Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is BORÐ 131.000 kr.SKÁPUR 59.000 kr. MOTTA 85x130cm 17.900 kr. Sigurður Þorri Gunnarsson siggi@mbl.is „Ég hef verið að gera tónlist alla mína ævi, var að taka upp sjálfur og setja tónlistina á netið. Svo gerðist það fyrir tveimur árum að umboðsmaðurinn Sindri Ástmars- son sendi mér tölvupóst og spurði hvort mig vantaði ekki umboðs- mann. Ég var þá að klára listnáms- braut í VMA og vissi þá eiginlega ekki hvað umboðsmaður gæti gert fyrir mig, ég var ekkert búinn að pæla í því hvernig það virkaði að vera tónlistarmaður í raun og veru. En ég hitti Sindra og þá byrjaði bara boltinn að rúlla og nú er ég kominn á samning hjá Sony úti í Amsterdam og er fluttur þangað,“ segir Axel Flóvent um upphaf fer- ilsins en það má segja að þetta hafi gerst allt mjög hratt hjá honum en það eru aðeins tvö ár síðan hann var að útskrifast úr VMA á Akur- eyri. „Ég er svo ótengdur þessu, það vita svo fáir hver ég er hérna heima. Jú, ég er með einhverjar tölur yfir spilanir á netinu en það þýðir ekkert fyrir mér því ég lendi aldrei í því að fólk viti hver ég er. Þannig að ég næ að upplifa að vera atvinnutónlistarmaður án þess að vera alltaf að minna sjálfan mig á það eða fá eitthvað í egóið,“ segir Axel sem er ánægður með að frægðarsólin rísi hægt og rólega. Unglingsárin innblástur Axel eyðir flestum stundum í Amsterdam í íbúðinni sinni við lagasmíðar. „Ég er að reyna að klára að gera hina fullkomnu plötu,“ segir Axel og hlær þegar hann er spurður af hverju hann eyði öllum stundum aleinn heima. „Ég er að vinna með geggjuðum upptökustjórum sem hafa gert plötur sem ég hef hlustað á og eru í uppáhaldi,“ segir Axel en upp- tökustjórarnir hafa m.a. unnið með bresku sveitinni London Gramma og poppstjörnunni Foxes. „Í Amsterdam er ég því að búa til demo á fullu og mæti svo með þau til þeirra í stúdíóið og þar tök- um við allt upp aftur sem ég er búinn að gera í alvöru græjum,“ segir Axel um ferlið en hann sem- ur alla sína tónlist sjálfur. Ung- lingsárin eru yfirleitt yrkisefnið hjá Axel. „Ég er yfirleitt að vinna með frekar draumkenndar tilfinningar og pælingar. Ég vinn mikið með fortíðina mína og einhverjar til- finningar sem ég var með á ung- lingsárunum því mér finnst þær mjög merkilegar, hvernig tilfinn- ingar geta farið með mann þegar maður 14, 15, 16 ára og búið til veruleika fyrir manni. Þannig að ég fer aftur í þær og bý til sögur um eitthvað sem ég hef lent í,“ segir Axel en í nýjasta laginu sínu, City Dream, fjallar hann um strákinn að norðan sem allt í einu er kominn í stóra borg og upplifir drauminn sinn. Axel segist alltaf vera að semja. „Það er enginn veggur á milli tón- listarinnar og lífsins, ég er meir að segja að sækja upplýsingar núna í þessu samtali,“ segir Axel og hlær. Hitar upp á Airwaves Axel er staddur hér á landi til þess að koma fram á Airwaves. Hann mun bæði koma fram „off venue“ og „on venue“. „Á fimmtu- dag verð ég á Slippbarnum, föstu- dag á Bryggjunni Brugghús og á laugardag verð ég að spila á Æg- isgarði. Svo á sunnudaginn verð ég í Vodafonehöllinni að hita upp fyrir Mumford and sons,“ segir Axel um dagskrána yfir Airwaves og greini- legt að það verður í nógu að snú- ast. Hann hyggst einnig flakka um Holland í desember og flytja tón- listina sína fyrir Hollendinga auk þess sem frekari landvinningar í Evrópu eru fyrirhugaðir á næsta ári í tengslum við útgáfu plötunnar hans. Húsvíkingurinn í Hollandi Húsvíkingurinn Axel Flóvent er að gera góða hluti í tónlist á erlendri grundu. Axel sem er frá Húsavík er nú búsettur í Amsterdam þar sem hann er á samningi hjá hollenska armi útgáfufyrirtækisins Sony. Þessa dagana er Axel að leggja lokahönd á fyrstu plötuna sína í fullri lengd og sendi hann fyrstu smáskífuna af henni frá sér fyrir helgi, lagið City Dream. Axel er um þessar mundir staddur á landinu til þess að spila á Iceland Airwaves. Amsterdam Axel er búsettur í Amsterdam um þessar mundir þar sem hann er á samningi. Stórborgardraumur Á nýjustu smáskífu sinni yrkir Axel um stórborgardrauminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.