Fréttablaðið - 14.04.2018, Page 59

Fréttablaðið - 14.04.2018, Page 59
Deildarstjóri fjárstýringar Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn leitar nú að kraftmiklum og reynslumiklum einstaklingi til að sinna starfi deildarstjóra fjárstýringar. Sýn er nýtt heiti á sameinuðu félagi Vodafone og 365 miðla. Helstu verkefni snúa að lausafjárstýringu félagsins, utanumhaldi um sjóðsstreymisspá og gjaldeyrisjöfnuð ásamt því að bera ábyrgð á innheimtu félagsins. Viðkomandi mun einnig sjá um stýringu einingarinnar og starfsmannamál ásamt ýmsum öðrum fjármálatengdum verkefnum. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur menntun / reynsla sem nýtist í starfi. • Reynsla af fjármálum er nauðsynleg. • Þekking á rekstri fyrirtækja æskileg. • Miklir samskiptahæfileikar, jákvæðni og metnaður. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl nk. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á radningar.syn.is Staða skólastjóra við Réttarholtsskóla Skóla- og frístundasvið Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Réttarholtsskóla. Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Í skólanum eru um 400 nemendur og starfsmenn eru liðlega 50. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing – virkni – vellíðan og áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er þátttakandi í Olweusaráætluninni gegn einelti og kannanir hafa ítrekað leitt í ljós góðan árangur á því sviði. Skólinn er í grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi. Mikilvægt er að skólastjóri hafi skýra sýn á leiðir sem hann vill fara til að viðhalda jákvæðum skólabrag og vinna að vellíðan og velferð allra nemenda. Leitað er að einstaklingi sem veitt getur skólasamfélaginu öllu, nemendum jafnt sem starfsfólki, virka og öfluga forystu og verið fyrirmynd um vandvirkni, metnað og áherslu á árangur. Meginhlutverk skólastjóra er að: • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s.ráðningum, vinnu - tilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins. • Frumkvæði, skipulagshæfni og metnaður í starfi. • Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. • Stjórnunarhæfileikar. • Færni í áætlunargerð og fjármálastjórnun. • Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Umsókn fylgi greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfs- heitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2018. Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2018. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411-1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 Uppsetning og viðhald á iðnaðarhurðum Óskum eftir að ráða öflugan starfsmann við uppsetningu og viðhald á iðnaðarhurðum. Viðkomandi þarf að vera handlaginn, vandvirkur, með ríka þjónustulund og geta unnið sjálfstætt. Talað og lesið íslensku og hafa bílpróf. Umsóknir sendist á joi@hedinshurdir.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 1 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 1 2 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 7 5 -E 3 1 4 1 F 7 5 -E 1 D 8 1 F 7 5 -E 0 9 C 1 F 7 5 -D F 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 8 s _ 1 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.