Morgunblaðið - 05.10.2017, Qupperneq 38
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Netárásir eru viss ógnun við þjóð-
aröryggi þegar þær beinast að við-
kvæmum ríkisstofnunum eða mik-
ilvægri iðnaðarstarfsemi. Táknrænt
getur þetta „mjúka vopn“ virst öfl-
ugt. Varnir við þeim eru ekki bara
kostnaðarsamar hvað rekstur, hönn-
un og þróun og viðhald varðar. Til-
raunir og rannsóknir á sviði net-
öryggis hafa aftur á móti reynst
öflug lyftistöng fyrir annars konar
tækni og uppfinningar.
Frakkar eru framarlega á sviði
rannsókna og þróunar netöryggis
fyrir herskipaflota sinn. Borgaraleg
siglingastarfsemi er talin geta notið
þess, bæði flutningaskip og fisk-
veiðiskip. Með auknum stafrænum
búnaði og þráðlausri tækni um borð
í bæði flutninga- og fiskiskipum eru
þau sem stendur að miklu leyti ber-
skjölduð fyrir netárásum tölvu-
þrjóta. Hryllir marga við mögulegri
birtingarmynd tölvuárása á gáma-
og olíuskip og farþegaskip, ekki síst
á fjölförnum siglingaleiðum með-
fram ströndum landa.
Netöryggisklasi í Rennes
Sérstakur klasi til rannsókna í
þágu netöryggis (Pôle d’excellence
cyber) hefur verið starfandi í
Rennes, höfuðborg Bretaníuskagans
í Frakklandi, frá í febrúar 2014. Frá
í fyrra hafa varnir gegn netárásum á
herskipaflota Frakka verið í for-
gangi. Þar snúast rannsóknir um
getu og færni til að verjast net-
árásum og gagnárásir á hendur
þeim sem fyrir þeim standa. Bæði
árásum sem beinast gegn varn-
arkerfum landsins og öðrum þáttum
þjóðfélagsins. Litið er á það sem lið í
að tryggja fullveldi Frakklands sem
sjálfstæðs ríkis.
Í þessu sambandi hafa fjárveit-
ingar til rannsókna og tækniþróunar
netöryggisklasans verið þrefaldaðar
frá 2014. Er hann samstarfs-
vettvangur ýmissa þjálfunarstöðva
heraflans í Bretaníu, 75 fyrirtækja
sem sérhæfa sig í netöryggi, þrettán
fyrirtækjasamsteypna og á annan
tug háskólastofnana sem stunda
rannsóknir á sviði netöryggis.
Þegar þáverandi varnarmálaráð-
herra, Jean-Yves le Drian, tilkynnti í
fyrra um stóreflingu starfsemi klas-
ans sagði hann að þar myndu „þús-
undir stafrænna bardagamanna“
starfa náið saman. Þeir yrðu í fram-
línu á nýjum vígstöðvum heraflans;
netárásanna. Stjórn aðgerðaklasans
verður á ábyrgð yfirmanns franska
heraflans og talað er um þessa tæp-
lega 3.000 manna sveit tölvukera og
tæknimanna sem her 21. aldarinnar
í Frakklandi. Stafræni herinn á ekki
aðeins að verða fær um að lama inn-
viði sem brúkaðir eru til árása gegn
frönskum hagsmunum, heldur og
einnig að svara árás með enn öflugri
gagnárás.
Gætu sökkt farþegaskipum
Hryðjuverkamenn í netheimum
gætu valdið usla á fiskimiðum með
því að brjótast inn í stjórnkerfi tog-
ara og annarra fiskiskipa. Þeir gætu
og sökkt farþegaskipum, samkvæmt
aðvörunum breska samgöngu-
ráðuneytisins sem í leiðbeiningum til
skipafélaga hvetur til aukinna varna
gegn netárásum á sjó. Þar segir að
skip séu lítt varin gegn netárásum;
„mannránum, sjóránum og þjófnaði
á farmi“ kæmust spellvirkjar inn í
tölvukerfi þeirra. Og það sem verra
er, netárás gæti haft í för með sér
gífurlegt manntjón og skipskaða,
segir í tilmælunum til fyrirtækja í
samgöngum á sjó og sjávarútvegi.
Segja stjórnvöld að innbrot í sigl-
ingatæki skips eða stjórnbúnað geti
leitt til áreksturs við önnur skip eða
að því verði siglt upp á grynningar
og þar með í strand. Flutninga-
starfsemin á sjó sé nánast varn-
arlaus fyrir netglæpum. Eru viðvar-
anirnar settar fram í skýrslu,
„Netöryggi skipa“, sem Verkfræði-
og tæknistofnuin Bretlands (IET)
samdi fyrir stjórnina og samgöngu-
ráðuneytið hefur dreift til hags-
munaaðila. Fer þar ekki á milli mála
að stjórnvöld óttast að hægt væri að
sökkva farþega- og flutningaskipum
með miklu manntjóni.
Grunsamlegir
árekstrar herskipa
Bandaríski flotinn útilokar ekki
netárás sem skýringu á árekstri her-
skipsins John McCain og olíu-
flutningaskips undir líberískum fána
úti fyrir Singapúr í síðasta mánuði.
Mun rannsókn á árekstrinum meðal
annars beinast að þeim möguleika.
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN
hafði eftir ónafngreindum flotafor-
ingja að stýri herskipsins hefði allt í
einu orðið óvirkt. Hefði áhöfnin
heldur ekki fengið varastýri til að
virka og afleiðingin orðið árekstur
við olíuskipið við mynni Malakka-
sunds. Talsmenn flotans segja ekk-
ert benda til netárásar en þeirri
kenningu vex þó fiskur um hrygg.
Stýrin hættu skyndilega að virka
rétt fyrir áreksturinn og komu svo
aftur inn stuttu seinna eins og ekk-
ert hefði verið að.
Þetta var fjórða atvikið þar sem
bandarísk herskip lenda í einkenni-
legum óhöppum á Kyrrahafi á þessu
ári. Þann 31. janúar strandaði beiti-
skipið Antietam við strendur Japans
og þann 9. maí rákust annað beiti-
skip, Lake Champlain, og suður-
kóreskur togbátur saman. Upp úr
miðnætti 17. júní varð svo árekstur
milli tundurspillisins Fitzgeralds og
gámaflutningaskips með þeim af-
leiðingum að sjö sjóliðar biðu bana.
Smíði Fitzgeralds kostaði 1,5 millj-
arða dollara og skipið er „barma-
fullt“ af rafeindabúnaði til notkunar
jafnt í hernaði sem á friðartímum.
Skipherrann og tveir aðrir yfirmenn
voru settir af í framhaldi af slysinu.
Sérfræðingar segja að þótt engar
sannanir séu fyrir hendi vakni óhjá-
kvæmilega spurningin hvort átt hafi
verið við rafeindabúnað skipanna.
GPS tuga skipa truflað
Itay Glick, fyrrverandi starfs-
maður í netárásadeild ísraelsku
leyniþjónustunnar, sagðist á því við
sjónvarpsstöðina Fox News að
árekstur herskipsins McCain kynni
að vera afleiðing innbrots í tölvu-
kerfi skipsins. „Ég trúi ekki á tilvilj-
anir. Bæði USS McCain og USS
Fitzgerald voru hluti af sjöunda flot-
anum, og svo mjög svipar þessum
tveimur atvikum saman að tengsl
gætu verið þar á milli,“ sagði hann.
Truflanir í gervihnattaleiðsögu-
búnaði (GPS) í á þriðja tug skipa í
austanverðu Svartahafi þann 22.
júní sl. þykja einnig grunsamlegar
og ekki benda til annars en að tölvu-
þrjótar í landi hafi þar verið að
verki. Þar til GPS tækin sýndu allt í
einu að hvert og eitt skipanna væri
statt við flugvöll rúmlega 30 kíló-
metra upp á þurru landi hafði leið-
sögubúnaðurinn starfað eðlilega, að
sögn fréttaþjónustunnar McClatchy.
Todd E. Humphreys, prófessor
við University of Texas og sérfræð-
ingur í siglingakerfum, segir fjölda
skipanna benda til vafasams verkn-
aðar. „Þarna var gróflega gengið
fram, líklega komu merkin frá Rúss-
landsströndum.“ Hann bætir við að
bandaríski flotinn notist við lokað
GPS-kerfi og engar vísbendingar
hafi komið fram um bilun í gervi-
hnattakerfum hersins í ásiglingu
McCain.
Afturhvarf til lóransins
Hættan á tölvuárásum á sigl-
ingatæki skipa hefur valdið því að
ýmsar þjóðir heims hafa stigið skref-
ið afturábak og endurvakið sem
varabúnað, sem á rætur sínar í
seinna heimsstríðinu, lóranstöðvar.
