Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 18
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Á meðan þeir sem stýra heilbrigðis- málum fara svona með þá fjármuni sem varið er í málaflokkinn er ekki hægt að halda því fram að það skorti fé. Hér er einfaldlega illa farið með fé. Taugavísindi sýna að við erum ekki með sál.“ Svo skrifar heilaskurðlæknirinn Henry Marsh í bók sinni Do No Harm. „Sjálfið, tilfinningar okkar og hugsanir, ást okkar á öðrum, vonir og væntingar, hatur og ótti deyr þegar heilinn í okkur deyr.“ Í vikunni átti ég miða á fyrirlestur Breska húman- istafélagsins með fyrrnefndum Marsh. Ég var mætt snemma og í stað þess að halda beint inn í sam- komusalinn og tryggja mér gott sæti ákvað ég að fara í göngutúr. Lá nokkuð á? Hversu margir hygðust eyða vorkvöldi í vangaveltur um endanleika dauðans? Svarið reyndist vera: Fleiri en maður hefði haldið. Fullt var út úr dyrum. Þar sem ég kúldraðist á aftasta bekk varð mér hugsað til páskamessu biskups Íslands sem fram fór í Dómkirkjunni rúmri viku fyrr. Ég hafði séð brot úr messunni í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins. Svo vandræðalega tóm var kirkjan að ekki einu sinni forhertasta trúleysingja var stætt á öðru en að sjá aumur á biskupi. Dómkirkja – Tómkirkja. Trúuðum fer fækkandi. Mannkynið hefur þó hvergi nærri snúið baki við stóru lífsspurningunum eins og fjöldinn á fyrirlestri heilaskurðlæknisins ber vitni um. Raunvísindafólk leitar í auknum mæli svara við þeim í hinum efnis- lega veruleika. Hver erum við? Um síðustu helgi hélt Sævar Helgi Bragason stjörnu- fræðikennari tölu við borgaralega fermingu í Reykja- nesbæ. Fjallaði hann um það hvernig „öll frumefnin í líkömum okkar – járnið í blóðinu, kolefnið í vöðv- unum og kalkið í beinunum – urðu til þegar stærstu stjörnurnar í alheiminum sprungu og dreifðu innyflum sínum um geiminn, svo að nýjar stjörnur, eins og sólin okkar og jörðin og lífið, gátu fæðst úr öskustónni.“ Eða eins og stjörnufræðingurinn Carl Sagan orðaði það: „Við erum öll gerð úr stjörnuryki.“ En ef það er ekkert líf eftir dauðann? „Dauðinn er dökka undirlagið sem spegill þarf að hafa til að maður sjái eitthvað í honum.“ Svo lýsti rithöf- undurinn Saul Bellow tilgangi dauðans. Trúleysingjar eru gjarnan spurðir að því hvernig þeir setji annan fótinn fram fyrir hinn telji þeir að vegferðin leiði aðeins að ókleifum grjótvegg. Eðlis- fræðingurinn Alan Lightman telur dauðann þvert á móti gera lífið aðkallandi. Í bók sinni Einstein’s Dream segir hann að án dauðans „liggur ekki á að skrá sig í háskólanám, læra nýtt tungumál, lesa Voltaire eða Newton, sækjast eftir stöðuhækkun, finna ástina og eignast börn. Ef við höfum óendanlega mikinn tíma getum við gert allt – en allt má líka bíða.“ En ef lífið er ekki kraftaverk? Vísindin sýna að lífið er sannarlega kraftaverk. Ekki þó í þeim skilningi að það sé yfirnáttúrulegt. „Við munum öll deyja og það er mesta lán okkar,“ segir líffræðingurinn Richard Dawkins í bók sinni Unweaving the Rainbow. „Flest fólk mun aldrei deyja því það mun aldrei fæðast. Fjöldi þeirra einstaklinga sem hefðu getað verið hér í stað mín en mun aldrei verða til er meiri en fjöldi sandkorna á Arabíuskaga ... Mögulegar samsetningar á DNA-efni okkar eru miklu fleiri en fólkið sem mun nokkurn tímann fæðast.