Fréttablaðið - 14.04.2018, Síða 2
Ég er búinn að vera
á þingi síðan árið
2003 og ég hef leyft mér að
gera að gamni mínu allan
þennan tíma og ég mun
halda því áfram.
Guðlaugur Þór Þórðarsson,
utanríkisráðherra
Veður
Í dag er búist við hlýrri suðaustan
átt og einhverri vætu í flestum
landshlutum, en styttir fyrst upp
norðaustan til og hiti gæti jafnvel
náð 13 stigum þar, og eins í Borgar
firði. Sunnan og suðaustan til rignir
talsvert fram á kvöld. sjá síðu 50
Eldgos, jarðskjálftar og 9 metra Látrabjarg í Perlunni
Sérfræðingar vinna baki brotnu að því að setja upp eftirlíkingu af Látrabjargi í Perlunni. Bjargið sem er yfir 9 metra hátt mun klæða einn af tönkum
Perlunnar. Í sjónaukum verður hægt að fræðast um sjófugla sem búa í einu stærsta fuglabjargi Evrópu. Bjargið mun leika aðalhlutverk á náttúrusýn-
ingu sem verður opnuð í maí. Þar verður hægt að upplifa eldgos og jarðskjálfta og sjá syndandi hvali undir gólfi Perlunnar. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
TRÚMáL 802 einstaklingar skráðu
sig úr þjóðkirkjunni á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2018. Tölurnar
koma úr samantekt Þjóðskrár
Íslands yfir breytingar á skráningu
einstaklinga úr einu trú- og lífsskoð-
unarfélagi í annað á tímabilinu 1.
janúar til 31. mars. Samantektin var
birt í gær á vef Þjóðskrár. Þar kemur
fram að á tímabilinu gengu 168 ein-
staklingar í þjóðkirkjuna. Samtals
gengu því 634 fleiri úr þjóðkirkjunni
en í hana á tímabilinu.
124 einstaklingar sem skráðir
voru utan trúfélaga gengu í trú- eða
lífsskoðunarfélög en 629 skráðu sig
utan trúfélaga, í hópnum fjölgar því
um 505 einstaklinga. Í lífsskoðunar-
félagið Siðmennt gengu 103 fleiri en
úr því. Loks má nefna að í fríkirkj-
urnar þrjár gengu 54 fleiri en úr
þeim. – gþs
Meðlimum í
þjóðkirkjunni
fækkar enn
LögRegLuMáL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu sinnti fjórum út-
köllum vegna ölvunar ungmenna
og slysa á menntaskólaballi í Kapla-
krika á fimmtudag. Skúli Jónsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn segir
að mikil og góð gæsla hafi verið á
staðnum. Vel hafi verið staðið að
ballinu.
Um var að ræða svokallað land-
b ú n a ð a r b a l l n e m e n d a f é l a g s
Mennta skólans við Sund.
Skúli segir að leyfi hafi verið fyrir
650 manns á ballinu og að fjöldinn
hafi verið nærri lagi.
Tveir urðu fyrir meiðslum á ball-
inu. Einn gestur féll af sviði. Hitt
slysið varð þegar einstaklingur kýldi
í vegg. Hvorugur slasaðist að ráði.
Hin tvö útköllin voru vegna ölv-
unar. Í tilfellum þar sem ólögráða
einstaklingar voru undir áhrifum
áfengis var foreldrum gert viðvart,
eins og vera ber. – bg
Fjögur útköll á
skólaball MS
Tækni Bandaríski tæknirisinn Apple
varar starfsmenn sína við því að leka
upplýsingum. Þetta kemur fram í
minnisblaði sem, ótrúlegt en satt, lak
til Bloomberg sem birti það í gær.
Apple hefur lent í því að upplýs-
ingum um væntanlegar vörur fyrir-
tækisins hafi verið lekið. Það gerðist
eftirminnilega í september þegar
upplýsingum um iPhone X var lekið
og jafnvel enn eftirminnilegar þegar
starfsmaður Apple gleymdi prufuút-
gáfu af iPhone-síma á bar árið 2010.
„Í síðasta mánuði hafði Apple upp
á og rak starfsmann sem bar ábyrgð á
upplýsingaleka af trúnaðarfundi um
hugbúnaðaráform Apple. Hundruð
verkfræðinga voru á fundinum og
þúsundir til viðbótar. Ein manneskja
brást trausti þeirra,“ segir í minnis-
blaðinu. – þea
Minnisblaði um
áhrif leka lekið
ALÞingi Ummæli sem Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra lét
falla í líflegum umræðum á Alþingi
á fimmtudagskvöld vöktu athygli í
gær og féllu sums staðar í grýttan
farveg. „Háttvirtur þingmaður er
kannski búin að vera svo stutt hérna
að hún þekkir ekki hverjar leikregl-
urnar eru. Það er bara reynsluleysi
sem gerir það að verkum að þessar
spurningar ganga fram,“ sagði Guð-
laugur Þór í kjölfar ræðu Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur, þing-
manns Viðreisnar
Hann sagði ESB-sinna fara með
rangfærslur um EES-samninginn og
með því væru þeir að grafa undan
samningnum og klykkti út með orð-
unum: „Það er alveg skýrt markmið
hjá mér, virðulegi forseti, það
er að koma staðreyndunum á
framfæri og það mun ég gera
og ég skal alveg segja ykkur
það, ég skal bara spá fyrir
um það, það mun fara illa
í háttvirta þingmenn Við-
reisnar sem eru með ESB-
sýkina og þeir munu illa
þola þetta.”
Í s a m t a l i vi ð
Fréttablaðið sagð-
i s t Þ o r g e r ð u r
Katrín hafa verið
að halda uppi
e f t i r l i t s h l u t -
verki þingsins
með því að
spyrja spurn-
inga og reyna
að eiga í mál-
e f n a l e g u m
u m ræ ð u m .
„Það skiptir
máli að við
Kímnigáfa ráðherrans
vakti misjafna lukku
Utanríkisráðherra sagði formann Viðreisnar reynslulítinn í umræðum á þing-
inu, en ummælin vöktu misjöfn viðbrögð netverja. Saklaust grín að mati ráð-
herrans. Aðeins Steingrímur J. Sigfússon hefur setið lengur á þingi en Þorgerður.
vöndum okkur og við þurfum öll
að gera það.“ Hún sagðist ætla að
horfa fram á veginn og að hún erfi
þetta ekki við Guðlaug. „Það er eitt
og annað sagt í hita leiksins og við
verðum líka að skoða það þannig,“
bætti hún við.
„Er fólk orðið fullkomlega húm-
orslaust í þessum heimi? Stein-
grímur J. er eini maðurinn sem
setið hefur lengur,“ voru fyrstu við-
brögð Guðlaugs Þórs þegar málið
var borið undir hann. „Ég geri ekki
greinarmun á körlum og konum á
þingi,“ tók Guðlaugur fram þegar
hann var spurður hvort honum
þætti ummælin ekki niðrandi í garð
kvenna.
„Ég er búinn að vera á þingi
síðan árið 2003 og ég hef
leyft mér að gera að gamni
mínu allan þennan tíma
og ég mun halda því áfram
meðan ég er þingmaður og
ráðherra,“ sagði Guðlaugur
sem lítur svo á að um sak-
laust grín sé að ræða.
gretarthor@fretta
bladid.is
1 4 . A p R í L 2 0 1 8 L A u g A R D A g u R2 f R é T T i R ∙ f R é T T A B L A ð i ð
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
5
-6
2
B
4
1
F
7
5
-6
1
7
8
1
F
7
5
-6
0
3
C
1
F
7
5
-5
F
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K