Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Forval dómnefndar til Hönnunar-
verðlauna Íslands hefur verið
kynnt en yfir hundrað tilnefningar
til verðlaunanna bárust. Dómnefnd
hefur lokið störfum og tilnefnir
fimm sigurstrangleg verk, að því er
fram kemur á vef Hönnunarmið-
stöðvar en eitt þeirra mun hljóta
Hönnunarverðlaun Íslands og pen-
ingaverðlaun upp á eina milljón
króna. Verðlaunin verða veitt 9.
nóvember í Iðnó.
Verkin fimm eru einkenni
listahátíðarinnar Cycle, Marshall-
húsið, Reitir Workshop + Tools for
Collaboration, orlofshús BHM í
Brekkuskógi og Saxhóll. Umsagnir
dómnefndar um þessi verkefni má
finna á vef Hönnunarmiðstöðvar á
slóðinni verdlaun.honnunarmid-
stod.is en einnig má þar lesa um-
sögn dómnefndar um það fyrirtæki
sem hljóta mun viðurkenningu fyr-
ir bestu fjárfestingu í hönnun en
nafn þess verður gefið upp á verð-
launaafhendingunni.
Fimm tilnefnd til hönnunarverðlauna
Morgunblaðið/Einar Falur
Marshall-húsið Það var áður síldar-
bræðsla en er nú helgað myndlist.
Ásama tíma og draumaverk-smiðjan í Hollywood send-ir á markaðinn enn eina of-urhetjumyndina og nú
byggða á Þór, þrumuguði norrænu
goðafræðinnar, og hruni heimsins í
ragnarökum, birtist ólíkt önnur og
léttari sýn á
gamla goðaheim-
inn í nýjustu
teiknimyndasög-
unni í Goðheima-
röðinni, Brísinga-
menið. Þessum
skrifara hefur
alltaf þótt ofur-
hetjukonseptið
ameríska afar
leiðinlegt og óspennandi en banda-
rískir gagnrýnendur, sem eru upp-
aldir í hetjudýrkun og trú á hinn
stóra og sterka einstakling, virðast
ekki heldur hafa náð að tengja sig við
þrumuguðinn; rýnir The New York
Times tjáði sig á dögunum um Þór og
þótti hann lang-litlausastur og leiðin-
legastur af þeim hetjum sem Marvel-
teiknimyndasögurnar fjölluðu um og
hafa nú ratað í kvikmyndir, hver af
annarri. Sjálfur myndi ég alltaf kjósa
breyskar og hlægilegar Goðheima-
persónurnar fram yfir þær vöðva-
stæltu og kjánalegu í Marvel-
blöðunum.
Full ástæða er til að hrósa Iðunni
fyrir að halda áfram að gefa út teikni-
myndasögur Peter Madsen. Þær
fyrstu komu út á íslensku um 1980 –
og slógu hér í gegn – og svo fleiri
seint á níunda áratugnum. Nú hafa
fleiri bæst í hópinn og er Brísinga-
menið sú áttunda og kom upphaflega
út á dönsku árið 1991.
Hér segir af ástargyðjunni Freyju
sem gæðir veröldina lífi með vordansi
sínum í skóginum og ber sitt dýrasta
djásn, Brísingamenið. Goð sem dýr
hrífast með og fyllast ástarbríma, all-
ir nema hinn fúllyndi og svikuli Loki
Laufeyjarson sem heldur eins og í
fyrri bókum áfram að hafa allt á
hornum sér – og sér eins og áður um
að skapa vandræði í heimi ása. Hann
reynir allt hvað hann getur til að stela
meninu af Freyju, fyrir Óðin alföður
sem girnist hina íðilfögru ástargyðju
og vill ólmur komast yfir hana, þótt
hann sé kvæntur Frigg.
Heimdallur, sem gætir regnboga-
brúarinnar Bifrastar og þess að þurs-
ar geri ekki innrás í Ásgarð, fyllist
hins vegar ekki kynferðislegum losta
gagnvart Freyju, eins og Óðinn, held-
ur verður innilega ástfanginn af
henni – og þar verða átökin í sögunni,
milli andlegrar og upphafinnar ástar
og þess sem mætti kalla grófrar og
karlrembulegrar eðlunarfýsnar.
Húmorinn í sögunni er á einhvern
hátt einstaklega danskur – og jafn-
framt óneitanlega nokkuð gamal-
dags. Ekki er víst að hin íturvaxna
Freyja, með ávalar línur holdsins og
djúpa brjóstaskoruna (sem Óðinn
sýnilega þráir að sökkva sér í), höfði
vel til rétthugsunar samtímans. Hún
er afsprengi liðinnar aldar. En sagan
er engu að síður fyndin og allar per-
sónur dregnar skírum dráttum; þær
eru flestar guðir en eru samt svo
miklir kjánar – reyndar fyrst og
fremst karlarnir því konurnar eru
altaf sýndar skynsamari og yfirveg-
aðri; þær eru réttsýnar og vita betur,
sama hvað karlarnir hamast og
klúðra málum.
Teiknistíll Madsen er bráð-
skemmtilegur og sögur hans flæða
vel; hann kann líka þá list bestu
teiknimyndahöfunda að dvelja á rétt-
um stöðum við kómísk eða íhugul
smáatriði. Brísingamenið er ekki ein
af betri Goðheimasögunum en hins
vegar má hrósa sagnabálknum sem
heild, því hér er unnið á áhugaverðan
og frumlegan hátt úr sagnaarfi Norð-
urlandanna. Og meðan það er enn
gert þá er þetta lifandi arfur.
