Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 70
70 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Hljóðfæri
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Alsilki
nærfatnaður
Við erum á
Mikið úrval
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílar
Nissan Leaf útsala!
2015 bílar, eknir milli 20 og 35 þús.
Nokkrir litir. Allir með hraðhleðslu.
Verð aðeins 1.990.000 staðgreitt
eða lánað.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Smáauglýsingar 569
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn,
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Þjónusta
Allt er betra ef heimilið
er hreint
Vönduð hreingerningarþjónusta
á hagstæðu verði.
Sími 837 2000.
Snyrting
Og í tilefni þess
bjóðum við
20% afslátt af
öllummeðferðum
út október
Við erum 3 ára
Lóuhólum 2-4
Sími 557 5959
Elsku yndislega
Vala okkar. Það
voru hörmulegar
fréttir sem við feng-
um snemma morguns hinn 5.
september síðastliðinn að þú
hefðir orðið bráðkvödd. Við höf-
um ekki þekkst lengi en við
kynntumst í janúar og höfum hist
á hverjum virkum degi allt þetta
ár þar sem þú varst dagmamma
dóttur minnar. Við náðum strax
ofboðslega vel saman enda varstu
karakter að mínu skapi, alltaf
brosandi, glöð, ákveðin og algjör
nagli. Ég stoppaði yfirleitt hjá
þér í 10-20 mínútur og stundum
lengur að spjalla um heima og
geima þegar ég sótti Heklu mína
til þín. Mér fór fljótlega að þykja
alveg ofboðslega vænt um þig
enda varstu einstök við dóttur
mína og mér leið ofboðslega vel
að hafa hana hjá þér. Þú vannst
starfið þitt af alúð, það fór ekki
framhjá neinum og hafði ég ein-
mitt margoft orð á því við fólkið í
kringum mig hversu frábær þú
værir og var ég oft spurð að því
hvernig maður fengi svona full-
komna dagmömmu. Ég var fljót
að svara að það væri engin eins
og þú enda væru það orð að
sönnu að þú værir fullkomin dag-
mamma. Þú hringdir í lækni ef
eitthvað amaði að einhverju
barnanna og þú hafðir mikinn
áhuga á næringu barna, enda
ótrúlega flott fæði sem krílin
fengu hjá þér. Þú talaðir alltaf af-
skaplega fallega um Heklu mína
Valgerður Ásta
Rögnvaldsdóttir
✝ Valgerður ÁstaRögnvalds-
dóttir fæddist 24.
mars 1953. Hún lést
4. september 2017.
Útför Valgerðar
fór fram 22. sept-
ember 2017.
og fór maður alltaf
skælbrosandi út frá
þér á daginn eftir
gott spjall og hrós
um litla krílið sitt.
Ég var búin að fá
leikskólapláss fyrir
Heklu og átti hún að
byrja í enda sept-
ember, en ég var
svo ánægð að hafa
hana hjá þér að ég
ætlaði að hafa sam-
band við leikskólann og athuga
hvort ég gæti ekki frestað leik-
skólaplássinu, þú varst ólm í að fá
að hafa hana lengur hjá þér enda
búin að hafa oft orð á því við mig
síðustu vikur. Það fór ekki á milli
mála hvað þér þótti vænt um
hana. Þetta voru okkar samræð-
ur í enda dags hinn 4. september.
Við kvöddumst skælbrosandi
eins og alltaf og ég sagði við þig
að ég myndi hringja í leikskólann
á morgun og athuga með að
fresta leikskólaplássinu og þú
svaraðir: „Þú lætur mig vita, ég
ætla ekki að láta plássið hennar
strax, við heyrumst á morgun.“
En þú kvaddir þennan heim þetta
sama kvöld, það sem lífið getur
verið óréttlátt. Þessir dagar eftir
fráfall þitt hafa verið mér afskap-
lega erfiðir og hafa runnið mörg
tár á hverjum degi, sem sýnir
hversu sterk áhrif þú hafðir á
mann, hversu einstök þú varst og
hvað mér þótti vænt um þig. Ég
vona að þú hafir vitað hvað okkur
Arnóri og Heklu þótti vænt um
þig.
Mér finnst það þungbær hugs-
un að eiga þig ekki að til að passa
næsta barn fyrir mig. Hvíldu í
friði, elsku Vala okkar, ég veit að
fallegustu englarnir taka á móti
þér.
Berglind Jóhannsdóttir og
fjölskylda.
Einar vinur minn
Kristinsson er fall-
inn frá. Ég held að
þú hafir ekki áttað
þig á hversu djúp áhrif þú hafðir
á mig og mitt líf, kæri vinur.
Þessi langa vinátta sem hefur
verið frá því að ég man eftir mér.
Skíðaferðir, Ferðalög innanlands
og utan, jól, afmæli, brúðkaup og
svo framvegis, þetta er of langt
að telja. Mig langar að þakka þér
fyrir að hafa trú á mér þegar
margir aðrir höfðu það ekki.
Þakka þér fyrir að reisa mig við
þegar ég lá. Þakka þér fyrir vin-
áttu sem þú sýndir mér og minni
fjölskyldu. Það fallega við þetta
allt er minningin sem þú skilur
eftir þig, þær góðu minningar
sem aldrei eiga eftir að gleymast.
Ég er sannfærður um það að þitt
Einar Friðrik
Kristinsson
✝ Einar FriðrikKristinsson
fæddist 21. ágúst
1941. Hann lést 21.
september 2017.
Útför Einars fór
fram 29. september
2017.
hlutverk nú er að
pússa regnbogann
og frá og með þess-
um degi mun ég
minnast þín þegar
regnboginn birtist á
himninum – þarna
er vinur minn Einar
Friðrik að halda
regnboganum
hreinum svo að aðr-
ir geti notið fegurð-
arinnar. Þú varst
maður ekki margra orða en allir
hlustuðu þegar þú talaðir, nær-
vera þín var svo góð og vinaleg.
Ég er þakklátur og stoltur að
hafa verið partur af þessu ferða-
lagi þínu.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Að lokum vil ég kveðja þig með
þessum orðum, minn kæri. Ef
það er til líf eftir þetta líf þá vil ég
vera vinur þinn líka þar.
Þinn vinur,
Sveinn Snorri Sighvatsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar