Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 85

Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 85
MENNING 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017 Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Annað kvöld verða haldnir tón- leikar til heiðurs kanadíska tónlist- armannnum Neil Young í Eldborg- arsal Hörpu, og hefjast þeir kl. 21.30. „Konseptið er plöturnar hans tvær Harvest og Harvest Moon, en á þessum tónleikum ætlum við samt alveg að leyfa okkur að spila smelli eftir hann sem eru ekki á þessum plötum,“ segir Einar Scheving slagverksleikari sem stendur fyrir tónleikunum. Heilsteyptasta plata rokksögunnar „Ég er búinn að ganga með þessa tónleika í maganum í þó nokkurn tíma. Ég kom að Neil Yo- ung á öfugum enda þegar ég féll fyrir Harvest Moon sem er seinni platan og kom ekki út fyrr en 1992. Ég kynntist henni fyrir til- viljun þegar ég bjó í New York í nokkra mánuði árið 1994,“ segir Einar. „Við hliðina á sjómanna- heimilinu þar sem ég bjó var bar með djúkboxi og ég endaði mörg kvöld á því að fara þangað að spila úr djúkboxinu og fá mér einn kald- an fyrir svefninn. Ég hafði aldrei pælt í Neil Young fyrr en ég féll fyrir þessari plötu. Síðan hef ég alltaf haldið mjög mikið upp á hana og myndi segja að hún væri ein heilsteyptasta plata rokksög- unnar. Seinna uppgötvaði ég svo plötuna Harvest sem kom út 20 ár- um fyrr, og það er sami fílingurinn í þeim.“ - Hvað eiga þær sameiginlegt? „Neil Young hefur átt mjög fjöl- breyttan feril, en þetta eru sum- part þær plötur sem kallast best á varðandi lagasmíðar og það er hver smellurinn á fætur öðrum á báðum þessum plötum. Það er ekk- ert sérstaklega algengt að maður sem slær svo hressilega í gegn með plötu eins og Harvest geti endurtekið leikinn 20 árum síðar með álíka melódískum lögum.“ Sameinar margar kynslóðir Einar segir að allir þeir frábæru listamenn sem hann fékk til liðs við sig hafi strax verið tilbúnir að taka þátt. „Þetta er tónlist sem allt þetta fólk elskar. Neil Young virð- ist takast að sameina margar kyn- slóðir.“ - Hvernig valdir þú fólkið? „Það má segja það að þessi hóp- ur eigi það sameiginlegt að það er einhver 70’s fílingur sem ég skynja í þeim öllum. Þótt Harvest Moon sé frá 1992, þá kallast hún á við áttunda áratuginn. Ákvarðanirnar virkuðu réttar og ég hef sannfærst enn meira um þær eftir að æfing- arnar byrjuðu. Ef þú ert með mannskap eins og þennan þá ligg- ur við að það sé sama hvaða músík þú leggur fyrir framan þau, það mun alltaf verða gæðatónlist.“ Á tónleikunum leikur Einar á trommur og aðeins á píanó, en með honum í bandinu eru Guðmundur Pétursson, Daði Birgisson og Eið- ur Arnarsson. „Gummi Pé er náttúrlega einn mesti gítarsnillingur sem ég hef kynnst á heimsvísu. Hann mun spila mikið á svokallaðan „lap steel“ gítar sem hvílir í kjöltu hans, og framkallar þennan suð- urríkjahljóm sem ég er mjög hrif- inn af. Daði er annar snillingur sem leikur á píanó, hljómborð og Ham- mond-orgel, og Eiður bassaleikari er maður sem kann og leikur þessa tónlist upp á tíu.