Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þessi tækni er hugsuð fyrir skóg-
arbóndann, að hann geti unnið
sem mest sjálfur við grisjun og
sparað sér aðkeypta vinnu,“ segir
Sigurður Jónsson, skógarbóndi í
Ásgerði í Hrunamannahreppi.
Hann ræðir um ódýra og með-
færilega afkvistunarvél sem í
fyrradag var prófuð á hans landi.
Vélin léttir mjög vinnu við grisjun
í skógum og trjáreitum og eykur
afköst.
Komið er að grisjun skóga í
bændaskógrækt um allt land og
skógræktarfélög og Skógræktin
þurfa stöðugt að vinna að grisjun.
Er þetta mikið unnið með hönd-
unum sem tekur tíma og er erfitt.
Verktaki á Austurlandi á stóra
skógarhöggsvél sem heggur tré,
hreinsar greinarnar af og bútar
tréð að því búnu niður. Vélin er
dýr og verðleggja þarf þjónustu
hennar eftir því. Þá er dýrt að
flytja tækið á milli landshuta.
Böðvar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Skórgræktarfélags
Árnesinga, bætir því við að slík
vél sé of stór í fyrstu grisjun en
nýtist betur í 2. og 3. grisjun.
Grisja þarf þúsundir hektara
Skógarbændur á Suðurlandi
hafa verið að leita að hentugu tæki
til að létta sér störfin. Þeir fengu
kynningu á tiltölulega ódýrum og
meðfærilegum afkvistunarvélum
sem settar eru á dráttarvélar þeg-
ar þeir skoðuðu stóra sýningu
skógariðnaðarins í Svíþjóð í sum-
ar. Þeir sömdu við Hypro um að
senda vél sem þeir töldu geta
hentað hér, til landsins í reynslu-
og kynningarskyni. Starfsmenn
framleiðandans eru þessa dagana
að þjálfa starfsmenn til að taka við
henni.
Vélasalinn Jötunn tók að sér að
flytja vélina til landsins og tók um
leið að sér umboð fyrir framleið-
andann. Rætt er um að stofna
rekstrarfélag um vélina til að
hægt sé að þjóna bændum.
Finnbogi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Jötuns, segir að vél-
in hreinsi greinarnar af trjánum
og búti þau niður. Fara þurfi með
aðra vél sem einnig er tengd við
dráttarvél á undan til að fella trén
og hreinsa neðstu greinarnar af –
eða nota keðjusög.
Finnbogi tekur fram að hann
hafi útvegað skógarbændum ýmis
tæki í gegnum tíðina. Hann segist
þó ekki eiga von á að selja margar
skógarhöggs- og afkvistunarvélar
fyrst í stað en trén vaxi og smám
saman verði hér raunverulegur
skógariðnaður. Þá stækki mark-
aðurinn.
Böðvar og Finnbogi benda á að
skógarbændur eigi mikla skóga og
þörf sé á að grisja þúsundir hekt-
ara af skógi til þess að hjálpa
þeim trjám sem eftir standa til að
vaxa. Finnbogi bendir á að bænd-
ur geti fengið verktaka í þetta
verk enda fái þeir stuðning ríkis-
ins við fyrstu grisjun. Með því að
hafa aðgang að tækjum sem þeir
geti tengt við eigin dráttarvélar
geti þeir skapað sjálfum sér eða
fjölskyldunni verkefni og tekjur
yfir vetrartímann.
Böðvar segir að vélvæðing skóg-
arhöggsins spari mikla vinnu og
erfiði. Nefna þeir félagar að hægt
sé að nota krana nýja kvistarans
og spil til að sækja tré allt að 50
metra inn í trjáreiti.
Vélin er í þessari umferð meðal
annars prófuð við grisjun aspa í
skógum Sigurðar í Ásgerði, fækk-
un aspa í trjágöngunum sem liggja
frá Laxá að Flúðum og grisjun í
þéttum skógi Skógræktarfélags
Árnesinga á Snæfoksstöðum. Sig-
urður Jónsson fylgdist með og
leist nokkuð vel á.
