Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Kosning til embættis vígslubiskups
í Skálholtsumdæmi stendur yfir.
Kjörgögn voru póstsend til kjós-
enda 28. september 2017. Frestur
til að skila kjörgögnum á Biskups-
stofu rennur út næstkomandi
mánudag, 9. október kl. 16.00, að
því er fram kemur í frétt á heima-
síðu Biskupsstofu. Í framhaldi af
því verða atkvæði talin. Á kjörskrá
eru 975 manns, vígðir menn og leik-
menn.
Þrír einstaklingar eru í kjöri:
Séra Axel Árnason Njarðvík, séra
Eiríkur Jóhannsson og séra Krist-
ján Björnsson.
Núverandi vígslubiskup í Skál-
holti, Kristján Valur Ingólfsson,
verður sjötugur 28. október nk. og
lætur af störfum fyrir aldurs sakir.
Hann var vígður til embættisins 18.
september 2011. sisi@mbl.is
Kosningu
lýkur á
mánudag
Tæplega 1.000
manns á kjörskrá
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skálholt Nýr vígslubiskup valinn.
Breytingar hafa verið gerðar á
hólmanum í Þorfinnstjörn í Hljóm-
skálagarðinum svo hann henti bet-
ur sem varpsvæði fyrir kríuna við
Reykjavíkurtjörn.
Krían lífgar mjög upp á Tjörnina
en síðustu ár hefur verið nokkuð
fjörugt kríuvarp í hólma sem útbú-
inn var í Fuglafriðlandinu í Vatns-
mýri fyrir nokkrum árum, segir í
frétt á heimasíðu borgarinnar.
Í framkvæmdum við kríuhólm-
ann í Þorfinnstjörn var gróður tek-
inn í burt en hann var kominn á kaf
í hvönn og annan hávaxinn gróður
sem krían forðast. Mun færri kríur
hafa verpt þar undanfarið en á ár-
um áður.
Nú er þar aðeins slétt möl sem er
kjörlendi fyrir kríuna til að verpa í,
en til þess velur hún sér helst
snögga bletti.
Fuglavinir hafa lengi kallað eftir
þessum aðgerðum. sisi@mbl.is
Hólminn lagaður
fyrir kríurnar
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Þorfinnshólmi Starfsmenn borgarinnar vonast til að krían taki nýja hólmanum opnum vængjum næsta vor.
Andri Lúthers-
son, upplýsinga-
stjóri utanríkis-
ráðuneytisins,
mun flytja erindi
á fundi Varð-
bergs í dag,
fimmtudag, um
utanríkisþjón-
ustu til framtíðar.
Fundurinn verð-
ur haldinn í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafnsins við Suðurgötu og
hefst klukkan 12.
Guðlaugur Þ. Þórðarson utan-
ríkisráðherra kynnti 1. september
2017 sl. skýrslu og tillögur stýrihóps
utanríkisráðuneytisins sem ber heit-
ið: „Utanríkisþjónusta til framtíðar:
Hagsmunagæsla í síbreytilegum
heimi.“
Fyrirlesarinn, Andri Lúthersson,
sat í stýrihópnum. Hann hefur víð-
tæka reynslu af utanríkismálum en
hann hefur m.a. stýrt upplýsinga-
málum í utanríkisráðuneytinu sl.
fjögur ár. Hann tekur senn við sam-
ræmingu umfangsmikillar vinnu
ráðuneytisins vegna málefna út-
göngu Breta úr ESB (Brexit).
Ræðir framtíð
utanríkisþjón-
ustu Íslands
Andri Lúthersson
innbyggðum gufugleypi
SpAnhellubORðmeð
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
lOSnAðu Við hÁfinn
Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til
margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru
með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu
hreins lofts þegar þú eldar og losnaðu við fitu sem sest
um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni.
ÞÝSK VeRðlAunAhönnun
Sjámyndbönd á friform.is
5 ára ábyrgð á öllum raftækjum
TÆKNIBYLTING
InnByggðuRgufugleypIR í helluBORðI.
MeIRApláSS, engIn fItA, BetRAlOft.
fRÁbÆR
nÝjung
enginn hÁfuR
eKKeRtVeSen
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
föstudaga kl. 09 til 17
laugardagar kl. 11 til 15