Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 88

Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 88
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. Skildi eftir 23 ára samband 2. Ljósmyndum lekið af… 3. Hélt framhjá með Karli … 4. Klofningur í handboltanum… »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Karl Orgeltríó sendir í dag frá sér hljómplötuna Happy Hour með Ragn- ari Bjarnasyni. Þar syngur hann lög úr smiðju Bjarkar, Gusgus, Pink, Spandau Ballet og Blondie auk frum- saminna laga – allt í djasskenndum útsetningum. Tríóið skipa Karl Ol- geirsson á orgel, Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Ólafur Hólm á trommur. Meðal gestasöngvara á plötunni eru Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Salka Sól. Útgáfu plötunnar verður fagnað á tónleikum í Háskólabíói í kvöld kl. 20. Morgunblaðið/Ómar Happy Hour með Ragga Bjarna í kvöld  Guð, hvað mér er sama er yf- irskrift leiklest- urs á Sölvhóls- götu 13 í kvöld kl. 20. Um flutn- inginn sjá nem- endur af leikara- og sviðshöfunda- braut Sviðslista- deildar LHÍ en sviðstextarnir eru eftir nemendur á öðru ári sviðshöf- undabrautar. Textarnir voru skrif- aðir á námskeiðinu Hugsun, texti, athöfn, sem Hlín Agnarsdóttir kenndi. Leiklestur nemenda  Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari koma fram á tónleikum tónleikaraðarinnar Á ljúfum nótum í Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag kl. 12. Á efnisskránni eru sónötur fyrir fiðlu og píanó í A-dúr eftir W.A. Mozart og Jo- hannes Brahms. Sónötur í A-dúr Á föstudag Austan 8-13 m/s og rigning með köflum, en hægari vindur og bjartviðri á norðanverðu landinu. Hiti 5 til 10 stig. Á laugardag Sunnan 5-10, súld eða dálítil rigning, bjartviðri NA-til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt, 3-10 m/s, skýjað að mestu og sums staðar lítilsháttar væta, en léttskýjað á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 1 til 10 stig, hægt hlýnandi veður. VEÐUR Uppaldar Gróttukonur voru uppistaðan í liðinu sem batt enda á langa bið félagsins eftir meistaratitli í hand- bolta árið 2015. Þær létu sér ekki nægja að vinna einn titil heldur unnu alla þrjá stóru titlana sem í boði voru. Ári seinna landaði lið- ið svo Íslandsmeistaratitl- inum í annað sinn. Farið er yfir sögu kvennaliðs Gróttu í handbolta í íþróttablaði dagsins. »2 Sigursælt lið með uppalda leikmenn „Við áttum okkur á því að við megum ekki misstíga okkur á lokasprett- inum. Við höfum verið í svona stöðu áður. Í undankeppni EM unnum við útisigur á Hollendingum og það er gott að við höfum áður verið að spila svona mikilvægan leik á lokaspretti í riðlakeppni,“ segir Gylfi Sig- urðsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, um leikinn mikilvæga við Tyrki sem fram fer í föstudaginn í undan- keppni HM. »1 Höfum verið í svona stöðu áður „Ég var í raun bara kvefuð í allt sum- ar,“ segir frjálsíþróttakonan Arna Stefanía Guðmundsdóttir, en hún gekkst undir aðgerð í síðustu viku vegna langvarandi glímu við kinn- holusýkingu. Arna vonast til þess að geta nú beitt sér af fullum krafti á næsta keppnistímabili, með stórmót- in HM innanhúss og EM utanhúss í sigtinu. »4 Arna Stefanía komin inn á beinu brautina ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sextán ára unglingur stendur á sviði tívolísins í Hveragerði, skemmtigarðs sem átti fyrirmynd í borg dönsku drottningarinnar. Er klæddur eins og dáti á freigátu og syngur um að hann þrái að slá í gegn. Nú þrjátíu árum síðar er sami söngvari , sem enn er að, reffilegur miðaldra maður og er hótelstjóri í