátir? Já,
kannski. Sjálft Þjóðleikhúsið lagt
undir, virðulegasta stofnun þjóðfé-
lagsins. Aðdáendur gátu ekki dulið
fögnuð sinn, allir brosandi út að
eyrum, trallandi „slá í gegn“.
Heimurinn í heimsókn
Í upphafi leit út fyrir, að sagan hans
Góa ætlaði að verða svolítið púkó –
naív eða gamaldags. Jón Gnarr, fyrr-
verandi borgarstjóri Reykjavíkur,
mættur í hlutverki hins heimaríka
allsherjarþorpsreddara, sem er að
færa upp Gullna hliðið í félagsheim-
ilinu, í lopapeysu með kústinn á lofti.
Einhvern veginn gat maður ekki al-
veg sæst við borgarstjórann fyrrver-
andi í þessu hlutverki. Var þetta djók?
En svo breytist allt, þegar sirkus-
inn kemur í bæinn, heimurinn
kemur í heimsókn. Þorpsbúar fá
tækifæri til að sýna, hvers þeir eru
megnugir. Og það er ekki upp á þá
logið: Edda Björgvins, Sigurður Þór,
Siggi Sigurjóns, Esther Talía, Hall-
grímur, Oddur, Birgitta, og Þórey
syngja öll, dansa og hlæja af slíkri
hjartans list, að maður sýpur hveljur
og tárast. Og ekki versnar það, þegar
Helga og Binni (Ólafía og Örn) – og
auðvitað dóttir þeirra, hún Harpa
Sjöfn (Snæfríður) – skerast í leikinn,
og sirkusinn tekur á sig mynd.
Þau Helga og Binni, sem eru vön
í bransanum, vita sem er, að sjóið
er ekki fullkomnað, nema þau geti
boðið upp á stórstjörnu í lokin. Og
þar kemur hr. Frímann til sögunnar
(Hilmir Örn), ásamt aðstoðarmanni
sínum, Herra Reykjavík (Bjarni
Snæbjörnsson) – og trylla liðið.
Áhorfendur geta varla setið kyrrir í
sætum sínum fyrir gleðihrolli.
Ótrúleg færni og hópvinna
Það sem eftir situr, þegar upp er
staðið, er þessi ótrúlega færni – og
þá er ég ekki að tala um stórstjörn-
ur eins og Ólafíu Hrönn, Örn Árna,
Eddu Björgvins, Sigga Sigur jóns
eða Hilmi Snæ – við vitum allt um
þau. Ég er að hugsa um þessa ungu
krakka, sem sýndu fágæta agaða
leikni, hvort sem var í dansinum eða
fimleikunum. Þeir voru eiginlega
hið undraverðasta í þessari sýningu.
Danshöfundurinn, Chantelle Car-
ey, er greinilega fagmanneskja, stel-
ur ekki sjóinu, en gefur því fyllingu
og fjör. Gleður augað.
Við erum stödd í „vaudeville“,
leikhúsi gleðinnar. Það er sungið
og dansað á sviðinu. Gleðigjafar
og grínarar gantast. En þar koma
líka við sögu hönnuðir, smiðir,
danshöfundar, ljósameistarar,
búninga hönnuðir og tónlistar-
menn. Án þeirra væri ekkert leik-
hús – ekkert „vaudeville“ – enginn
sirkus. Þessi sýning er dæmi um
frábæra hópvinnu. Ef einn hlekkur
bregst, þá hrynur allt.
Áhorfendur stöppuðu í gólfið,
vildu meira – hrópuðu „encore,
encore“, alveg eins og forðum,
þegar allt gekk vel. Að tjaldabaki
hefur eflaust verið grátið og hleg-
ið, faðmað og kysst – allir verið
vinir. Og einhvern tíma í framtíð-
inni verður þetta kvöld í leikhús-
inu bara dýrmæt minning, sem
yljar. Njótið á meðan varir. n
Þau slógu í gegn …
Bryndís Schram
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Slá í gegn
Handrit og leikstjórn: Guðjón Davíð Karlsson
Tónlist: Stuðmenn
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn
Árnason, Snæfríður Ingvarsdóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Jón Gnarr, Sigurður Þór
Óskarsson, Séra Baddi, Esther Talía Casey,
Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson,
Birgitta Birgisdóttir, Þórey Birgisdóttir,
Hilmir Snær Guðnason, Bjarni Snæbjörnsson
Danshöfundur: Chantell Carey
Dansarar: Julietta Louste, Ernesto Camilo
Aldazabal Valdes, Hjörtur Viðar Sigurðsson,
Sölvi Viggósson Dýrfjörð
Sirkuslistafólk: Nicholas Arthur Candy,
Harpa Lind Ingadóttir, Sindri Dego
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson og
Kristján Sigmundur Einarsson
Tónlistarstjórn: Vignir Snær Vigfússon
Hljómsveit: Vignir Snær Vigfússon, Karl
Olgeirsson, Helgi Reynir Jónsson, Þorvaldur
Þór Þorvaldsson, Róbert Þórhallsson, Aron
Steinn Ásbjarnarson
Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 24. febrúar
(skrifað sunndaginn 25. febrúar)
M
y
N
D
H
ö
r
ð
u
r
S
v
ei
N
SS
O
N