Þarf að fá meira fyrir viðinn
Stór hluti grisjunarviðarins er
fluttur á Grundartanga þar sem
hann er kurlaður og notaður við
framleiðsluna í járnblendiverk-
smiðju Elkem. Sigurður segir dýrt
að flytja trén á Grundartanga og
kurla viðinn og slæmt að ekki sé
hægt að greiða bændum grunn-
kostnað við framleiðsluna. Segir
hann að meginhluti kurlsins sem
notað er í járnblendiverksmiðjunni
sé fluttur frá Kína og Kanada.
Viðurinn er brenndur hér með til-
heyrandi útblæstri. Skógræktar-
menn benda á að planta þurfi
miklum fjölda trjáa hér á landi til
að vega á móti útblæstri gróður-
húsalofttegunda og draga úr kol-
efnisskuldinni sem safnast upp,
meðal annars vegna brennslu á
þessum viði frá Kína og Kanada.
Nær væri að stuðla að notkun á ís-
lenskum trjám við stóriðjuna og
koma þannig á hringrás.
Léttir vinnu skógarbóndans
Sunnlenskir skógarbændur prófa ný og meðfærileg skógarhöggs- og afkvistunartæki
Trén vaxa og þörf er orðin á mikilli grisjun Vélvæðing skógariðnaðarins talin mikilvæg
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Afkvistun Sænska vélin hreinsar greinar af trjábolunum og sagar þá niður í búta. Vélin er tengd við dráttarvél bónd-
ans og er til reynslu hér á landi. Bændur geta sparað vinnu og erfiði með notkun slíkra tækja við grisjun skóganna.
Áhugi Ræktunarmenn fylgjast með prófunum á afkvistunarvélinni í Ás-
gerði, Böðvar Guðmundsson, Finnbogi Magnússon og Sigurður Jónsson.
Skógræktarfélag Hruna-
mannahrepps hefur sam-
þykkt að fella aðra hverja
ösp úr trjáröðinni frægu
sem liggur meðfram
þjóðveginum frá brúnni
yfir Stóru-Laxá og að
Flúðum. Sigríður Jóns-
dóttir formaður segir að
markmiðið sé að opna
betur fyrir útsýni frá
þjóðveginum.
Skógræktarfélagið og
áhugamenn plöntuðu
stórum Alaskaöspum
meðfram þjóðveginum
þegar nýr vegur var lagð-
ur þar fyrir þrjátíu árum.
Þótt aðeins væri plantað
öðrum megin vegarins og
ekki alveg samfellt sáu
menn fyrir sér umhverfi
eins og í Mið-Evrópu þar
sem víða má finna falleg
trjágöng. Ekki voru allir
hrifnir af þessari hug-
mynd og er ákvörðunin
nú um að grisja meðal
annars gerð til að koma
til móts við sjónarmið þeirra. Aspirnar hafa stækkað mjög og líta öðruvísi
út í dag en þegar þeim var plantað. „Það eru einhverjir óhressir með að
ekki sjáist til fjalla þegar ekið er upp Hrepp,“ segir Sigurður í Ásgerði.
Um 800 aspir eru meðfram veginum og þarf því að fjarlægja 400 tré.
Sigurður hóf verkið á síðasta ári með því að fella aspir úr röðinni við Flúðir.
Sigríður segir að það hafi komi vel út og þess vegna hafi verið ákveðið að
halda áfram. Nýju tækin sem sunnlenskir skógarbændur hafa fengið að
láni Svíþjóð nýtast vel við verkið.
Grisja úr trjáröðinni að Flúðum
OPNAÐ FYRIR ÚTSÝNI AF ÞJÓÐVEGINUM
Grisjun Byrjað er að fella tré úr trjáröðinni sem
liggur með þjóðveginum frá Laxárbrú að Flúðum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður
Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
www.kvarnir.is
20 ÁRA
1996
2016
RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX
Galvaniseraðir
ruslagámar
Til á lager
Auðveldar
steypuvinnu.
Til í ýmsum stærðum
Frábær lausn til að
halda öllu til haga á
byggingarsvæði.
Aukahlutir fyrir byggingakrana
Kvarna-tengi
70 kr stk m/vsk.