Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 78

Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 78
78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017 Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is Hörku herslulyklar frá Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Daníel Bjarnason stjórnar í kvöld Sinfóníuhljómsveit Íslands á tón- leikum sem bera yfirskriftina LA/ Reykjavík. Í vor sem leið hélt Fíl- harmóníuhljómsveitin í Los Angeles umfangsmikla hátíð þar sem íslensk tónlist og íslenskir flytjendur voru í forgrunni. Daníel var þar listrænn stjórnandi hátíðarinnar, ásamt hin- um kunna stjórnanda Esa-Pekka Salonen. Nú fyrr í vikunni hófst tveggja vikna hátíð Sinfóníu- hljómsveitarinnar, einskonar mót- svar þar sem tónlist frá Los Angel- es skipar veglegan sess. Daníel, sem er bæði hljómsveit- arstjóri og tónskáld, hefur verið staðarlistamaður Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands frá árinu 2015. Hann hefur gegnt margþættu hlutverki í þeirri stöðu, meðal annars hefur hann stjórnað fjölmörgum tón- leikum og tónsmíðar hans hafa ver- ið fluttar á tónleikum. Auk þess sit- ur Daníel í verkefnavalsnefnd, stýrir tónskáldastofu og hljóðrit- unum með íslenskri tónlist. Daníel er nú kominn hjá mála hjá einni þekktustu umboðsskrifstofu klass- ískra tónlistarmanna og þá hljóma verk hans sífellt víðar. Byggt á Þúsund og einni nótt Á tónleikunum í kvöld hljómar konsert frá 2015 eftir John Adams, eitt kunnasta samtímatónskáld Bandaríkjanna, en verkið samdi hann fyrir flytjandann, fiðlustjörn- una Leila Josefowicz. Hún hefur flutt verkið með hljómsveitum víða um lönd og var flutningur hennar tilnefndur til Grammy-verðlauna í fyrra. Verkið, Scheherazade.2, byggist á Þúsund og einni nótt, á sögunni um konuna ungu sem bjargaði lífi sínu með því að segja sögur. Á tónleikunum hljómar einnig Sálmasinfónía Stravinskíjs, eitt af kunnustu verkum 20. aldar fyrir kór og hljómsveit. Tær og bjartur tónn Hamrahlíðarkóranna hentar verk- inu fullkomlega enda verkið samið fyrir ungar raddir en á þessu ári fagnar kórinn fimmtíu ára starfs- afmæli sínu. Vissulega svolítið ævintýri Það er við hæfi að Daníel Bjarna- son stjórni tónleikum þar sem vísað er til Los Angeles, því á undan- förnum misserum hefur hann átt í gjöfulu samstarfi við hina kunnu Fílharmóníuhljómsveit borgarinnar sem hefur frumflutt nokkur verka hans og leikið enn fleiri. Í vor frum- flutti hljómsveitin undir stjórn Gustavos Dudamel fiðlukonsert Daníels, sem hinn finnski Pekka Kuusisto lék. Kuusisto hefur síðan leikið verkið víða, meðal annars á tónleikaferð um Evrópu í liðinni viku með ensku hljómsveitinni Phiharmonia, undir stjórn Esa- Pekka Salonen. Og í gærkvöldi lék hann konsertinn í París með Orch- estre de Paris undir stjórn Osmo Vänskä. „Það er vissulega svolítið æv- intýri hvað fiðlukonsertinn hefur farið víða,“ segir Daníel sem hefur verið æði upptekinn við að semja ný verk á árinu og var viðstaddur flutning konsertsins í Dortmund og London. „Já, ég skrifaði óperuna Brothers [hún var frumflutt í Dan- mörku og verður sýnd á Listahátíð í Reykjavík í vor] og þegar hún var tilbúin tók konsertinn við. Að auki skrifaði ég tónlistina í kvikmyndina Undir trénu. Það er ágætt að skrif- in róuðust með haustinu – það er samt alltaf eitthvað að semja.