GPS og álíka leiðsögubúnaður sem
byggist á því að senda og mótttaka
merki frá gervitunglum er að mati
sérfræðinga býsna berskjaldaður
fyrir tölvuþrjótum. Um 90% allra
flutninga í heiminum fara um höfin
og miklu varðar að ekkert gangi úr
skorðum á fjölförnum siglinga-
leiðum. Ólíkt flugvélum hafa skipin
engin siglingakerfi til vara. Hætti
GPS-búnaður þeirra að virka sem
skyldi er þeim hætt við að lenda í
árekstri við önnur skip eða sigla í
strand.
Til að bregðast við þessari ógn og
fjölda truflana á siglingabúnaði
skipa undanfarið eru Suður-
Kóreumenn að þróa varabúnað, svo-
nefnd eLoran. Bandarísk stjórnvöld
áforma að gera slíkt hið sama.
Sömuleiðis hafa Bretar og Rússar
verið að kanna möguleikann á að
nota afbrigði af þessari tækni sem
byggist á radíómerkjum. Ógnin frá
tölvuþrjótum í Norður-Kóreu hefur
hvatt sunnanmenn til dáða en yf-
irvöld í Seoul segja, að hundruð suð-
ur-kóreskra fiskiskipa hafi snúið
fyrr en ella til hafnar vegna truflana
í leiðsögubúnaði sínum. Norð-
anmönnum er kennt um en því hafna
þeir.
Bygging eLoran-kerfis líta ríkin á
sem lið í þjóðaröryggi sínu, en þróun
þessara kerfa og uppbygging þeirra
er afar kostnaðarsöm og kallar á
stórar spildur fyrir sendistöðvar og
möstur þeirra sem eru á annað
hundrað metra há. Sérfræðingar í
netárásum segja vandann við GPS-
kerfið og önnur álíka vera þann, að
merkin frá gervitunglunum á braut
hátt yfir jörðinni eru afar veik. Með
einföldum og ódýrum aðgengilegum
búnaði megi auðveldlega trufla þau.
eLoran sendingarnar verði tölvu-
þrjótum aftur á móti miklu erfiðari
að fást við því radíómerkin eru um
1,3 milljón sinnum sterkari en GPS-
merki. Til að trufla starfsemi eLor-
an þurfi mjög öfluga senda, stórt
loftnet og heilmikið raflafl og því
yrði auðvelt að finna það og stað-
setja.
Ógnin aukist jafnt og þétt
Sérfræðingar í siglingum og ör-
yggismálum segja að ógnin af net-
árásum hafi aukist jafnt og þétt á
undanförnum áratug. Á sama tíma
hafi skip og bátar tekið í notkun sigl-
ingatæki sem byggjast á gervi-
hnattaleiðsögubúnaði og sjókort
horfið úr loftskeytaklefum. Það séu
ekki bara einstakir tölvuþrjótar sem
skipum standi ógn af, heldur og maf-
íuhópar, hryðjuverkasamtök og
leyniþjónustur óvinveittra ríkja svo
fátt eitt sé nefnt.
Með því að yfirtaka til dæmis
stjórnkerfi gámaskipa eða olíuskipa
úr fjarlægð og stefna þeim til annars
lands væri hafið efnahagslegt stríð.
Fátt væri þó ógnvænlegra en ef
tölvuþrjótum tækist að brjótast inn í
stjórnkerfi og vopnakerfi herskipa.
Afleiðingarnar gætu orðið skelfileg-
ar. Í Rennes og víðar er nú reynt að
draga úr þessari hættu með því að
byggja upp dugandi varnir gegn sjó-
ránum tölvuþrjóta.
Stafrænir vígamenn gegn netárásum
Þrjú þúsund sérfræðingar vinna að því í Frakklandi að draga úr möguleikum tölvuþrjóta til
netárása á skip sem flest hver eru berskjölduð gagnvart slíku Snýst um að tryggja þjóðaröryggi
Varnir Netöryggisklasinn í Rennes fæst við að byggja upp dugandi varnir gegn árásum tölvuþrjóta á herskip.
AFP
Árekstur Herskipið John McCain og olíuflutningaskip undir líberískum
fána rákust saman úti fyrir Singapúr. Hugsanlega er netárás um að kenna.
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN