Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
12. október í 4 nætur
Bir
tm
eð
fr
irv
ar
au
m
re
ntv
illu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
VALENCIA
Helgarferð til
Síðustu
sætin!
Frá kr.
44.995
m/morgunmat
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
2,4 milljarða kostnaður frá 2011
Dýpkun Landeyjahafnar stærsti kostnaðarliðurinn Siglt verði alla daga ársins milli lands og Eyja
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er ekki bara kostnaður vegna dýpkunar
þó að hann sé vissulega stærsti liðurinn, en inni í
þessum tölum er einnig kostnaður vegna eftir-
lits, mælinga, rannsókna og annarra minni
framkvæmda innan hafnar,“ segir Sigurður Áss
Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs hjá
Vegagerðinni, við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess að frá árinu
2011 hefur áðurnefndur kostnaður í Landeyja-
höfn numið yfir 2,4 milljörðum króna. Þannig
var, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni,
heildarkostnaður árið 2011 yfir 315,5 milljónir
króna, rúmlega 311 milljónir árið 2013, um 250,3
milljónir ári síðar, um 625 milljónir 2015 og hátt í
466,3 milljónir króna í fyrra. Það sem af er þessu
ári hefur kostnaður vegna Landeyjahafnar
numið tæplega 240 milljónum króna.
„Sumir hafa velt því upp af hverju við látum
ekki dýpka meira en gert er. Við létum hins veg-
ar gera það árið 2015 og 2016, en það skilar litlu
og svarar í raun ekki kostnaði,“ segir Sigurður
og bendir á að hann eigi von á því að ástandið
batni til muna þegar ný Vestmannaeyjaferja
kemur hingað til lands og þegar búið verður að
koma fyrir dýpkunarbúnaði í landi. „Þetta mun
þá eflaust ekki ganga án allra vandræða, en að
dýpka fyrir Herjólf, sem ristir 1,5 metrum
dýpra en nýtt skip mun gera, er nær vonlaust
verk,“ segir hann.
Vestmannaeyjabær vinnur nú að sam-
komulagi við ráðuneyti samgöngumála um yf-
irtöku Vestmannaeyjabæjar á rekstri
Vestmannaeyjaferju. Hafa til þessa verið
haldnir þrír undirbúningsfundir og verður sá
fjórði haldinn í dag. Elliði Vignisson, bæjar-
stjóri í Eyjum, segir á heimasíðu sinni ein-
lægan vilja vera til að „ná þessu saman og til
að svo megi verða þarf að vanda gríðarlega til
undirbúnings“. En meðal þess sem Eyjamenn
leggja áherslu á er að núverandi Herjólfur
verði áfram til taks og hann nýttur ef þörf
krefur, að siglt verði milli lands og Eyja alla
daga ársins og að framlög ríkisins ásamt
tekjum hvers árs standi undir kostnaði við
rekstur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lífæð Herjólfur á leið að bryggju.
Ný 104 metra löng bráðabirgðabrú yfir
Steinavötn í Suðursveit, sem kemur í
stað þeirrar sem laskaðist mikið í
vatnavöxtum þar eystra í síðustu viku,
var opnuð í hádeginu í gær. Brúin er
reist á tréstaurum sem reknir eru nið-
ur í sand og síðan lagðir á þá bitar sem
bera timburgólf. Á brúnni er svo einnig
vegrið og ljós sem varar við að brúin er
einbreið.
„Þetta gekk hratt og vel fyrir sig
sem ég þakka góðu skipulagi og því að
mannskapurinn var samhentur. Við
kunnum þetta fag,“ sagði Sveinn Þórð-
arson, brúarsmiður Vegagerðarinnar, í
samtali við Morgunblaðið í gær. Hann
var þá með sínum mönnum í þann
mund að reka smiðshöggið á verkið.
Ætla má að þetta bráðabirgðamann-
virki verði uppi að minnsta kosti næstu
tvö árin, eða þar til ný og varanaleg brú
er tilbúin.
Vinnudagur brúarsmiðanna við
Steinavötn frá síðastliðnum laugardegi
stóð að jafnaði frá klukkan sjö að
morgni fram til kl. 11 á kvöldin. Þannig
keyrðu menn sig alveg í botn, sem líka
þurfti enda var talsverð utanaðkom-
andi pressa að ljúka verkefinu og koma
samgöngum í samt lag
„Það munaði miklu að öll aðföng í
verkið sem þurfti voru tiltæk og bárust
á réttum tíma. Við gátum reiknað með
að vera búin strax á miðvikudegi, en
sögðumst reikna með að verða ögn
seinni til að lofa ekki upp í ermina á
okkur. Í þessu verkefni gekk allt upp,“
segir Sveinn Þórðarson. sbs@mbl.is
Brúarsmiðir kunna fagið
Nýtt mannvirki
var reist á mettíma
Ljósmynd/Óskar Örn Jónsson
Brúarsmiðir Allir voru kátir að loknu góðu verki.
Gunnar Bragi
Sveinsson, þing-
maður Framsókn-
arflokksins og
fyrrverandi ráð-
herra, hefur
ákveðið að ganga
til liðs við Mið-
flokkinn, nýjan
stjórnmálaflokk
Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, og fara
í framboð fyrir Miðflokkinn í kom-
andi alþingiskosningum. Morgun-
blaðið hefur öruggar heimildir fyrir
þessu. Gunnar Bragi hefur verið
þingmaður Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi og er fyrrver-
andi utanríkisráðherra, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra.
Ekki liggur enn fyrir í hvaða kjör-
dæmi Gunnar mun bjóða sig fram en
allar líkur eru taldar á að hann muni
leiða lista flokksins í einu af sex kjör-
dæmum landsins.
Gunnar Bragi sagði skilið við
Framsóknarflokkinn í lok september
þegar hann lýsti því yfir að hann
myndi ekki sækjast eftir því að leiða
lista framsóknarmanna í Norðvest-
urkjördæmi. Þá sagðist hann kveðja
sinn gamla flokk með mikilli sorg en
sáttur við framlag sitt til hans.
Í framboð
fyrir Mið-
flokkinn
Gunnar Bragi
Sveinsson
Gunnar Bragi til
liðs við Sigmund
Mary Hockaday, frá BBC World Service, flutti
erindi um konur í fjölmiðlum fyrir fullum sal í
húsakynnum Morgunblaðsins í Hádegismóum í
gær en hún kemur m.a. að verkefninu Turn Up
The Volume á vegum BBC sem miðar að því að
jafna hlut kynjanna í fjölmiðlum. Fundurinn sem
Árvakur efndi til í gær er hluti af fjölmiðlaverk-
efni FKA og Creditinfo og var ætlað að vekja at-
hygli fólks á hlutdeild kvenna í fjölmiðlum. Sam-
kvæmt Global Media Monitoring Project mælist
hlutur kvenna á heimsvísu aðeins 24 prósent.
Hér landi er staðan öllu betri og draga íslenskar
konur og fjölmiðlar heimsmeðaltalið upp. Hér er
hlutur kvenna 35 prósent og hefur aukist um 5
prósent frá árinu 2013.
Fullt hús á fundi um konur í fjölmiðlum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon