Fréttablaðið - 14.04.2018, Side 10

Fréttablaðið - 14.04.2018, Side 10
TÖLUM SAMAN TAKTU ÞÁTT LÝSA - UPPLÝSANDI HÁTÍÐ UM MÁLEFNI SAMFÉLAGSINS 7.-8. september 2018 Menningarhúsinu Hofi - Akureyri Á hátíðinni, sem áður gekk undir nafninu Fundur fólksins, á sér stað upplýsandi samtal milli ólíkra aðila og er ljósi varpað á mikilvæg málefni. Hátíðin er vettvangur sem eflir traust og byggir brýr milli hagsmuna- hópa með beinum samskiptum þeirra á milli. Taktu þátt og láttu þína rödd heyrast. Skráning fer fram á heimasíðu hátíðarinnar, www.lysa.is. Stór jafnt sem lítil samtök úr öllum áttum hafa nýtt sér hátíðina til að koma sínum málefnum á framfæri. Má nefna Samtök Atvinnulífsins, ASÍ, Neytendasamtökin og alla stjórnmálaflokka landsins. Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Hvað er í matinn? 299 kr.stk. Gestus rautt pestó, 200 g 498 kr.stk. Mjólka fetaostur í kryddolíu, 300 g Þú finnur uppskriftina á kronan.is/ uppskriftir K o rt er í 4 1799 kr.kg Krónu Kjúklingabringur ferskar SÝRLAND Eftir meinta efnavopna- árás sýrlenska stjórnarhersins á almenna borgara í Douma fyrir viku hefur togstreitan á milli Rússa og Sýrlendinga annars vegar og Vestur- landa hins vegar magnast. Donald Trump Bandaríkjafor- seti hefur kallað Bashar al-Assad Sýrlandsforseta skepnu og þá hefur Vladímír Pútín Rússlandsforseti verið lastaður fyrir bandlag sitt við „skepnuna Assad“. Rússar sögðu hins vegar í gær að árásin hefði verið sviðsett. Ígor Konasjenkov, talsmaður varnar- málaráðuneytisins, sagðist hafa sannanir fyrir aðkomu Breta að árásinni. Þeirri fullyrðingu hafna Bretar. Segja um ógeðfellda og aug- ljósa lygi að ræða. Trump hefur heitið loftárásum á skotmörk í Sýrlandi, fyrr eða síðar, og heldur opnum möguleikanum á frekari aðgerðum. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, fékk í gær stuðning ríkisstjórnar sinnar til að ráðast í hernaðaraðgerðir með bæði Banda- ríkjamönnum og Frökkum. Þá hefur Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, tilkynnt um að Frakkar séu að íhuga téðar loftárásir. Ljóst er að hin meinta efnavopna- árás hefur endurvakið áhuga Trumps á því að taka þátt í stríðinu í Sýrlandi. Stuttu fyrir árás síðustu viku hafði hann tjáð sig um að Bandaríkin myndu yfirgefa Sýrland bráðlega. Bandaríkin hafa verið með um 2.000 manna herlið í Sýrlandi sem hefur einna helst aðstoðað Kúrda í baráttunni gegn hryðjuverka- samtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Rússar eru taldir vera með að minnsta kosti tvöfalt fleiri hermenn, og mun meira af her- gögnum, þar í landi. Hinn nýi áhugi á baráttunni gegn Assad-stjórninni þykir áhyggjuefni enda ekki góðs viti ef Bandaríkin og Rússar takast á með jafn beinum hætti og gæti gerst í Sýrlandi. Þá hafa deilurnar um Skrípal- málið og um meint afskipti Rússa af bandarísku forsetakosningunum enn frekar aukið á togstreituna. Nokkur sáttatónn var hins vegar kominn í ýmsa þjóðarleiðtoga í gær og ljóst að lítill vilji er í alþjóðasam- félaginu fyrir þessum átökum stór- veldanna í vestri og austri, Banda- ríkjanna og Rússlands. Þannig sagði Macron frá því í gær að hann hefði rætt við Pútín í síma. Í símtalinu hefði hann lýst áhyggjum sínum af versnandi ástandi í Sýr- landi. Hann hafi aukinheldur kallað eftir frekari viðræðum við Moskvu. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur tekið sér stöðu einhvers konar sáttasemjara í mál- inu. Sagði hann frá því í gær að hann hefði rætt við Trump og Pútín um möguleg skref sem hægt væri að taka í átt að friði í Sýrlandi. Sagði hann kollegum sínum til syndanna, ekki væri boðlegt að auka enn á tog- streituna í Sýrlandi. Greina mátti sáttatón frá Rússum í gær. María Sakarova, talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins, sagði að ekki mætti leyfa beinum átökum stórveldanna að brjótast út á jörðu niðri í Sýrlandi. „Það er árið 2018 og við höfum alls konar möguleika til samskipta. Við getum leyst allt með viðræðum, bara með því að taka upp símann eða senda skilaboð. Ég held að það sé ákjósanlegast að leysa deilumál með viðræðum, ekki valdi,“ hafði rúss- neski miðillinn RT eftir Sakarovu sem benti þó á að Rússar myndu verja sig, gerðu Bandaríkin árás. Þá hefur Vassilí Nebensía, sendi- herra Rússa hjá SÞ, sagt að það sé í algjörum forgangi að fyrirbyggja stríð stórveldanna. Málflutningur Bandaríkjamanna sé hættulegur og ógni stöðugleika alþjóðasam- félagsins. Þrátt fyrir þennan litla vilja til átaka var mikill hiti í fundi öryggis- ráðs SÞ í gær. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri SÞ, opnaði fund- inn með því að vara við því að kalda stríðið væri snúið aftur af fullum mætti. Á fundinum tókust þau Nebensía og Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna, einna helst á. thorgnyr@frettabladid.is Eldfimt ástand en lítill vilji fyrir stórveldastríði Bandaríkjamenn og Rússar standa hvorir andspænis öðrum í Sýrlandi. Vestur- lönd búa sig undir hernaðaraðgerðir eftir meinta efnavopnaárás. Rússar segja árásina sviðsetta. Mikill vilji fyrir því að fyrirbyggja bein átök stórveldanna. Assad og Pútín vaka yfir hermönnum stjórnarhersins í Idlib. NORDICPHOTOS/AFP Auglýsing um kosningu vígslubiskups í Skálholti Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur, í samræmi við starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 333/2017, ákveðið að síðari umferð kosninga til vígslubiskups í Skálholti fari fram dagana 23. apríl til og með 7. maí 2018, en um er að ræða póstkosningu. Eftirtaldir eru í kjöri: Séra Eiríkur Jóhannsson, Séra Kristján Björnsson. Um kosningarrétt við kjör vígslubiskups er fjallað í 4., sbr. 3. gr. fyrrgreindra starfsreglan. Sá sem telur sig eiga að vera á kjörskrá getur kannað á þar til gerðu vefsetri hvort nafn hans er á kjörskrá, sjá nánar á vefsíðunni kirkjan.is. Við aðgang að vefsetrinu skal nota rafræn skilríki eða Íslykil Þjóðskrár Íslands Reykjavík, 13. apríl 2018 f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar Hjördís Stefánsdóttir, formaður. 1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 1 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -9 9 0 4 1 F 7 5 -9 7 C 8 1 F 7 5 -9 6 8 C 1 F 7 5 -9 5 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.