Morgunblaðið - 05.10.2017, Side 62

Morgunblaðið - 05.10.2017, Side 62
JÓLAGJÖFIN í ár? við kynnum arc-tic Retro með keðju Fyrir DÖMUR og HERRA VERÐ AÐEINS: 34.900,- VERÐ FRá: 29.900,- fyrir í verslunum um allan heim. Í síðdegisþættinum Magasíninu á K100 sagði Sigga frá verkefninu, að- dragandanum og þeim íslensku hönnuðum sem fengu tækifæri til að kynna vörur sínar. Við heyrðum í tveimur hönnuðum sem fengu vörur sína í framleiðslu og birtum hér myndir af hönnun þeirra. Virðing fyrir hönnunarvinnunni Átta íslenskir hönnuðir fengu að spreyta sig í tillögum og fjórir þeirra fengu hluti í framleiðslu. Það voru þau Jón Helgi, Bergþóra í Farmers Market, Guðrún Lilja hjá Bility og Þórunn. Sigga segir það mjög góðan árangur miðað við að helmingur kom verkefnum alla leið í framleiðslu. Öll verkefnin segir hún mjög flott og vel unnin. „Það er oft framleiðslan, efnismeðferð eða verð ásamt fleiri þáttum sem koma í veg fyrir að hlutur kemst alla leið.“ Bergþóra í Farmers Market segir þetta um samstarfið við IKEA. „Þetta var skemmtilegt ferli sem hófst í nóvember 2015 þegar hópur af hönnuðum IKEA ásamt Sigríði Heimisdóttur var hér að leita sér innblásturs fyrir jóla/vetrar línu fyrir árið 2017. Sigríður kom á fundi milli þeirra og nokkurra íslenskra hönnuða og úr varð að ég var t.d. beðin um að hanna inn í textíllínuna púða, teppi og rúmföt. Við tók skemmtilegt ferli þar sem ég skiss- aði upp nokkrar hugmyndir og þau völdu 5 af 6 hugmyndum til að þróa áfram. Í framleiðslu fyrir þessi jól er prjónaður púði sem ég hannaði og er hann partur af þessari skemmtilegu línu. Þetta var mjög áhugaverð og góð reynsla því að hjá IKEA er mikil fagmennska í gangi og þrátt fyrir stærð fyrirtækisins fannst mér öll samskipti mjög persónuleg og hlý- leg. Ég fann þannig sterkt fyrir því hve mikil virðing er borin fyrir allri hönnunarvinnuni.“. Tommustokkur sem ljós Jón Helgi Hólmgeirsson var einn af þeim sem fengu vöru sína framleidda. „Ég hannaði vöru sem svipar að einhverju leyti til tommustokks – en er upphengjanlegt ljós – og er form þess breytanlegt eftir því hvernig Hulda Bjarnadóttir hulda@mbl.is Margir Íslendingar þekkja orðið iðnhönnuðinn Sigríði Heimisdóttur sem hefur um árabil starfað hjá IKEA. Sjálf hannaði hún einn þekktasta jólaóróann sem hefur komið á markað hérlendis og prýðir mörg íslenska hús er líða fer að jól- um. Sigríður, eða Sigga Heimis líkt og hún er ávallt kölluð, starfaði sem Creative director fyrir jólalínu IKEA 2017 sem er nú verið að koma fólk vill hafa það. Þar af leiðandi er hægt að mynda einföld form eins og hjarta, kassa eða stjörnu (já eða sverð), og hengja upp í glugga eða við vegg, eitt og sér eða mörg sam- an. Upprunalega var hugmyndin að þetta yrði jólastjarna sem gæti um- breyst í eitthvað annað restina af árinu og þyrfti ekki að vera pakkað ofan í kassa með hinu jólaskrautinu – en svo er líka áhugavert að ákveða ekki of mikið fyrirfram og er ég því í raun spenntastur að sjá hvað fólk gerir við þetta. Ég kynnti hugmyndir af nokkr- um ljósum fyrir tveim árum á kaffi- húsi í Malmö fyrir ljósadeild IKEA, nokkrum vikum eftir að ég fékk verkefnið í hendurnar. Ein hug- myndin var keyrð áfram og er þetta afraksturinn. Í sjálfu sér var það ekkert sjálfgefið fyrr en fyrir svona ári að þessi vara myndi verða að veruleika en ýmsar breytingar í út- færslu og efnisvali þurftu að eiga sér stað til þess að framleiðslan gæti átt sér stað, varan yrði ekki of dýr og svo framvegis. Þetta er líka í fyrsta skipti sem ég vinn fyrir svona risa- vaxið fyrirtæki. Ég fékk loks að vera í þeirri stöðu hönnuðar að geta sent frá mér hugmynd með beiðni um út- færslur sem ýmist fagfólk innan IKEA tók síðan að sér að leysa. Það má því segja að ég sé hugmynda- smiðurinn á meðan ýmsar tækni- legar útfærslur eru gerðar í sam- starfi við eða algjörlega af IKEA. Í þessu ferli upplifði maður líka aðeins smæð sína, þar sem ég kom frá litla markaðnum á Íslandi, og vann fyrir svona stórt fyrirtæki – enda er mað- ur einungis einn af hundruðum hönnuða sem vinna fyrir fyrirtækið. Það var því mjög mikilvæg reynsla sem ég tók frá þessu verkefni. Það erfiðasta við þetta samstarf var líklega það að reyna að setja sig í spor þeirra sem eru spenntir fyrir því að skreyta heimili sín um jólin – því yfirleitt hef ég haldið því í al- gjöru lágmarki. Hvað þá að reyna að setja sig í þessi spor þegar enn er langt í jólin. Ég er yfirleitt bara með eins og eina jólaseríu úti í glugga til að búa til kósý lýsingu. Mér var sagt í byrjun verkefnisins að fólk væri tryllt í vörur eins og IKEA PS 2014 ljósið, sem er hægt að breyta form- inu á með því að toga í spotta. Það er því líklega þannig sem þessi hug- mynd kom til. Eitthvað breytanlegt til að trylla fólk og eitthvað sem hefði mjög takmarkaða tengingu við jólin – nema ef notandinn vildi og myndi forma vöruna eftir því.“ Iðnhönnuðurinn Sigríður Heimsdóttir heimsótti þáttinn Magasínið á K100. Ræddi hún um gildi góðrar hönnunar og sagði frá aðdraganda að gerð jólalínu 2017 fyrir IKEA. Hönnuður Sigríður Heimisdóttir í heimsókn í þættinum Magasíninu á K100. Jól Sigríður Heimisdóttir hönnuður á veg og vanda af vetrarlínu IKEA 2017. Íslensk hönnun í IKEA um jólin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.