Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 48

Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017 Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Dæmi: Fagleg & persónuleg þjónusta AULIKA TOP Frábær kaffivél fyrir lítil og millistór fyrirtæki. COSMETAL J-CLASS Kolsýruvatnskælir fyrir kröfuharða. YUMI Vönduð og góð brúsavatnsvél. BIANCHI TOUCH Frábær kaffivél fyrir stærri fyrirtæki. Í mörg ár hefur heyrst hjá almenningi og fulltrúum hinna ýmsu samtaka umræða um það sérstæða við- horf sem fátækir, aldr- aðir og öryrkjar þurfa að sæta af hendi vald- hafa í landinu. Fyrir hverjar kosn- ingar eru frambjóðend- ur, og flokkar þeirra, sammála um að óhæfa sé að þús- undir barna og öryrkja búi við sára fátækt. Aldraðir – þið vitið; þeir sem hörðum höndum byggðu upp landið og innviði þjóðfélagsins – búi við sultarkjör sem hvorki duga til fram- færslu né standast stjórnarskrá. Kosningar eftir kosningar eru frambjóðendur sammála um að úr þessari hneisu verði bætt, eigi síðar en á komandi kjörtímabili. Jafn göfugmannlega og lofað er, þá eru efndir aðrar: Þögn. Aftur til nútíðar Enn og aftur eru kosningar á næsta leiti. Sannið til, áhugi fram- bjóðenda hefur ekki minnkað á mál- efnum fátækra, öryrkja, aldraðra og annarra sem lifa við fátækt og von- leysi. Eins og ávallt fyrr „verður sögð áhersla á að leiðrétta kjör hinna lægst launuðu“. En við höfum heyrt þennan falska söng áður. Flestir flokkar hafa haft nokkur kjörtímabil til að þvo þennan smánarblett af þjóðinni – en ekkert gott aðhafst. Mikið er talað um ríkidæmi okkar: Áætlaður tekjuafgangur á fjárlögum er um fjörutíu milljarðar. Leggjum járnbraut til Keflavík- urflugvallar. Lokum Reykjavíkurflugvelli, til að fá byggingarlóðir í miðbænum. „Flytj- um“ Reykjavíkurflug- völl, t.d. upp á Hólms- heiði. Byggjum enn eina stórvirkjun til að geta selt orku til út- landa. Byggjum fleiri og stærri háskóla. Leyfum Landsbank- anum – sem er í eigu þjóðarinnar – að byggja glæsihöll á dýrustu lóð lands- ins, væntanlega fyrir okurvaxtatekj- urnar sem þeir hafa af þeim sem þurfa lán til að geta eignast húsnæði. Höldum áfram að gefa útvöldum hluta af náttúruauðlindum þjóðar- innar. Flytjum inn hælisleitendur með ófyrirséðum milljarða tilkostn- aði. – Ég skal hætta hérna – í bili. Þegar svona vangaveltur eru uppi á sama tíma og sumir eiga ekki fyrir mat, menntakerfið útskrifar ólæsa, heilbrigðiskerfið er að deyja úr myglusvepp og peningaleysi – þá hlýtur maður að álykta að víðar séu göt en á vösunum. Bréf til þingmanna Ég leyfði mér að senda öllum þingmönnum bréf – núna fyrir þing- lok – þegar þeir funduðu um hvaða mál næðist að afgreiða á þessum stutta tíma sem til stefnu væri. Ég benti þeim á þjóðþrifamál sem ég man ekki betur en allir flokkar væru sammála um og gætu því afgreitt án teljandi umræðu – ekki síst vegna þess hve rík við værum: Afnám fátæktar, hækkun bóta til öryrkja og aldraðra. Ég leyfði mér að nefna að bætur þyrftu að nægja fyrir raunveruleg- um framfærslukostnaði, auk við- bótar, t.d. „í takt við kjör þing- manna“. Ég óskaði ekki sérstaklega eftir svari nú, enda vildi ég ekki tefja þingmenn. Hitt má nefna að ekki barst eitt einasta svar. Ég er hins- vegar alvanur slíku og tek það ekki persónulega. Ég hef alla trú á því að mörg hundruð Íslendingar hafi sömu sögu að segja. Það er hinsvegar efni í aðra grein, við annað tækifæri: „Framkoma sumra embættis- og stjórnmálamanna við almenning“. Nú hafa þingmenn lokið störfum, og lagst í atkvæðaveiðar – á fullu kaupi – en ekki gert neitt í fram- færslubótum þeirra sem minnst mega sín. Það er vert að hafa í huga þegar kjördagur rennur upp. Ungu kjósendur Lokaorð mín nú eru til ykkar, ungu kjósendur. Ísland er heimili ykkar, myndið ykkur skoðanir á því hvernig heimili þið viljið eiga. Reynið að hugsa ekki aðeins um hvað ykkur hentar í dag, því við getum ekki fengið allt sem við viljum. Svo breytast þarfir og skoð- anir okkar allra eftir því sem við eld- umst og öðlumst meiri reynslu, t.d. af námi, starfi, hjónabandi, barn- eignum – og elli. Það er ekki auðvelt að finna svör fram í tímann. Sérstaklega varðandi hluti sem þið eruð ekki farin að hugsa neitt um. – T.d. hvaða þjón- usta vilt þú að öldruðum bjóðist þeg- ar þú ert orðinn sjötíu ára? Þriðji forseti Bandaríkjanna, Thomas Jefferson, sagði – í lauslegri þýðingu: Það fólk sem dreymir um að búa alla ævi í friðsælu lýðræðisríki þar sem jafnræði, réttlæti, öryggi og al- menn velmegun ríkir – án þess að skipta sé af nokkru sjálft, það dreymir um eitthvað sem aldrei hef- ur verið – og aldrei mun verða. Hér leggur Jefferson áherslu á að við verðum að taka þátt í að móta þjóðfélagið en um leið gera okkur ljóst að við erum ekki ein og þurfum því að leita samstarfs við aðra. Ég hvet þig til að skoða aðstæður afa og ömmu og líka málefni flokka og frambjóðenda nú. Gagnrýnin hugsun og samtöl við jafnaldra og sérstaklega þér eldra fólk, sem þú treystir, hjálpar þér mikið. Berðu upp spurningar og fáðu svör. Leggðu fram hugmyndir þínar og bjóddu upp á umræður. Farðu á framboðsfundi, taktu eftir hver lofar hverju og – eftir kosningar – við hvað er staðið. Auðvelt er að fá upplýsingar um frammistöðu þeirra flokka sem stjórnað hafa undanfarin ár og ára- tugi. Svo eru nýir flokkar að koma fram núna. Bæði þeir og hinir eldri hafa opnar skrifstofur og heimsækja hópa kjósenda, kynna sig og svara spurningum. En umfram allt vertu með: Kjóstu. Ísland verður heimili þitt, barna þinna og barnabarna, lengi eftir að afi og amma, pabbi og mamma verða farin. Hvað á að kjósa? Eftir Baldur Ágústsson »Ef þetta er öll yfir- sýn stjórnmála- manna, mannúð þeirra og viðskiptavit, þá hlýt- ur maður að álykta að víðar séu göt en á vös- unum. Baldur Ágústsson Höfundur er fv. forstjóri, flugumferð- arstjóri og forsetaframbjóðandi 2004. www.landsmenn.is baldur@landsmenn.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.