“ Magnaðir músíkantar Einar segir hópinn hafa til að bera marga frábæra gítarleikara. „Margir söngvaranna spila lögin sem þau syngja sjálf á kassagít- arinn. Pétur Ben er einn af söngv- urunum, en hann er svo frábær gítarleikari að við véluðum hann strax í bandið. Kvenfólkið er algjörlega frá- bært; Ragnheiður Gröndal, Elín Ey sem er þvílíkt hæfileikabúnt enda dóttir Eyþórs Gunnarssonar og Ellenar Kristjánsdóttur, og svo Soffía Björg sem ég er að vinna með í fyrsta sinn, og hún er þvílíkt að skína. Hún er fædd til að flytja svona tónlist. Krummi Björgvins er algjörlega magnaður söngvari með sína frá- bæru rödd sem hann á nú ekki langt að sækja, og rosalega flotta sviðsframkomu. Með okkur er svo magnaður músíkant sem sést alltof sjaldan í íslenskri tónlistarsenu, Helgi Hrafn Jónsson. Hann er einn flott- asti básúnuleikari landsins, en starfar meira núorðið sem lagahöf- undur og söngvari. Hann syngur nokkur lög og spilar á gítar, banjó og básúnu. Svo erum við með eldri höfðingjana Magnús Þór Sig- mundsson og KK. Á æfingu um daginn þegar Magnús var að syngja hvíslaði KK að mér að Neil Young væri mættur,“ segir Einar sem var alveg sammála. Einlægni og sannfæring - Hvers vegna á fólk að koma á þessa tónleika? „Neil Young er snillingur í laga- smíðum. Lögin ganga einfaldlega upp, þau eru tiltölulega stælalaus og ná beint að hjartanu. Sumir textanna eru ekkert flúr, hann seg- ir hlutina oft bara eins og þeir eru. Auk þess sem hvert eitt og einasta lag er frábært, flytur tónlist- arfólkið tónlistina af mikilli ein- lægni og sannfæringu. Ég hugsa að maður þyrfti að vera ansi kald- ur til að hrífast ekki með,“ segir Einar Scheving sem lofar frábær- um tónleikum og hlakkar til að sjá sem flesta annað kvöld í Hörpu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á æfingu Einar Scheving, fyrir miðju, með tónlistarfólkinu sem mun taka þátt í því með honum að heiðra Neil Young í Eldborgarsal Hörpu á morgun, föstudagskvöld. „Neil Young er snillingur í lagasmíðum. Lögin ganga einfaldlega upp, þau eru tiltölulega stælalaus og ná beint að hjartanu,“ segir Einar. Morgunblaðið/Styrmir Kári Hetjan sjálf Neil Young hélt tónleika í Laugardalshöll árið 2014. Lögin ná beint að hjartanu  Tónleikar til heiðurs Neil Young annað kvöld  Snillingur í lagasmíðum  Plöturnar Harvest og Harvest Moon kallast á  Tekst að sameina kynslóðir  Margir magnaðir músíkantar koma fram Ragnheiður Gröndal þekkti bara nokkur lög með Neil Young áður en hún fór að æfa fyrir tón- leikana. „Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt. Hann er frábær lagasmiður og mikil dýpt í textunum, og þar með tímalaus klassík sem á við hvaða kynslóð sem er. Þetta er líka svo flottur hópur af tónlist- arfólki, þar sem allir koma úr ólíkum áttum,“ segir Ragnheið- ur sem syngur lögin Out On the Weekend og From Hank to Hendrix. „Svo er ég með mjög flottan dúett með Pétri Ben You and Me, sem er mjög gaman að syngja.“ Tímalaus klassík MIKIL DÝPT Í TEXTUNUM „Þessi tónlist er að fleyta mér tilbaka til ársins 1970, og ég er að uppgötva lyktina og þessa ljúfsáru tilfinningu þegar maður var unglingur, fyrstu ástina og allan þennan pakka, án gríns,“ segir Kristján Kristjánsson, KK, um það að taka þátt í þessum tónleikum. „Ég vona bara að sem flestir fái að upplifa þetta líka. Þetta er alveg magnað.“ KK segir Neil Young hafa haft mikil áhrif á hann. „Hann er einn af aðalmönnunum sem tóku þátt í tónlistarbyltingunni sem átti sér stað á seinni hluta síðustu aldar, og mótuðu mig mikið.“ Alveg magnað EINN AF AÐALMÖNNUNUM Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 10 SÝND KL. 6 SÝND KL. 6, 8SÝND KL. 8, 10.20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.