“ Efnisheimurinn er töfraveröld bjartari en himna- ríki. Hann sýnir okkur að við erum lánsöm og einstök, býður von og boðar kærleik. Á flestum sviðum mann- lífsins förum við þó enn á mis við boðskap hans. Í vikunni var trúleysingi í fyrsta sinn skipaður í stöðu „aðal-sjúkrahússprests“ á spítala í Bretlandi. Húmanisti var ráðinn í stað prests vegna síaukinnar eftirspurnar eftir sálgæslu fyrir sjúklinga og aðstand- endur sem standa utan við trúfélög. Aðeins helmingur Íslendinga kveðst trúaður; biskup predikar yfir tómu húsi. En á Landspítalanum starfa níu prestar og djáknar við sálgæslu. Hver sinnir hinum helmingi þjóðarinnar? Dómkirkja – Tómkirkja Áætluð útgjöld ríkissjóðs til heilbrigðismála á þessu ári eru 209 milljarðar króna, um 26% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Fjórða hver króna af útgjöldum ríkissjóðs fer því í þennan mikilvæga málaflokk og það skiptir okkur öll máli hvernig þessum fjármunum er varið. Í öllum samanburði er íslenskt heilbrigðiskerfi gott, þó svo að margt megi bæta. Þing og þjóð virðast sammála um mikilvægi heilbrigðismála og öflugir talsmenn halda því fram að verja þurfi mun meiri fjármunum í heilbrigðiskerfið. Rökstuðningurinn er til dæmis biðlistar eftir hinum ýmsu aðgerðum og marg- þættri þjónustu. Hlutverk og markmið ríkissjóðs þegar kemur að útgjöldum er að fá bestu mögulegu þjónustu á hagkvæmasta verðinu. Þetta á við um öll innkaup ríkisins, hvaða nafni sem þau nefnast. Þeir sem ráðstafa almannafé þurfa að vanda sig og fara vel með. Þegar svo miklir fjármunir eru í húfi sem hér um ræðir kemur gjarnan upp ágreiningur um stefnur og leiðir. Sumir telja að heilbrigðiskerfið eigi að vera rekið að öllu leyti af hinu opinbera; meðan aðrir telja einkarekstur vera af hinu góða. Fyrir þjóðina skiptir hins vegar mestu máli að fá bestu mögulegu þjónustuna á hagkvæmasta verðinu. Við viljum ekki sóa peningum þegar kemur að útgjöldum. Það á líka við um útgjöld til heilbrigðismála. Þjóðin eldist og nú færist í aukana að fólk fari í lið- skiptaaðgerðir. Skipt er um liði, hnjáliði eða mjaðmar- liði til þess að auka lífsgæði fólks. Aðgerðirnar eru meðal annars framkvæmdar á Landspítalanum. Ekki eru framkvæmdar nógu margar aðgerðir til að anna öllum sjúklingum og því er til kunnuglegur biðlisti. Þeir sem eru tilbúnir að greiða úr eigin vasa fyrir aðgerð, geta látið framkvæma liðskiptaaðgerð á hné fyrir um 1,2 milljónir króna hjá einkarekinni heilbrigðisþjón- ustu. Þeir sem ekki eiga kost á að greiða fyrir aðgerð þurfa að bíða, en þó er sá möguleiki að ef biðin er of löng og sjúklingur líður kvalir er hægt að fá aðgerðina gerða í Svíþjóð. Í þeim tilvikum greiðir ríkissjóður fyrir sjúklinginn, auk kostnaðar við ferðir. Ætla má að kostnaður fyrir ríkissjóð við flýtimeðferð í Svíþjóð sé um tvöfaldur á við aðgerð hér heima. Það sérstaka við fyrirkomulagið í þessu tilviki er að ríkissjóður er tilbúinn að greiða tvöfalt verð fyrir lið- skiptaaðgerð á hné, sem framkvæmd er á einkarekinni stofu í Svíþjóð, heldur en hann er tilbúinn að greiða ef hann léti framkvæma fleiri aðgerðir á Landspítalanum, eða léti einkaaðila á Íslandi framkvæma aðgerðina. Hér má halda því fram að með því að færa eina að- gerð frá Svíþjóð til Íslands getum við framkvæmt tvær aðgerðir hér, tveir fyrir einn. Á meðan þeir sem stýra heilbrigðismálum fara svona með þá fjármuni sem varið er í málaflokkinn er ekki hægt að halda því fram að það skorti fé. Hér er einfaldlega illa farið með fé. Hvort sem þingmenn eða stjórnendur heilbrigðis- mála á Íslandi aðhyllast einkarekstur eða opinberan rekstur, þá hljóta þeir að sammælast um að nýta þá fjármuni sem fara í málaflokkinn á skynsamlegan hátt. Spyrja má hvort víðar sé farið með fjármuni á þennan hátt? Heilbrigð sóun? 1 4 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 5 -6 C 9 4 1 F 7 5 -6 B 5 8 1 F 7 5 -6 A 1 C 1 F 7 5 -6 8 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.