Fréttablaðið - 14.04.2018, Qupperneq 88
Á afmælinu mínu í
fyrra setti ég mér
lestraráskorun um að lesa
eina bók á viku næsta
árið. Það hefur verið
frábært en stundum líka
erfitt að standa við þá
áskorun.
Hulda Jónsdóttir
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Sígildir sunnudagar eru regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka
viðburði í Hörpu sem haldnir eru á sunnudögum í vetur. MYND/EYÞÓR
Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari koma fram á tónleikaröðinni
Sígildum sunnudögum í Hörpu um
helgina. Þær kynntust við nám í
Listaháskóla Íslands (LHÍ) fyrir ára-
tug og hafa leikið reglulega saman
frá árinu 2011. Að þessu sinni flytja
þær tvær sónötur eftir W.A. Mozart,
Duo Concertant eftir Igor Strav insky
og Sónötu eftir Sergei Prok ofiev.
Hulda segir, aðspurð hvers vegna
þessi verk hafi verið valin, að þær
hafi rætt það fyrir um ári hversu
leiðinlegt það væri hvað píanó-
og fiðlusónöturnar eftir Mozart
heyrðust sjaldan á tónleikum nú
til dags. „Í kjölfarið fórum við að
hugsa hvaða verk myndu passa vel
við Mozart en samt sem áður veita
ákveðna andstæðu. Þá lá nýklassík
frá fyrri hluta 20. aldar beint við þar
sem þar er um að ræða ákveðinn
skyldleika hvað uppbyggingu og
hugmyndafræði varðar. Tón-
málið er að mörgu leyti djarfara og
þróaðra í rússnesku verkunum enda
nánast 200 ár milli þess sem þau
voru skrifuð og mikið vatn runnið
til sjávar í heims- og tónlistar-
sögunni.“
Byrjaði ung
Hulda ólst upp í Hveragerði og um
skamman tíma í Bandaríkjunum.
Hún byrjaði að læra á fiðlu fjögurra
ára gömul og eftir diplómapróf frá
LHÍ hélt hún til New York þar sem
hún fékk inngöngu í hinn virta
Juilliard-listaháskóla. „Þar var ég í
sex ár og kláraði Master of Music
vorið 2015. Þá ákvað ég að það
væri kominn tími til að skipta um
umhverfi og flutti til Þýskalands
og hef búið þar síðan. Raunar er ég
mikið á ferðinni og held að ég hafi
ekki náð því að vera lengur en þrjár
vikur á sama stað í meira en tvö ár.“
Hulda segir Jane, meðleikara sinn,
vera mikla ofurkonu en hún spilar
bæði á píanó og fiðlu. „Jane flutti til
Íslands frá Indónesíu til þess að læra
á fiðlu hjá kennaranum mínum,
Guðnýju Guðmundsdóttur, og
lærði reiprennandi íslensku hraðar
en nokkur sem ég hef kynnst. Hún
ákvað síðar að leggja meiri áherslu
á píanóið en skipti ekki fyrr en hún
var búin að ná þeim áfanga að verða
fyrsti og eini nemandi LHÍ til að
ljúka lokaprófi á tvö hljóðfæri.“
Miklar annir fram undan
Það er sannarlega engin logn-
molla kringum Huldu. „Brjálæðið
heldur bara áfram, sýnist mér. Ég
kem aftur til Íslands tvisvar í vor til
að spila á tónleikum og tek þátt í
verkefnum í Þýskalandi, Danmörku,
Noregi, Rússlandi og Skotlandi
með alls konar skemmtilegu fólki.
Þar má m.a. nefna gæluverkefni
mitt, strengjakvintett sem heitir
Wooden Elephant og inniheldur
nokkra af bestu vinum mínum,
en við spilum umritanir á heilum
plötum eftir listamenn úr öðrum
stefnum en klassík. Næst á dagskrá
er ný umritun á plötunni Kid A eftir
Radiohead.“
Hvað er best að fá í morgunmat um
helgar? Ég er voðalega hrifin af öllu
með avókadó og eggjum, nýbökuð-
um croissants, ferskum appelsínu-
eða greipaldinsafa og nóg af kaffi.
Helst cappuccino.
