Morgunblaðið - 05.10.2017, Qupperneq 75
DÆGRADVÖL 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
amlegt ka
nýmalað,
en in h
ynn u r ura a v ar rv . óðum þér í kaffi.
s
ylki.
él Við jK t J k ffi
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt auðvelt með að laða fram það
besta í öðrum sem og að miðla málum þegar
menn eru ekki á eitt sáttir. Notaðu daginn til
einveru og endurnæringar því framundan er
annasöm vika.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu þér ekki bregða þótt margt
óvænt gerist í dag og þú eignist jábræður
sem þú hafðir allra síst átt von á. Talaðu um
tilfinningar þínar og tjáðu þær.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt erfitt með að velja á milli
starfs þíns, heimilis og fjölskyldu. Vertu á
varðbergi, því minnsta yfirsjón kann að reyn-
ast dýr.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Dagdraumar og fantasíur hafa náð að
fanga þig tímabundið. Notaðu tækifærið til
að koma hugðarefnum þínum á framfæri.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að hjálpa einhverjum úr klípu lætur þér
líða mjög vel. Kannski er eitthvert samhengi
þarna á milli. Vertu sannur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Með réttum ákvörðunum átt þú að
geta komið málum svo fyrir, að þú þurfir ekki
að hafa fjárhagsáhyggjur. Sýndu fyrirhyggju í
fjármálum sem og öðrum málum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hlutirnir ganga oft upp af sjálfu sér, en
það kostar ekkert að leggja sig fram um að
tryggja hagkvæm úrslit. Annars lætur þú
langanir þínar og væntingar hlaupa með þig í
gönur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þér finnist þú lifa í vernd-
uðu umhverfi, þarftu ekki að horfa lengi í
kringum þig til að sjá að ýmislegt er að ger-
ast. Farðu með þá lexíu alla leið í bankann.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú færð tækifæri til þess að
hafa áhrif á eða vingast við erfiða manneskju
áttu að grípa tækifærið og hafa hraðan á.
Smáatriðin dásamlegu muni heilla þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir fallið í þá freistni að
kaupa þér eitthvað í hreinum leiðindum í dag.
Reynið að halda ró ykkar og skynsemi og
forðist að reita aðra til reiði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Næstu þrjá daga verðurðu fullur
af góðri orku sem þú munt nýta vel. Líttu
frekar fram á veginn og reyndu að vera tilbú-
inn til að takast á við þá hluti sem mæta þér
þar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Segðu hefðbundnum viðhorfum stríð
á hendur, nú er þörf fyrir ferskar hugmyndir.
Mundu að þú þarft að henta þeim ekki síður
en þau þér.
Eðlilega setja kosningarnar ogpólitíkin svip sinn á kveðskap-
inn á Boðnarmiði. Davíð Hjálmar
Haraldsson horfði á Kastljósið á
föstudag:
Í Kastljósi strangur hann steig
á stokkinn og augnalok seig:
„Ég frið aldrei rauf
né flokkinn ég klauf“
– og sleggjupung faldi og fleyg.
Ármann Þorgrímsson hefur
þetta „mottó“ í pólitík:
Eina stefnu alltaf hef,
ekki burt frá henni sný,
málin styð ég aðeins ef
eitthvað hagnast get á því.
Gróða fyrir mína og mig
mér til handa drottinn bið,
aldrei hugsa þá um þig,
þú mér ekkert kemur við.
Jón Atli Játvarðarson velur yf-
irskriftina „Haustframboð. Yfirlit.“
fyrir þessa vísu á Boðnarmiði:
Í flugeldasýningu framboðið rætt.
Fínt, ef að enginn sér gallann.
Gengistap Wintris af virðingu bætt,
en verra með stjórnmálahallann.
Gunnar J. Straumland lítur þann-
ig á málin:
Furðu oft menn fara á mis
við fólksins vilja.
Framboð sumra er fánýtt gys
sem fáir skilja.
Og Hallmundur Kristinsson seg-
ir:
Stjórnmálamennirnir ráðskast og rífast,
rétt um sólarlagsbil.
Margskonar lestir með þjóðinni þrífast.
Það er nú líkast til.
Hörður Þorleifsson er í öðrum
hugleiðingum. – „Ég verð níræður í
maí,“ segir hann, „ en finn ekki fyr-
ir elli eða eins og ég sagði einhvern
tíma“:
Aldurinn í sjálfum sér
sýnist ekki skipta máli.
