Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 10
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ljóst er að talsverð hreyfing er á
fylgi kjósenda við stjórnmálaflokka
þessa dagana, eins og nýlegar skoð-
anakannanir gefa til kynna. Þannig
hefur VG verið að sækja aukið fylgi,
sömuleiðis hefur Samfylkingin rétt
úr kútnum, Sjálfstæðisflokkurinn
rokkar á milli 22% og 25%, Píratar
eru ýmist um eða undir 11%, Mið-
flokkurinn sækir í sig veðrið í nýj-
ustu könnun Fréttablaðsins með um
9%, en var langt frá því að ná inn
manni á þing í könnun Félagsvís-
indastofnunar fyrir Morgunblaðið
fyrir helgi.
Stóru tíðindin í könnununum virð-
ast þó vera þau að tveir þriggja rík-
isstjórnarflokka Bjarna Benedikts-
sonar, þ.e. Viðreisn og Björt framtíð,
eru ýmist á mörkum þess að þurrk-
ast út af Alþingi eða þeir þurrkast út
í kosningunum 28. október nk.
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
við Háskólann á Akureyri, segir að
ekki sé tímabært að lýsa yfir dauða
Bjartrar framtíðar og Viðreisnar.
Mæling innan skekkjumarka
„Reyndar voru Björt framtíð og
Viðreisn mjög nálægt því að vera
inni, samkvæmt könnun Félags-
vísindastofnunar á laugardag og
segja má að sú mæling hafi verið
innan skekkjumarka, þó báðir flokk-
ar hafi mælst neðan við 5%,“ sagði
Grétar Þór í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Aðspurður hvað hann telji að valdi
hruni á fylgi Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar, sagði Grétar Þór: „Yfir-
leitt er það þannig að litlir flokkar
sem fara með stórum flokki í ríkis-
stjórn, ekki síst Sjálfstæðis-
flokknum, hafa ekki unnið mikið
fylgi á því. Hjá Bjartri framtíð var
það líka þannig að þátttaka flokksins
í ríkisstjórn var miklu umdeildari
heldur en innan Viðreisnar.“
Grétar telur alveg mögulegt að
ákveðið fylgi Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar sé að fara aftur til baka yf-
ir á Samfylkinguna.
„Allt getur þetta breyst á næstu
vikum, en meginlínurnar núna eru
þessar: Það eru tveir turnar uppi,
VG og Sjálfstæðisflokkur, og svo eru
hinir, misstórir þó, í neðri deildinni.
Ég ætla ekki að kveða upp dauða-
dóm yfir Viðreisn og Bjartri framtíð
að sinni. Flokkarnir gætu enn krafl-
að sig yfir fimm prósentin,“ sagði
Grétar Þór.
Þurfum að spýta í lófana
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
4. þingmaður Suðvesturkjördæmis
og starfandi sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, var í gær spurð
um skýringar á því að fylgi Við-
reisnar hrynur samkvæmt könn-
unum: „Ég ætla rétt að vona að
þetta verði ekki niðurstaðan í kosn-
ingunum. Þetta þýðir það að við
þurfum að spýta í lófana. Við erum
að berjast fyrir því að framsýn við-
horf hljóti hljómgrunn og nái fót-
festu. Það er ljóst samkvæmt því
sem verið er að ræða núna að það
verða ekki margir tilbúnir til þess að
ráðast í kerfisbreytingar og aðra
þýðingarmikla hluti. Ég óttast að
það verði frekar reynt að setja pott-
lok yfir ýmsa erfiða hluti í samfélag-
inu. Fyrst og síðast skiptir okkur í
Viðreisn máli að tala fyrir okkar
stefnu og vera samkvæm sjálfum
okkur,“ sagði Þorgerður Katrín.
Oft séð lágar tölur
Valgerður Björk Pálsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bjartrar framtíðar,
sem jafnframt skipar 3. sæti fram-
boðslista flokksins í Suðurkjördæmi,
sagðist ekki óttast niðurstöður skoð-
anakannana í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Miðað við fyrri reynslu, þá höfum
við í Bjartri framtíð ekki miklar
áhyggjur af skoðanankönnunum.
Við höfum setið á Alþingi síðan 2013
og höfum fengið alls konar niður-
stöður úr skoðanakönnunum og oft
séð lágar tölur, sem við værum
vissulega til í að sjá hærri, en við lát-
um þetta ekkert á okkur fá.
Við vorum að mælast með 2-3%
nokkrum vikum fyrir kosningarnar í
fyrra, en fengum svo 7,2% í kosning-
unum. Við spyrjum bara að leiks-
lokum,“ sagði Valgerður Björk Páls-
dóttir.
Ekki tímabært að lýsa yfir dauða
Miðað við niðurstöður nýlegra skoðanakannana gætu Viðreisn og Björt framtíð horfið af Alþingi
eftir alþingiskosningar Óljóst hversu margir stjórnmálaflokkar verða á Alþingi eftir kosningar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Glaðir í bragði Formenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, Benedikt Jó-
hannesson og Óttarr Proppé, voru glaðir í byrjun árs, við stjórnarmyndun.
Kannanir
» VG fengi 20 þingmenn, ef
kosningaúrslit yrðu í samræmi
við könnun Fréttablaðsins í
gær. Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 15 þingmenn, Píratar
fengju 8, Samfylkingin 7, Mið-
flokkurinn 6, Flokkur fólksins 4
og Framsókn fengi 3 þing-
menn. Aðrir fengju ekki mann.
» Yrðu úrslit kosninga í sam-
ræmi við niðurstöður könnunar
Félagsvísindastofnunar sem
birtar voru í Morgunblaðinu á
laugardag, fengi VG 22 þing-
menn, Sjálfstæðisflokkurinn 17
þingmenn, Píratar fengju 8,
Framsóknarflokkurinn, Sam-
fylkingin og Flokkur fólksins
fengju hver um sig 5 þing-
menn, en aðrir flokkar fengju
ekki mann kjörinn.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
www.volkswagen.is
Passat GTE Variant togar í mann.
Passat GTE Variant. Dráttarbeisli fylgir.
Nú fylgja dráttarbeisli með öllum Volkswagen Passat GTE Variant. Hann er jafnvígur á rafmagn og
bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni einni saman, en í langferðum tekur sparneytin
bensínvélin við. Láttu það eftir þér að krækja í nýjan Passat GTE Variant.
Verð frá 4.930.000 kr.
Við látum framtíðina rætast.