Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 32
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hamfarir og almennar breytingar
á náttúrufari eru orsakavaldar
þess að byggja hefur þurft eða
þarf nýjar brýr yfir fjórar jökuls-
ár á Suðausturlandi. Nýjasta til-
vikið er brúin yfir Steinavötn í
Suðursveit en í vatnsflóðinu þar
eystra í síðustu viku gróf mikið
undan einum af fimm stöplum
brúarinnar svo hún skekktist og
burðarþol hennar brast. Fyrir vik-
ið er hún metin ónýt og síðan um
helgi hafa starfsmenn Vegagerð-
arinnar unnið að smíði nýrrar
bráðabirgðabrúar sem verður
tilbúin um eða eftir komandi helgi.
Þetta er þó aðeins lítill partur af
stórri sögu sem gerst hefur frá
2011 til 2017. Verkefnum sem
þessu hafa fylgt hafa kostað
hundruð milljóna króna.
Múlakvíslarbrú
mátti sín lítils
Brúna yfir Múlakvísl, sem er
vestast á Mýrdalsjökli, tók af flóði
að næturlagi 9. júlí 2011. Senni-
legasta skýringin á því er talin
vera hlaup úr jarðhitakötlunum í
Kötlu, sem eru á austanverðum
jöklinum. Meðal jarðvísindamanna
hafa þó verið deildar meiningar
um þetta og sumir í þeirra hópi
telja að skyndileg innspýting af
kviku eða jafnvel lítið eldgos hafi
orsakað hlaupið. Vatnssýni sem
tekin voru strax eftir hlaupið
bentu þó frekar til þess að í ánni
væri jarðhitavatn, sem ekki hefði
komist í snertingu við goskviku.
Vatnselfur í stjarnfræðilegum
stærðum byltist fram um farveg
svo Múlakvíslarbrú, steypt og
sterk að því er virtist, mátti sín
lítils og henni skolaði fram. Þjóð-
vegurinn var í sundur og allt
stoppaði. Vegagerðarmenn höfðu
hröð handtök, reistu á um einni
viku bráðabirgðabrú sem þótti
snaggaralega gert.
Ný varanleg brú yfir fljótið var
tekin formlega í notkun sumarið
2014; hún er 162 metrar og er
brúargólfið 2 metrum hærra en á
eldri brú. Lágpunktar eru í veg-
inum sinn hvorum megin brúar
svo flóðið rjúfi veg en ekki brú.
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
Stærsta Skaftárhlaup frá því
mælingar hófust kom í október
2015. Það var úr Eystri-Skaftár-
katli, sem hafði þegar þarna var
komið sögu breikkað mikið og
vatnsmagn í honum aukist. Flóðið
fór fram um Skaftá og Eldvatn,
sem úr henni rennur en það
myndaðist í Skaftáreldunum 1783.
Skaðinn af þessu Skaftárhlaupi
varð helstur sá að mikið brotnaði
Brýr í landi
breytinga
Flóð í jökulám og hop jökla vegna
hlýnunar Brýr brotna og ár í nýja
farvegi Mikill kostnaður Múla-
kvísl, Eldvatn, Skeiðará og Steinavötn
Steinavötn Í miklum vatnavöxtum í Vatnajökulssveitum í sl. viku gróf und-
an stöpli svo þessi brú er ónýt. Reisa þarf varanlega í staðinn á næstunni.
Eldvatn Í Skaftárhlaupi 2015, þegar
þessi mynd var tekin, gróf undan
eystri landstöpli Eldvatnsbrúar við
Ása sem er nánast í lausu lofti.
Framkvæmdir við nýja brú hefjast
fljótlega.
Morgunblaðið/Eggert
Formlegt Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra opnaði nýja brú
yfir Múlakvísl með borðaklippingu við hátíðlega athöfn sumarið 2014.
Ljósmynd/Sveinn Þórðarson
Steinavötn Framkvæmdir við
bráðabirgðabrú nú í vikunni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Maðurinn má sín lítils gagnvart
náttúrunni og reginöflum
hennar. Heinabergsvötn aust-
ast í Suðursveit komu undan
Heinabergsjökli, ásamt ánni
Kolgrímu, og féllu um aura til
sjávar. Þetta var talsvert vatns-
fall sem reist var 38 metra löng
stálgrindarbrú yfir og var hún
tekin í notkun árið 1948. Á
þessum tíma var þjóðleiðin um
sveitina nokkru norðar og ofar
í landinu en nú er. Fáum miss-
erum eftir að umrædd brú
komst í gagnið færðu Heina-
bergsvötnin sig svo öll yfir í
farveg Kolgrímu. Síðan þá hef-
ur brúin verið á þurru sem er
hliðstætt því sem gerðist með
Skeiðará sem nú fellur í Gígju-
kvísl.
Svona er landið alltaf að
breytast og því þarf að bregð-
ast við, svo lengi sem mann-
legir kraftar duga. Lengi hafa
til dæmis verið uppi áhyggjur
af því að sjórinn gengur sífellt
meira á haftið milli sjávar og
Jökulsárlóns á Breiðmerkurs-
andi. Getur því svo farið að lón-
ið með sínum óteljandi jökum
breytist í óbrúanlegan fjörð
þannig að hringveginum skoli
burt.
Brú á þurru
og önnur er
í hættu
HEINABERGSVÖTN Í SUÐURSVEIT FÓRU Í NÝJAN FARVEG
Heinabergsvötn Náttúran er
gráglettin. Spáný brúin, reist
1948, stóð eftir á þurru.
Breiðmerkursandur Haft gæti brostið og
Jökulsárlón breyst í óbrúanlegan fjörð.