Það sem stendur upp úr er
afstaðan sem betur fer.
En hausthljóð er komið í Pétur
Stefánsson enda farið að kula
Dýrðlegt er haustið með dvínandi yl
og dásemdar litatóna.
Best ég fari að taka til
trefil og kuldaskóna.
Samt er góður tónninn í honum:
Oft og tíðum út ég fer,
inni vill ei hanga.
Í flestum veðrum indælt er
um allan bæ að ganga.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Pólitík og flugelda-
sýningar á haustdögum
HÖRÐ ÁSTARLÖG.
„SAMKVÆMT ÞESSARI RÖNTGEN-MYND ER
HÚN FÖST Í FÓTLEGGNUM Á ÞÉR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar lag vekur
gamlar minningar.
NÆSTUM TÍMI FYR-
IR HÁDEGISMAT
SEM ÞÝÐIR AÐ ÞAÐ ER
NÆGUR TÍMI FYRIR
MEIRI MORGUNMAT
HRÓLFUR, KLUKKAN ER MARGT! ÞÚ LOFAÐIR
AÐ VERA EKKI LENGUR Á KNÆPUNNI EN
TIL TÍU!
SVEINN, HVAÐ
DRAKK ÉG
MARGA BJÓRA?
TÍU!
SJÁÐU BARA! ÉG STÓÐ VIÐ MÍN
ORÐ!
ÞIÐ VILJIÐ KANNSKI EKKI
HEYRA ÞETTA NÆSTA LAG – EN
ÞIÐ ÞURFIÐ AÐ GERA ÞAÐ.
Sonur Víkverja byrjaði í leikskóla ádögunum. Víkverji var með hnút
í maganum áður en erfinginn byrjaði
því að skólaár hans sjálfs voru ekki
beint hamingjusöm. Ótal spurningar
nöguðu Víkverja. Hvað ef hinir
krakkarnir vilja ekki leika við Vík-
verja yngri? Hvað ef þeir eru leið-
inlegir við hann? Hvað ef hann lendir
í einelti, eða það sem yrði verra, hvað
ef hann færi sjálfur að „einelta“?
Hvað ef, hvað ef, hvað ef.
x x x
Flestar af þessum áhyggjum Vík-verja voru hins vegar með öllu til-
efnislausar. Sá stutti virðist njóta sín
ágætlega á leikskólanum og hafa
gaman af vistinni þar, alltént enn sem
komið er. Börnin leika sér víst mjög
fallega, en þó er varla hægt að segja
að þau leiki sér saman á þessum
aldri. Líklega væri réttara að segja
að börnin leiki sér í sama rými á sama
tíma. Starfsfólkið á leikskólanum er
sömuleiðis mjög gott og fagmann-
legt, og fátt upp á það að klaga. Vík-
verji gat því varpað öndinni léttar.
x x x
Einn galli var þó á upphafi leikskól-ans. Víkverji yngri hafði nefni-
lega aldrei orðið veikur á ævi sinni
áður en hann byrjaði á leikskólanum.
Strax eftir fyrsta daginn var hann
hins vegar kominn með hortauma úr
nefinu, og á þriðja degi var litli snúð-
urinn orðinn veikur. Horið ætlar
aldrei að hætta að renna og Víkverji
og frú hafa vart undan að snýta hon-
um. Núna situr Víkverji og bíður
bara eftir því að hann fái fyrsta póst-
inn um að lús hafi fundist og/eða
njálgur.
x x x
Áður en Víkverji eignaðist barnsjálfur öfundaði hann stundum
samstarfsmenn sína sem hringdu í
vinnuna og tilkynntu að þeir væru
með „veikt barn“. Fyrir Víkverja
hljómaði það eins og skemmtilegt frí
á launum, að fá að vera heima með
barninu sínu og sinna því veiku, en
vera sjálfur fullfrískur. Nú veit hann
að það er nánast full vinna að vera
heima með veikt barn og hann öfund-
ar vinnufélaga sína ekki baun lengur
þegar þeir taka sér slíkt frí.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Og ég segi yður: Biðjið og yður mun
gefast, leitið og þér munuð finna, kný-
ið á og fyrir yður mun upp lokið verða.
(Lúk. 11:9)