Lostafull Óðinn þráir ástargyðjuna Freyju en mikið er gert úr þrýstnum vexti hennar.
Ögrandi og ítur-
vaxin ástargyðja
Myndasaga
Goðheimar 8 - Brísingamenið
bbbnn
Teikningar og texti: Peter Madsen.
Saga: Henning Kure, með hjálp Hans
Rancke, Per Vadmand og Peter Madsen.
Litir: Søren Håkanson.
Bjarni Frímann Karlsson þýddi.
Iðunn, 2017.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Thor er fangelsaður í hinum enda alheimsins án
hamarsins síns og er í kapphlaupi við tímann til að
komast aftur heim til Ásgarðs til að stöðva heims-
endi sem hin miskunnarlausu Hela er ábyrg fyrir.
En fyrst verður hann að berjast fyrir lífi sínu.
Metacritic 72/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 17.15, 18.00, 20.00, 21.00, 22.45
Sambíóin Kringlunni 16.45, 18.00, 19.30, 21.00, 22.15
Sambíóin Akureyri 17.10, 20.00, 22.45
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30, 22.45
Smárabíó 16.40, 19.10, 19.30, 22.00, 22.20
Thor: Ragnarok 12
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta
húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna
skyggir á garð nágrannanna, sem
eru orðnir þreyttir á að fá ekki sól
á pallinn.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 15.50, 17.50, 20.00
Smárabíó 17.50
Háskólabíó 18.00, 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Geostorm 12
Þegar loftslagsbreytingar ógna
öllu lífi á jörðinni sameinast
yfirvöld um alheimsnet gervi-
hnatta. Eftir að hafa verndað
plánetuna gegn hamförum í tvö
ár fer eitthvað að fara úrskeiðis.
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 18.30
Sambíóin Kringlunni 18.50, 21.20
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Island Songs
Ólafur Arnalds tónskáld
ferðast um Ísland og skapar
tónlist ásamt margs konar
samstarfsfólki.
Bíó Paradís 18.00
Thelma
Ung stúlka flytur til Óslóar
og verður ástfangin af skóla-
systur sinni en uppgvötar
dularfulla krafta.
Metacritic 74/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 20.00
690 Vopnafjörður
Bíó Paradís 18.00
Sumarbörn Morgunblaðið bbbmn
Bíó Paradís 20.00
The Party
Bíó Paradís 20.00, 22.00
Borg - McEnroe Myndin segir okkur forsög-
una að hinum magnaða úr-
slitaleik á Wimbledon.
Metacritic 57/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.00
Rökkur 16
IMDb 5,4/10
Nokkrum mánuðum eftir
sambandsslitin fær Gunnar
símhringingu frá fyrrverandi
kærastanum sínum, Einari.
Hann er í miklu uppnámi og
Gunnar er hræddur um að
hann muni fara sér að voða
Smárabíó 17.30, 19.40,
22.10
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.50,
20.00
The Foreigner 16
Hulin fortíð viðskiptajöfurs-
ins Quans leiðir til þess að
dóttir hans deyr í hræðilegu
tilræði hryðjuverkamanna.
Metacritic 55/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.15
Happy Death Day 16
Tree Gelbman verður að
upplifa afmælisdaginn sinn
ótal sinnum til að komast að
því hver reynir að myrða
hana og hvers vegna.
Metacritic 57/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.10
Smárabíó 20.00, 23.10
Borgarbíó Akureyri 22.15
Unlocked 12
Alice Racine er sérfræðingur
í yfirheyrslum sem áttar sig
á því að yfirheyrslan sem
hún stendur í er gildra.
Metacritic 46/100
IMDb 6,2/10
Háskólabíó 18.10, 22.10
Emojimyndin Metacritic 12/100
IMDb 2,4/10
Smárabíó 15.30
The Lego Ninjago
Movie Sex ungar ninjur fá það verk-
efni að verja eyjuna sína,
Ninjago.
Metacritic 55/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Kringlunni 16.45
Sambíóin Akureyri 17.40
My Little Pony Metacritic 39/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 15.50, 17.50
Smárabíó 15.15
Hneturánið 2 Ævintýramynd um sérvitran
íkorna og vini hans.
Metacritic 37/100
IMDb 5,8/10
Laugarásbíó 15.50, 7.50
Smárabíó 15.20, 17.30
Borgarbíó Akureyri 18.00
Skrímslafjölskyldan
IMDb 5,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Personal Shopper 16
Aðstoðarmaður í tískubrans-
anum lendir í kröppum
dansi.
Metacritic 77/100
IMDb 6,2/10
Bíó Paradís 22.15
Home Again
Líf einstæðrar móður tekur
óvænta stefnu þegar hún
leyfir þremur ungum mönn-
um að flytja inn til sín.
Metacritic 41/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 18.00
Blade Runner 2 16
Nýr hausaveiðari kemst að
gömlu leyndarmáli sem gæti
valdið miklu umróti í sam-
félaginu.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 82/100
IMDb 8,8/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Smárabíó 15.45, 20.00,
22.15
The Snowman 16
Lögreglumaðurinn Harry
Hole óttast að hræðilegur
fjöldamorðingi sé kominn
aftur á stjá.
Metacritic 34/100
IMDb 5,4/10
Laugarásbíó 22.00
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Kingsman: The
Golden Circle 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 44/100
IMDb 7,2/10
Háskólabíó 20.50
It 16
Metacritic 70/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Vetrarbræður
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Háskólabíó 17.50