Fréttablaðið - 14.04.2018, Síða 113
Hafnarskeið 6, Þorlákshöfn
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL SÖLU EÐA LEIGU
Til sölu eða leigu á besta stað við höfnina í
Þorlákshöfn samtals um 3.900 fm atvinnuhúsnæði.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað við höfnin og stefnan er á enn
frekari uppbyggingu. Góð landfræðileg lega hafnarinnar býður
upp á mikinn vöxt í vöruflutningum og nálægð við mest sóttu
ferðamanna staði á Íslandi býður upp á tækifæri til farþegaflutninga
en höfnin í Þorlákshöfn er eina höfnin á vestanverðu Suðurlandi sem
getur tekið á móti skemmtiferðaskipum.
Fasteignin býður upp á ýmsa nýtingamöguleika.
Nægt aðgengi að vatni og rafmagni.
Nánari upplýsingar veitir Vala Hauksdóttir löggiltur fyrirtækja –
fasteigna – og skipasali í síma 6906590/ vala@vidskiptahusid.is
Tvær af myndum Alfredos frá Norður-Mexíkó sem er að finna á sýningunni í Ramskram undir yfirskriftinni Terra Nullius. ©AlfRedo espARzA
sig hvert landsvæðið í veröldinni
á fætur öðru. „Spánverjar, Frakkar,
Englendingar og fleiri þjóðir komu
til Suður-Ameríku og fóru inn á
landsvæði sem voru greinilega í
byggð. Þeir hins vegar sögðu að þar
sem þetta fólk væri ekki einu sinni
kristið þá væri í raun engin þörf á að
líta á það sem mennskt, heldur mun
fremur einhvers konar dýr. Þetta var
réttlætingin fyrir því að leggja undir
sig landið og allar auðlindir þess og
þetta átti sér stað í Suður-Ameríku,
Afríku og Ástralíu með einmitt þess-
um formerkjum, að rétturinn væri
þeirra gagnvart bæði frumbyggjum
og landinu. Þessi réttur kallast Terra
Nullius því valdbeiting og arðrán
þurfti á smekklegu hugtaki að halda
því það réttlætir þá sem það stunda.“
sagnfræðileg kortlagning
Alfredo segir að fyrir honum falli
þetta að ákveðinni hugsun sem
virðist víðast vera enn við lýði, í hið
minnsta í hinum vestræna heimi og
eflaust víðar. „Þetta er hugsun sem
segir að það sé alltaf hægt að nýta allt
í nafni valds og efnahags með einum
eða öðrum hætti. Þetta er það sem
við stöndum frammi fyrir varðandi
náttúruna og hvernig mannskepnan
nálgast hana enn þann dag í dag.“
Ljósmyndir Alfredos sýna lands-
lag sem hefur verið nýtt eða snert af
manninum með einum eða öðrum
hætti en síðan yfirgefið. „Þetta er
landslag sem er hvorki mannsins né
náttúrunnar lengur og þannig fellur
það svona á milli tveggja heima í
ákveðnum skilningi,“ segir hann og
minnir á að Ísland og Mexíkó eru
einnig í ákveðnum landsvæðum sem
standa á milli tveggja heima og hann
líti svo á að Íslendingar eigi í sterku
og sérstöku sambandi við nátt-
úru landsins. „Þjóð sem býr á landi
eins og Íslandi stendur frammi fyrir
því að þurfa bæði að treysta á nátt-
úruna og á sama tíma umgangast
hana af varfærni og virðingu. Þessi
andstæða finnst mér heillandi því
þegar ég skoða landsvæði eins og
Suður-Mexíkó þá er náttúran fyrst
og fremst gjöful. Sólin skín og það
er nóg af vatni og allt blómstrar.
Í norðurhlutanum er ekkert vatn
en einhvern veginn komumst við
þó samt af,“ segir Alfredo og brosir
og minnir á að myndirnar séu leið
til þess að fanga þá sögu sem felst í
þessu sambandi manns og náttúru.
„Fyrir mér eru þessar myndir eins
konar sagnfræðileg kortlagning á
athöfnum mannsins. Skrásetning
menningarminja sem þurfa að vekja
okkur til umhugsunar um hvernig
við ætlum að lifa á þessari jörð. Við
getum ekki endalaust vaðið áfram
án þess að staldra við og hugsa um
það hvað við skiljum eftir okkur og
hvað ekki.“
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 57L A U g A R D A g U R 1 4 . A p R í L 2 0 1 8
1
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
5
-5
D
C
4
1
F
7
5
-5
C
8
8
1
F
7
5
-5
B
4
C
1
F
7
5
-5
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K