Ef þú vilt gera vel við þig í mat og
drykk um helgi, hvað verður fyrir
valinu? Það fer eftir því hvaða stuði
ég er fyrir en mér finnst nánast allur
matur góður. Ef mig langar til þess
að vera í hollari kantinum er ég
mjög hrifin ef alls konar grænum
söfum og acai- og smooth ie-skálum.
En eitthvað einfalt eins og góð steik
eða fiskur með fersku og vel elduðu
grænmeti og glasi af góðu víni
klikkar aldrei.
Ertu nammigrís? Já, ólæknandi. Ég
uppgötvaði Nóa kropp með pipar-
dufti síðast þegar ég var heima og
það endaði með því að bróðir minn
þurfti nánast að fela það fyrir mér.
Hvernig er draumahelgin? Ef ég
hef nokkra daga í fríi eru eftirfarandi
hlutir mikilvægir: að sofa nóg, borða
vel, tala við þá sem mér þykir vænt
um og að gera eitthvað sem ég geri
ekki dagsdaglega, hvort sem það er
að fara á safn eða sýningu sem ég
hef ekki farið á áður, fara í langan
göngutúr eða fjallgöngu, horfa á
nýjan þátt eða mynd, lesa góða bók,
elda flóknari kvöldmat en venjulega
og vera eins lítið í símum og tölvum
og mögulegt er. Ef um draumahelgi
væri að ræða myndu þessir hlutir
eiga sér stað á einhverjum skemmti-
legum stað, annaðhvort í Frakklandi
eða á Spáni, og að sjálfsögðu væri
veðrið gott.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég
ólst að mestu leyti upp við klassík og
það er og verður minn heimavöllur
en ég er alæta á alla tónlist sem hefur
eitthvað að segja. Þó er ég oft komin
með nóg af tónlist eftir að vera búin
að grúska í henni allan daginn og
finnst þá góð tilbreyting að hlusta
á ekkert. Annars finnst mér oft gott
mótvægi að hlusta á eitthvað annað
en klassík.
Hvaða áhugamál áttu utan tónlist-
ar? Ég hef skokkað nokkuð reglulega
í átta ár og reyni alltaf að gefa mér
tíma til þess þar sem það tæmir og
róar hugann og heldur líkamanum
í formi. Hitt áhugamál mitt er lestur
en ég hef alltaf verið frekar mikill
bókaormur. Á afmælinu mínu í fyrra
setti ég mér lestraráskorun um að
lesa eina bók á viku næsta árið. Það
hefur verið frábært en stundum líka
erfitt að standa við þá áskorun. Þá
kemur sér vel að eiga stundum inni
mikið hangs í lestum og flugvélum
til þess að koma sér aftur á strik.
Ertu spennt fyrir HM í fótbolta í
sumar? Í allri hreinskilni þá skil ég
hvorki upp né niður í fótbolta en
finnst mjög spennandi að Ísland
sé að taka þátt og mun örugglega
horfa á þá leiki sem við spilum. Ég
horfi alltaf þegar Ísland keppir á
stórmótum í öllum íþróttum og þá
veldur þjóðarstoltið því á einhvern
undarlegan hátt að ég skil betur það
sem fram fer. Þá verð ég stressuð
fyrir hönd íslensku keppendanna og
fer að grenja, hvort sem við töpum
eða vinnum.
Brjálæðið heldur bara áfram
Fiðluleikarinn Hulda Jónsdóttir les eina bók á viku og er ólæknandi nammigrís. Hún kemur fram á
tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar um helgina í Hörpu ásamt Jane Ade Sutarjo píanóleikara.
„Ég ólst að
mestu leyti upp
við klassík og
það er og verður
minn heimavöll-
ur en ég er alæta
á alla tónlist
sem hefur eitt-
hvað að segja,“
segir Hulda
Jónsdóttir fiðlu-
leikari. MYND/
NATALIE DERYN
JOHNSSON
SUMARGRILL
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um sumargrill kemur út 19. apríl nk.
Allt sem hugsast getur varðandi grillið í sumar.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
7
5
-E
C
F
4
1
F
7
5
-E
B
B
8
1
F
7
5
-E
A
7
C
1
F
7
5
-E
9
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K