Reykjavík. Enn sem fyrr er söngurinn hans hálfa líf og nú er komið að því að Bjarni Arason haldi tónleika með nokkrum af þeim lögum sem hann hefur sungið til vinsælda í áranna rás. Þeir verða í Háskólabíói laugardagskvöldið 21. október kl. 21. Sjö sólóplötur „Mér finnst ekkert jafn gaman og að syngja. Að vera í fullum sal af fólki, þar sem allir taka undir og syngja með er frábær tilfinning og allt snýst þetta um að ná til fólksins og skapa góða stemningu,“ segir Bjarni. „Þessi þrjátíu ár í söngnum hafa verið æð- isleg og liðið mjög hratt, sem minnir okkur á hve lífið er stutt og mikilvægt að lifa alltaf í núinu.“ Það var í keppni og leit Stuðmanna að Látúnsbarkanum sumarið 1987 sem Bjarni Arason vakti fyrst at- hygli. Lokakaflinn í Látúnsbarkaleit- inni var keppni í Tívolí í Hveragerði og var sýnt beint frá henni í sjónvarpinu. Bjarni söng lagið Slá í gegn, sigraði og strákurinn sem vann í kjötbúð Slátur- félags Suðurlands í Glæsibæ varð stjarna. Ekki varð aftur snúið, lagið Bara ég og þú, kom út fljótlega eftir keppnina og árið eftir sólóplatan Þessi eini þarna með smellinum Það stendur ekki á mér. Alls eru sólóplötur Bjarna orðn- ar sjö auk laga á til dæmis safn- plötum þar sem eru til dæmis lögin Játning, Eurovision-lagið Karen frá 1992 auk margra fleiri. „Þennan tíma sem ég hef verið í músíkinni hafa allskonar stefnur og straumar komið og farið. Hér á árum áður voru lög sumpart melódískari en nú og á tímabili má segja að laglínur hafi horfið. Bítið og frasar urðu ráð- andi í hverju lagi, sem á síðari árum hefur að nokkru gengið til baka,“ seg- ir Bjarni sem alla tíð hefur haft dá- læti á söngvurum af eldri kynslóðinni og haft sér til fyrirmyndar. Þar er Elvis Presley efstur á blaði og má í því samhengi nefna síðustu sólóplötu Bjarna, Elvis Gospel, sem kom út 2012 hvar er að finna lög með trúar- legu ívafi sem rokkkóngurinn söng. Gott fyrir sálina að syngja „Það er heilmikið mál að setja sam- an ferilstónleika, bæði framkvæmdin og svo þarf líka að velja lög og sleppa mörgum, æfa þau og fá allt til að smella saman. Þetta er miklu meira en bara telja í og taka lagið,“ segir Bjarni sem í þessu verkefni hefur með sér hljómsveitarstjórann Þóri Úlfarsson og fleiri góða. „Þessi þrjátíu ár í tónlistinni hafa verið ofsalega skemmtileg og liðið hratt, sem er áminning um að lífið er stutt og mik- ilvægt að lifa í núinu og gleði. Og þá er söng- urinn góð leið, það er gott fyrir sálina að syngja,“ segir Bjarni sem er enn á fullu í tón- listinni. Kemur fram og syngur við hin ýmsu tækifæri og hefur sjaldan verið betri, segja þeir sem best til mála þekkja. „Í 30 ár hefur það verið mér samfellt ánægjuefni að fylgjast með söngferli Bjarna, sjá hann vaxa, þroskast og dafna,“ segir Jakob Frímann Magnússon Stuð- maður. Hann stóð að Látúns- barkakeppninni á sínum tíma og átti þannig stóran þátt í því að Bjarni uppgötvaðist sem söngvari og kom fram á sviðið. „Röddin verður betri með hverju ári og hljómprýðin er mikil. Það er ekki algengt að söngv- arar sem koma ungir fram á sviðið haldi nokkuð stöðugum vinsældum svo áratugum skipti og séu í raun allt- af jafn góðir tónlistarmenn. Það er Bjarni þó svo sannarlega og hann á mikið inni enn.“ Látúnsdátinn syngur enn  Bjarni Arason undirbýr 30 ára fer- ilstónleika  Slá í gegn og Bara ég og þú  Það er gott fyrir sálina að syngja Morgunblaðið/Sigurður Bogi Söngvarinn „Þessi þrjátíu ár í tónlistinni hafa verið skemmtileg og liðið hratt, sem er áminning um að lífið er stutt,“ segir Bjarni Arason. 1987 Bjarnivar barkinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.