“ Hjá þekktri umboðsskrifstofu En þegar Daníel er ekki að semja þá er að heyra sem hann sé að stjórna í síauknum mæli. „Það færist í aukana. Fyrir rúmu ári byrjaði ég að vinna með þekktri umboðsskrifstofu í London, Harr- ison-Parrott, og það hefur opnað margar dyr,“ segir hann. Þess má geta að meðal listamanna sem eru þar á mála eru Víkingur Heiðar Ólafsson, Pekka Kuusisto, Osmo Vänskä og Vladimir Ashkenazy. Daníel nefnir sem dæmi að senn stjórni hann tónleikum sinfóníu- hljómsveitar Tókýóborgar í Japan og fleiri slík verkefni séu fram- undan. „Það er mjög gaman. Oft stjórna ég flutningi á minni eigin tónlist auk annarra verka. Það er þekkt og eftirsótt að menn fylgi sinni tónlist eftir með þeim hætti. Mér finnst frábært að fá tækifæri til að elta músíkina mína með sprot- ann.“ Hann segir að vissulega sé þetta „eilífur línudans“, að finna jafnvægi milli að semja og stjórna. „En mér finnst fínt að hafa bæði.“ Einstakur kór Hvað varðar dagskrá tónleika kvöldsins, þá er Sálmasinfónía Stra- vinskíjs fyrra verk tónleikanna og flytur Hamrahlíðarkórinn það með hljómsveitinni. „Þetta er algjörlega einstakur kór og það sem Þorgerð- ur Ingólfsdóttir hefur byggt upp er ómetanlegt og einstakt. Það er stórkostlegt að vinna með þessum krökkum,“ segir Daníel. „Stravins- kíj tekur fram að hann vilji hafa barnakór eða ungar raddir og kór- inn hentar fullkomlega fyrir það, með sinn einstaklega tæra hljóm.“ Verk Adams fyrir fiðluleikarann Josefowicz segir Daníel mjög dramatískt. „Þetta er stórt og mikið verk og Leila kann þetta allt saman utanbókar og flytur það frábær- lega. Hún á þetta verk með húð og hári.“ Frábært að fá að elta músíkina Morgunblaðið/Eggert Dramatík Stjórnandinn Daníel Bjarnason og einleikarinn kunni, Leila Josefowicz, á æfingu Sinfóníuhljómsveitarinnar fyrir tónleikana í kvöld. Daníel er staðarlistamaður hljómsveitarinnar en kemur víða við, tónverk hans eru flutt af helstu sinfóníuhljómsveitum og sjálfur stjórnar hann hljómsveitum víða.  Los Angeles- tónleikar Sinfóní- unnar í kvöld Bandarísk-kanadíska fiðlu- stjarnan Leila Josefowicz leikur á tónleikum Sinfóníuhljómsveit- arinnar í kvöld einleik í verkinu Scheherazade.2 sem tónskáldið John Adams, eitt þekktasta samtímatónskáld Bandaríkj- anna, samdi sérstaklega fyrir hana og byggist á Þúsund og einni nótt. Josefowicz frum- flutti verkið, sem Adams kallar dramatíska sinfóníu fyrir fiðlu og hljómsveit, með Fílharm- óníuhljómsveit New York fyrir tveimur árum og síðan hefur hún flutt það með hljómsveitum víða um lönd og fengið frábæra dóma fyrir. Að láta í sér heyrast Josefowicz hélt kammer- tónleika í Norðurljósasalnum í fyrrakvöld við mikla hrifningu. Hún segist vera afar hrifin af Hörpu. „Þetta er undursamleg bygging og útsýnið héðan hreint makalaust,“ segir hún. Hún segir tónverkið sem Adams samdi fyrir hana býsna pólití- ískt, það fjalli um unga og greinda konu sem berst fyrir réttindum sínum og frelsi. „Hún óttast ekki karlana sem vilja bæla hana og ég vona að áheyr- endur finni fyrir og skilji þennan karakter. Þegar karlarnir dæma hana til dauða í þriðja þætti þá á tónleikagestum að finnast sem þakið sé að hrynja ofan á þá. Verkið fjallar síðan um flótta hennar eftir þá atburði. Þetta er frelsandi verk, afar feminískt og á vel við í dag; er um það að standa upp og láta rödd sína heyrast.“ Josefowicz segir tónskáldið hafa verið einn sinn nánasta vin í um 20 ár og hefur hún leikið frábær verk eftir hann víða. Og hún ber lof á stjórnandann Daníel og íslenska tónlistarsenu sem hún segir greinilegt að sé að vaxa og þroskast „á besta mögulega hátt“. Feminískt tónverk EINLEIKUR FIÐLUSTJÖRNU
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.